Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 36
MARKAÐURINN 18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Áætlanir FL Group um sölu á hlutafé í
Icelandair Group gengu eftir í vikunni þegar
tilkynnt var um kaup fjárfesta á um 67
prósenta hlut í félaginu. Glitnir sölutryggir
svo þann þriðjungshlut sem út af stendur og
ætlar að bjóða almenningi og fagfjárfestum
bréf til kaups á næstu vikum samfara skrán-
ingu Icelandair í Kauphöll Íslands.
Icelandair verður þar með þriðja nýja
félagið sem skráir hlutabréf sín í Kauphöll á
þessu ári en hin eru Avion Group og Exista.
Heildarvirði Icelandair liggur í kringum
43 milljarða króna sem mun gera það að
tólfta stærsta fyrirtækinu á markaði. Avion
Group, sem er fjárfestingafélag í flutninga-
og ferðaþjónustustarfsemi, er eina félagið
sem svipar til þess rekstrar sem Icelandair
fæst við.
BREYTT ÁFORM
Þar með hafa áætlanir stjórnenda FL Group
gengið að öllu leyti upp og gott betur því
ólíklegt má telja að þeir hafi horft fram
á það að selja allan sinn hlut í Icelandair
Group. Þegar félagið greindi frá því í febrú-
ar að Icelandair yrði sett á markað á öðrum
ársfjórðungi og hlutabréf seld til almennra
fjárfesta voru markaðsaðstæður einkar
ákjósanlegar eftir miklar hækkanir í desem-
ber og janúar. Þegar áformin voru kynnt á
blaðamannafundi benti ekkert til annars en
að FL myndi halda utan um tauma Icelandair,
enda ætlaði félagið sér að halda utan um kjöl-
festuhlut – líklega 30-40 prósenta hlut. Hins
vegar dró ský snögglega fyrir sólu þegar
bankaskýrslur komu á færibandi, hlutabréf
féllu og krónan var í lausu lofti.
Hætt var við áformin og hlutabréfunum
stungið undir kodda. Þegar rofa tók á nýjan
leik á hlutabréfamarkaði upp úr miðjum
ágúst var málið sett í gang á ný.
GLITNIR MEÐ FJÓRA MILLJARÐA
Í september hófu fjölmiðlar að greina frá
viðræðum FL Group við fjárfestahópa ann-
ars vegar undir forystu Ólafs Ólafssonar
í Samskipum og Kaupþings og hins vegar
Glitnis og fyrirtækja tengd S-hópnum.
Líklegra þótti að Ólafur tæki Icelandair til
sín og gekk Financial Times svo langt að full-
yrða að félagið væri hans. En snurða hljóp
skyndilega á þráðinn þegar semja átti um
verð. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kers,
var ósáttur við aðferðafræðina við söluna og
verðlagningu og sleit viðræðum. Daginn eftir
blés FL til blaðamannafundar þar sem kynnt
var samkomulag félagsins við Glitnir um að
bankinn sölutryggði 51 prósents hlutafjár í
Icelandair eftir að áreiðanleikakönnun lyki.
Bankinn gerði gott betur en það því hann
hefur fundið kaupendur að 67 prósentum
hlutafjár og sölutryggir þau 33 prósent sem
eftir standa. Vitað var að bankinn hefði kaup-
endur til taks, enda höfðu Morgunblaðið og
Fréttablaðið bæði greint frá því að annar
fjárfestahópanna sem ræddu við stjórnendur
FL væri S-hópurinn í samvinnu við Glitni.
Þar sem verkefnið verður stærra í hönd-
um Glitnis er ljóst að þetta er stærsta fyr-
irtækjaverkefni bankans frá upphafi. Miðað
við fimm prósenta söluþóknun ætti bankinn
að taka um fjóra milljarða króna í þóknunar-
tekjur fyrir verkefnið sem færist til tekna á
fjórða ársfjórðungi.
GAMLIR FJENDUR
Svo skemmtilega vill til að tveir stærstu
fjárfestahóparnir sem koma að kaupun-
um, Langflug sem Eignarhaldsfélagið
Samvinnutryggingar fer að stærstum
hluta fyrir, og Naust, að stærstum hluta
í eigu Benedikts Sveinssonar, geta rakið
uppruna sinn til gömlu valdablokkanna í
Smokkfiskinum og Kolkrabbanum. VÍS-hópn-
um eða S-hópnum svokallaða, sem fer fyrir
Langflugi, er stýrt af mönnum á borð við
Axel Gíslasyni, Finni Ingólfssyni og Þórólfi
Gíslasyni sem byggðu upp stórfyrirtæki úr
gömlum sambandsfélögum. Þarna eru einnig
Helgi S. Guðmundsson formaður og Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki og
forsvarsmaður Hesteyris.
Naust hins vegar, sem er eigandi
Olíufélagsins og Bílanausts, er að stærstum
hluta í eigu Benedikts sem var áður stjórn-
arformaður Eimskipafélagsins og Sjóvár-
Almennra. Einar Sveinsson, bróðir hans, er
stjórnarformaður Glitnis og jafnframt í stjórn
Olíufélagsins ESSO sem svo skemmtilega vill
til að er einmitt gamalt sambandsfyrirtæki.
Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta
bæjar að gömlu brýnin í Kolkrabbanum og
Smokkfiskinum tækju höndum saman. Svona
breytast hlutirnir hratt í viðskiptalífinu.
Með hlutafjárútboði til almennings og fag-
fjárfesta myndast breiður hluthafahópur og
jafnframt næst það markmið að koma félag-
inu í almenningseign.
Um 34 mánuðum eftir að Hannes Smárason
komst til áhrifa í gömlu Flugleiðum verða
þáttaskil í rekstri FL Group. FL hefur slitið
samvistum við dótturfélagið sitt Icelandair
Group og heldur til frekari fjárfestingaverk-
efna með 35 milljarða í auknu handbæru fé,
en nýir fjárfestar koma að frekari uppbygg-
ingu mikilvægasta samgöngutækis þjóðar-
innar.
Það fer vel á því að nýir eigendur komi að
Icelandair nú þegar félagið fagnar sjötíu ára
afmæli sínu á næsta ári. Flugáætlun félagsins
verður sú stærsta í sögu þess á næsta ári en
framboði á flugsætum verður fjölgað um
sautján prósent og bætast þrjár nýjar leiðir
við leiðakerfið.
Afgreitt á tveimur vikum
Það tók Glitni ekki langan tíma að selja allt það magn sem félagið hafði sölutryggt og gott betur
en það. FL gengur að öllu leyti út úr eigendahópi Icelandair sem hefði þótt ótrúleg staða þegar
áform um sölu og skráningu Icelandair í kauphöll voru fyrst kynnt í febrúar.
SIGURÐUR HELGASON OG HANNES
SMÁRASON Tveir þeirra sem hvað mest
áhrif hafa haft á rekstur Icelandair á síðustu
árum. Sigurður sem forstjóri flugleiða um
árabil og Hannes sem stjórnandi FL Group
og stærsti eigandi.