Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 6
6 18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
KJÖRKASSINN
Eiga Íslendingar að hefja
hvalveiðar?
Já 75,0%
Nei 25,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Treystir þú ríkissaksóknara til
að stjórna hlerunarrannsókn?
Segðu skoðun þína á visir.is
DÓMSMÁL Jesus Sains, fyrrver-
andi starfsmanni deCODE, verður
birt ákæra nú klukkan níu fyrir
hádegi, vegna meints stuldar á
gögnum frá fyrirtækinu. Sains
lagði í síðustu viku fjögurra
milljóna króna tryggingu fyrir því
að hann yrði hér við þingfestingu
málsins sem verður í Héraðsdómi
Reykjavíkur á föstudag.
Erla S. Árnadóttir hefur tekið
við af Sveini Andra Sveinssyni
sem lögmaður Sains. Vitnaleiðsl-
um fyrir dómi í Bandaríkjunum
vegna þriggja annarra starfs-
manna ÍE hefur verið frestað til
13. nóvember vegna anna dómar-
ans í öðrum málum. - gar
Málaferli deCODE:
Jesus verður
birt ákæra í dag
Snarpur jarðskjálfti
Jarðskjálfti að styrkleika 5,8 á Richt-
ers-kvarða varð undan suðvestur-
strönd Nýja-Sjálands í gær. Upptökin
voru um 815 km suðvestur af borg-
inni Dunedin á Suðurey, 10 km undir
sjávarbotni, að því er jarðvísindastofn-
un landsins greindi frá.
NÝJA-SJÁLAND
HEILBRIGÐISMÁL „Hrönn Ingibjörg
dóttir mín er fimmtán ára nem-
andi í Fellaskóla og hún er búin að
bíða eftir þjónustu stöðvarinnar í
tvö ár en hún er með þroskafrávik
eins og yngri systkini hennar. Þar
sem styttist í að Hrönn ljúki
grunnskólanámi er brýnt að hún
fái greiningu sem allra fyrst,“
segir Guðrún Guðmundsdóttir,
fjögurra barna móðir. Þrjú barna
Guðrúnar bíða þess að fá þjónustu
hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins.
„Í greiningunni kemur í ljós
hvort hún þurfi undanþágu frá
samræmdum prófum eða lengri
próftíma. Með greiningunni fengj-
ust líka upplýsingar um það
hversu mikinn stuðning Guðrún
þarf það sem eftir lifir grunn-
skólanáms og í framhaldsnámi.“
Anna Karen, níu ára dóttir Guð-
rúnar, hefur nú beðið í eitt ár eftir
þjónustu GRR en var áður greind
með þroskafrávik af skólasálfræð-
ingi. Guðrún segist ítrekað hafa
hringt til GRR til að ýta á eftir
þjónustu fyrir dætur sínar en þar
hefur fátt verið um svör.
Stefán Grétar, þriggja ára
sonur Guðrúnar, bíður einnig
greiningar en því yngri sem börn-
in eru þeim mun styttri er biðtím-
inn og nú er ljóst að hann kemst að
síðar í mánuðinum.
„Það er skelfilegt að þurfa að
bíða svona lengi og mikilvægt að
börnin fái greiningu sem fyrst til
að ég viti hvernig ég á að vinna
með börnin og fá úr því skorið
hvaða þjónustu þau eiga rétt á í
skólanum.“
Elsti sonur Guðrúnar sem nú er
sautján ára fékk greiningu á GRR
á sínum tíma eftir að hafa beðið í
tvö ár. Guðrún segir merkilegt að
biðlistarnir séu alltaf jafn langir
sama þótt nýjum stöðum sé bætt
við.
Í viðtali við Stefán Hreiðars-
son, forstöðumann Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins, kom
fram að GRR hafi fengið sex ný
stöðugildi á fjárlögum og að frek-
ari aukning sé lögð til í fjárlaga-
frumvarpi. Tilvísunum til stofn-
unarinnar hafi fjölgað mikið og
séu þær nú 250 á ári. Engar upp-
lýsingar hafi hins vegar fengist
um það hversu margir bíði né hve
biðlistinn sé langur.
Guðrún segir sorglegt að þurfa
að berjast fyrir rétti barna sinna
og að hver vika í bið skipti gríðar-
lega miklu máli. hugrun@frettabladid.is
Skelfilegt að þurfa
að bíða svona lengi
Guðrún Guðmundsdóttir á þrjú börn á aldrinum 3 til 16 ára sem öll bíða þjón-
ustu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Stöðin fékk nýverið fjárveitingu
fyrir sex nýjum stöðugildum en þrátt fyrir það eru biðlistar mjög langir.
Lögreglan greiðir fyrir upplýsingar sem reynast nýtilegar við rannsókn:
Greiðir allt að 150 þúsund
GUÐRÚN GUÐMUDNSDÓTTIR ÁSAMT BÖRNUM SÍNUM Börn Guðrúnar bíða þjónustu
Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins en eldri börn þurfa að bíða lengur.
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík hefur
greitt fáeinum einstaklingum á
ári hverju fjárhæðir fyrir upp-
lýsingar sem reynst hafa réttar
og leitt hafa til þess að árangur
hefur náðst í að upplýsa fíkni-
efnamál, að sögn Ásgeirs Karls-
sonar, yfirmanns deildarinnar.
Þessar greiðslur fara aldrei
fram fyrr en sýnt er að upplýs-
ingarnar hafi komið til góða.
Í fréttatíma í morgunþættin-
um Ísland í bítið á Stöð 2 í gær-
morgun kom fram að þær upp-
hæðir sem lögreglan greiðir
almenningi geti farið allt upp í
150 þúsund krónur. Ásgeir sagði
við Fréttablaðið að heimild lög-
reglu almennt til að greiða fyrir
upplýsingar væri að finna í regl-
um um sérstakar rannsóknarað-
ferðir lögreglu sem gefnar hafi
verið út af ríkissaksóknara.
Upphæð greiðslu fari eftir
alvarleika máls, í tilvikum fíkni-
efnadeildar eftir því hve mikið
magn fíkniefna um væri að
ræða.
Spurður hvernig svona
greiðslur gangi fyrir sig segir
Ásgeir að fólk tilkynni lögreglu
á stundum að það búi yfir vitn-
eskju sem það sé tilbúið að
greina frá gegn greiðslu. Þá er
jafnan kannað hvort heimild sé
fyrir því að greiða viðkomandi
reynist upplýsingarnar árang-
ursríkar við rannsóknina. - jss
ÁSGEIR
KARLSSON
Það er skelfilegt að
þurfa að bíða svona
lengi og mikilvægt að börnin fái
greiningu sem fyrst til að fá úr
því skorið hvaða þjónustu þau
eiga rétt á í skólanum.“
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
FJÖGURRA BARNA MÓÐIR
SLYS Bíl var ekið út í sjó við
Geirsnef við Elliðaárnar um
hádegisbil í gær. Ökumaður og
farþegi komust úr bílnum af
sjálfsdáðum og sluppu án teljandi
meiðsla. Þetta er þriðji bíllinn
sem fer í sjóinn á þessum slóðum
síðan í febrúar á þessu ári.
Orsakir slyssins eru ekki
ljósar en að sögn vitna var bílnum
ekið ógætilega rétt áður en hann
fór í sjóinn. Samkvæmt lögreglu
nefndi eitt vitni að bíllinn hefði
mögulega ekið út í sjó til þess að
forðast að lenda á gangandi
vegfarendum á svæðinu.
„Það er spurning hvort borgin
eigi ekki bara að loka fyrir
umferð þarna, þetta er almenn-
ingssvæði,“ segir talsmaður
lögreglunnar í Reykjavík. - sþs
Bíl ekið út í sjó við Geirsnef:
Tvennt slapp án
teljandi meiðsla
DREGINN UPP Bílnum mun hafa verið ekið ógætilega áður en hann lenti í sjónum. Þetta
er þriðji bíllinn sem fer í sjóinn á þessum slóðum frá því í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Rannsókn langt komin
Lögreglan í Hafnarfirði, sem gerði 170
kannabisplöntur upptækar við húsleit
í Hafnarfirði á sunnudag, er langt
komin með rannsókn málsins. Að
sögn Kristjáns Ó. Guðnasonar, aðstoð-
aryfirlögregluþjóns í Hafnarfirði, telst
málið að mestu upplýst.
LÖGREGLUFRÉTTIR