Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 43
500 grömm Lýðheilsustöð hvetur fullorðið fólk til að borða fimm skammta eða 500 grömm af grænmeti, ávöxtum og safa á dag, þar af að minnsta kosti 200 grömm af grænmeti og 200 grömm af ávöxtum, auk kartaflna. Þetta þarf ekki að vera erfitt, fólk getur til dæmis fengið sér einn ávöxt eða glas af hreinum ávaxtasafa að morgni, salat með hádegismatnum, annan ávöxt síðdegis og tvær tegundir af grænmeti með kvöldmatnum. Fjölbreytnin skiptir öllu máli, og ekki eru þurrkað- ir ávextir síðri en þeir fersku. Ávextir Árið 1928 var skoski læknirinn Alexander Fleming að þvo óhreina glasabakka í rannsóknarstofu á St. Mary spítalanum í London, þegar hann tók eftir auðu svæði hringinn í kringum penicillium chrysogenum myglusvepp sem hafði sest í bakt- eríustíu. Áhugi Flemings vaknaði, og hann komst að þeirri niðurstöðu að sveppurinn dræpi bakteríurnar. Áður, eða árið 1896, hafði ungur franskur læknisfræðinemi, Ernest Duchesne, rannsakað áhrif myglu- sveppsins á bakteríur, en rann- sóknir hans náðu þó ekki lengra, og Fleming gafst líka upp á rann- sóknum sínum því hann taldi að penisillín gæti ekki verið nógu lengi í líkamanum til að vinna bug á bakteríum. Þó olli uppgötvun hans byltingu í læknisfræði þegar Howard Walter Florey og lið rannsóknarmanna við Oxford háskóla árið 1939 notuðu sveppinn til að drepa sýkla í mann- eskjum. Sérfræðingar notuðu pen- isillín til þess að bjarga þúsundum mannslífa í seinni heimstyrjöldinni, og kom lyfið á almennan markað árið 1944. Fleming fékk nóbels- verðlaunin í læknisfræði árið 1945, ásamt Howard Walter Florey og Ernst Boris Chain, sem fundu aðferð til að fjöldaframleiða lyfið. Saga penisillínsins Enginn vafi leikur á því að uppgötvun penisillínsins er ein sú markverðasta sem gerð hefur verið innan lyfja- geirans. Þótt penisillín ráði alls ekki við allar bakteríu- sýkingar, er það enn mest notaða sýklalyfið í heiminum, og án þess væru minni háttar aðgerðir enn áhættusamar. Penisillín er fjöldaframleitt í gríðarstórum kerum. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { líf og heilsa } ■■■■ Viðheldur fallegu brosi Kalk er líkamanum nauðsynlegt og fær hann það aðeins í gegnum fæðu. Langvarandi kalkskortur getur verið alvarlegur en hægt er að skorta kalk án þess að taka nokkuð eftir því. Eitt stærsta hlut- verk kalks í líkamanum er að viðhalda tönnum og beinum en vefir líkamans, taugakerfi og vöðvar þarfnast þess líka. Kalkskortur leiðir til beinþynn- ingar, auk þess sem það getur haft áhrif á blóð- þrýsting, ristilkrabbamein og fyrirtíðarspennu. Það sem færri vita er að D-vítamín er nauð- synlegt svo kalkið nýtist líkamanum, og því er mælt með að D-vítamín sé tekið sem fæðubótarefni þar sem oft er lítið af því í hefðbundinni fæðu. Sólarljós og lýsi færa líkamanum D-vítamín, en mjólkurvörur, spergilkál og spínat eru rík af kalki. Kalk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.