Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 55
MARKAÐURINN 18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR14
F Y R I R TÆ K I
Húsgagnaverslunin Ikea flutti vöruhús sitt
og verslun úr Holtagörðum í Reykjavík í
Kauptún í Garðabæ á fimmtudag í síðustu
viku. Langt er um liðið síðan rekstur Ikea
á Íslandi rúmaðist í einni lítilli deild í
verslun Hagkaupa. Hin nýja verslun Ikea,
sem var sérstaklega byggð fyrir fyrirtæk-
ið er á tveimur hæðum, og er hvorki meira
né minna en 20.600 fermetrar og stærsta
verslunarhúsnæði sem reist hefur verið
á Íslandi.
DEILD Í HAGKAUPUM
Rekstur Ikea hér á landi hófst árið 1981.
Þetta var tíunda landið sem Ikea opnaði
verslun í en áður hafði fyrirtækið dreift
úr sér um gjörvalla Skandinavíu og nokk-
ur Evrópulönd til viðbótar.
Fyrsta verslunin opnaði í litlu rými á
efri hæð Hagkaupa í Skeifunni en fluttist
nokkrum árum síðar undir Hús versl-
unarinnar gegnt Kringlunni. Þetta þótti
geysistórt rými en ekkert miðað við það
þegar Ikea fór í Holtagarða árið 1994. Þar
hafði stórmarkaðurinn Mikligarður verið
áður til húsa í um 9.000 fermetrum.
Þórarinn Ævarsson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Ikea, sem tók við af
Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni við flutn-
inginn, segir breytinguna mikla. Ikea
hafi eiginlega verið á undanþágu frá Ikea
enda Holtagarðar sniðnir sem vöruhús.
Þórarinn segir aðkomuna að
Holtagörðum og skort á bílastæðum hafa
verið helsta Akkilesarhæl Ikea. Í fyrra
voru viðskiptavinirnir tæplega tvær
milljónir talsins en búist er við að þeir
verði þrjár milljónir á þessu ári. Þakkar
hann það mikilli aukningu á bílastæðum
við nýja húsið. Svipuðu máli gegnir um
veltuna en hún var þrír milljarðar króna
á síðasta ári.
KLÆÐSKERASNIÐIÐ HÚS
Nýja húsnæðið er gert eftir grunnteikn-
ingu frá Ikea í Svíþjóð og þannig klæð-
skerasaumað fyrir reksturinn. Af þessu
leiðir að næstum allar verslanir Ikea úti
í hinum stóra heimi eru eins og versl-
unin í Kauptúni og verður upplifun við-
skiptavinar Ikea því nokkurn veginn sú
sama hér og í öðrum löndum, að sögn
Þórarins.
„Hugmyndin um Ikea er að leiða alla í
hring. Fyrst er farið í gegnum húsgagna-
deildina. Á leiðinni geta gestir sest niður,
fengið sér að borða og haldið áfram að
því loknu í gegnum smávörudeild og
lager. Verslunarhúsnæðið er sambæri-
legt að stærð og í öðrum löndum en
lagerinn er mismunandi. Ef við ákveðum
að stækka húsið þá verður það lagerinn
sem stækkar,“ segir Þórarinn og bendir
á að verslanirnar ytra séu allt upp undir
24.000 fermetrar. „Sýningarsvæðið í hús-
inu er fullkomið fyrir okkur og það mun
ekki breytast,“ segir hann.
Umtalsverður munur er á IKEA í
Holtagörðum og versluninni í Kauptúni
í Garðabæ. Sýningarsvæðið er talsvert
stærra. Þórarinn segir vöruúrval hafa
aukist um fjórðung í nýju versluninni auk
þess sem fleiri lausnir séu kynntar nú en
áður. „Í Holtagörðum gátum við sýnt sjö
eða átta mismunandi eldhús en nú getum
við sýnt allt að 18 fullbúin eldhús,“ segir
hann og leggur mikla áherslu á hversu
gott nýja verslunarhúsnæðið sé.
MATREITT Í ELDHÚSINU
Holtagörðum sýndi Ikea mismunandi
lausnir á einu heimili, fullbúnu rými með
herbergjum, eldhúsi og innanstokksmun-
um. „Hérna erum við með þrjú fullbúin
heimili sem vel má ímynda sér að einhver
búi í, sjónvarpið er í gangi og í fram-
tíðinni er stefnt að því að einhver eldi í
eldhúsunum,“ segir Þórarinn.
Þá er veitingastaðurinn umtalsvert
stærri en hann var í Holtagörðum. Fyrir
flutningana gátu 80 gestir setið við borð
í veitingarýminu en í Kauptúni eru
sæti fyrir 250 manns, sem gerir þetta
að stærsta veitingahúsi landsins. Engir
réttir eru dýrari en 490 krónur auk þess
sem stefnt er að því að bjóða léttvín til
sölu á vægu verði. Vonast er til að af því
verði um næstu helgi, að sögn Þórarins
Ævarssonar, framkvæmdastjóra Ikea.
ÚR VERSLUN IKEA Í nýrri verslun Ikea eru nokkrar
íbúðir til sýnis. Hugmyndin er að fá kokk til að elda í
einhverju þeirra fjölmörgu eldhúsa sem eru til sýnis í
versluninni á næstunni. MARKAÐURINN/VILHELM
Ikea er stærsta verslun landsins
Þetta ár er svo sannarlega stórt hjá Ikea á Íslandi. Ikea hefur verið með rekstur hér á landi í aldarfjórðung og flutti í nýtt og
geysistórt húsnæði í síðustu viku. Þá tók nýr framkvæmdastjóri við störfum á fimmtudag. Þórarinn Ævarsson, framkvæmda-
stjóri Ikea á Íslandi, fræddi Jón Aðalstein Bergsveinsson um nýju verslunina í Garðabæ.
STÆRSTA VERSLUN LANDSINS Ikea flutti í stærsta verslunarhúsnæði landsins undir lok síðustu viku. Rýmið er
tæplega þrefalt stærra, veitingastaðurinn sömuleiðis og bílastæðin þrefalt fleiri. Þá tók nýr framkvæmdastjóri við
rekstrinum. Viðskiptavinir Ikea ruglast ekki í ríminu þótt þeir fari utan landsteina því verslanir Ikea eru næstum eins
í öllum löndum. MARKAÐURINN/VILHELM