Fréttablaðið - 18.10.2006, Síða 20
20 18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR:
Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚAR RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson og Páll
Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og
þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér
rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
B
andaríska hagstofan skráði í gær 300 milljónasta borgara
Bandaríkjanna. Mannfjöldaþróun vestra og hér á Íslandi
hefur lengi fylgzt að; íbúar Íslands urðu 300.000 í byrj-
un þessa árs. Það hlutfall hefur þannig haldizt óbreytt að
Bandaríkjamenn séu réttum þúsund sinnum fleiri en við
Íslendingar.
En Ísland er nú eina Evrópuríkið sem á síðustu árum hefur haldið
í við íbúafjölgunina vestanhafs. Fæðingartíðni er svo lág í flestum
löndum Evrópu að útlit er fyrir að íbúum þeirra fækki umtalsvert á
næstu áratugum, jafnframt því sem æ stærri hluti íbúanna verður
á eftirlaunaaldri. Samkvæmt mannfjöldaspá Sameinuðu þjóðanna,
sem á síðustu áratugum hefur sýnt sig að vera býsna nákvæm, mun
jarðarbúum fjölga úr um það bil sex milljörðum nú í 9,1 milljarð árið
2050. Á sama tímabili er hins vegar útlit fyrir að íbúum Evrópuland-
anna 27, sem frá næstu áramótum fylla raðir Evrópusambandsins,
fækka úr 482 milljónum í 454 milljónir. Og það þrátt fyrir að gert sé
ráð fyrir stöðugum straumi innflytjenda til „gömlu Evrópu“.
Á sama tímabili er því spáð að íbúum Bandaríkjanna fjölgi í um
420 milljónir.
Samkvæmt spá sem frönsk alþjóðamálastofnun gerði árið 2003
mun meðalhagvöxtur í Evrópulöndunum verða að meðaltali um eitt
prósent á ári fram að miðri þessari öld, en yfir 2 prósent í Banda-
ríkjunum og að minnsta kosti 2,5 prósent í Kína. Í skýrslu sem fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins tók saman nýlega segir ennfrem-
ur, að í það stefni að opinberar skuldir í aðildarríkjunum vaxi úr 63
prósentum af vergri landsframleiðslu nú í um 200 prósent árið 2050,
ef stjórnvöld grípa ekki tafarlaust til aðgerða til að sporna við fjár-
lagahalla og draga úr ríkisábyrgðum á eftirlauna- og velferðarkerf-
um aðildarríkjanna.
Í Rússlandi og Japan er útlitið enn svartara. Íbúafjöldi Japans er
nú sagður hafa náð hámarki, 127 milljónum, og muni lækka niður
fyrir 100 milljónir fyrir miðja öldina. Þetta þýðir 30 milljónum færri
vinnufæra borgara á sama tíma og fjöldi fólks á eftirlaunaaldri nærri
því tvöfaldast. Í Rússlandi fækkar íbúum nú um 700.000 á ári. Opin-
berar mannfjöldaspár gera ráð fyrir að Rússar verði einhvers staðar
á bilinu 80 til 100 milljónir um miðja öldina, en þeir eru um 146 millj-
ónir nú.
Í niðurstöðu frönsku skýrslunnar sem vitnað er til hér að fram-
an er sú ályktun dregin að Evrópa stefni „hægt, en óafstýranlega að
feigðarósi“. Eflaust er þetta óþarflega svört lýsing, og aldrei að vita
nema Evrópumenn eigi eftir að taka við sér í barneignum. En þess-
ar mannfjöldaspár eru þörf áminning um að ekkert samfélag á sér
bjarta framtíð nema það viðhaldi heilbrigðri frjósemi. Að þessu leyt-
inu hefur „Nýi heimurinn“ ótvírætt forskot á þann gamla.
Bandaríkjamenn orðnir 300 milljónir:
Nýi heimurinn vex
sá gamli hrörnar
AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR
Fæðingartíðni er svo lág í flestum löndum Evrópu
að útlit er fyrir að íbúum þeirra fækki umtalsvert á
næstu áratugum.
Breyttur varnarsamningur við Bandaríkin var undirritaður í
Washington fyrir réttri viku.
Daginn eftir áttu íslenski forsætis-
ráðherrann, ásamt dómsmálaráð-
herranum fund með forstjóra
alríkislögreglunnar bandarísku
FBI, Robert S. Mueller. Að
fundinum loknum hafði Moggi
þetta eftir Geir H. Haarde:
„Dómsmálaráðherra, sem unnið
hefur af mikilli elju við að styrkja
lögregluna og landhelgisgæsluna,
hefur verið með sérstaka fundi,
m.a. með strandgæslunni og
heimavarnaráðuneytinu og allt er
þetta á grundvelli hins nýja
samkomulags.“ Blaðið hefur eftir
Birni Bjarnasyni: „Íslensk
stjórnvöld hafa átt samskipti við
alríkislögregluna í áratugi og sá
pólitíski grundvöllur sem nú er
kominn verður bara til þess að
treysta samstarfið enn frekar.“
Í umfjöllun Mogga um grein
Þórs Whitehead um „strangleyni-
lega öryggisþjónustudeild“ (Mbl.
23. 9. 06) kemur fram að meðal
gjafa frá bandarísku leyniþjónust-
unni voru „myndavélar með
sérstökum linsum,og hlustunar-
tæki af ýmsum stærðum og
gerðum, svo og nætursjónaukar“.
Í tilefni af undirritun hins
breytta varnarsamnings sendi
Þjóðarhreyfingin – með lýðræði frá
sér ályktun. En þeir, sem kunna að
hlera, kunna líka að þagga og þar
sem enginn fjölmiðill hefur fengist
til að birta ályktunina í heild þykir
mér rétt að hún komi hér fyrir
almenningssjónir:
„Þjóðarhreyfingin - með lýðræði
minnir á, að þótt varnarsamstarfi
Íslands og Bandaríkjanna 1951
væri í fyrstu skipað með bráða-
birgðalögum, var varnarsamning-
urinn að sjálfsögðu lagður fyrir
Alþingi til umræðu og endanlegrar
samþykktar. Þjóðarhreyfingin
telur einsýnt að sama hátt hefði átt
að hafa á við meiriháttar breytingu
á samningnum, eins og nú hefur
verið undirrituð í Washington af
ráðherrum í ríkisstjórninni án
umboðs frá Alþingi.
Forystumenn stjórnarflokkanna
endurtaka hér sömu vinnubrögðin
og þeir viðhöfðu þegar nafn
Íslands var dregið inn í stríðsrekst-
ur í Írak með því að skipa Íslandi á
lista hinna vígfúsu þjóða gegn
vilja allt að 85% þjóðarinnar, án
þess samráðs við utanríkismála-
nefnd alþingis sem þingsköp mæla
fyrir um, án nokkurs umboðs frá
þinginu og að þjóðinni gersamlega
forspurðri.
Þjóðarhreyfingin mótmælir
þeirri leynd sem hvílir yfir stórum
hluta samningsins, sem gerir
varnir Íslands og öryggismál að
einkamáli tveggja eða þriggja
ráðherra og embættismanna
bandarískra hernaðar- og lögreglu-
yfirvalda.
Þjóðarhreyfingin mótmælir því
einnig að í milliríkjasamningi af
þessu tagi sé að finna skuldbinding-
ar um að Alþingi komi á með lögum
leynilegum stofnunum, sem frá
upphafi er ætlað að starfa náið með
bandarískum stofnunum að
greiningu mála eins og „landráða-
starfsemi“ og „starfsemi sem
beinist gegn stjórnskipulagi
ríkisins“. Þetta býður heim
pólitískum ofsóknum af því tagi
sem viðgengust á tímum kalda
stríðsins. Þjóðarhreyfingin telur að
Alþingi beri að meta þörfina á
starfsemi slíkra stofnana út frá
hagsmunum Íslands sem fullvalda
ríkis einvörðungu og telur að
samstarfi við sambærilegar
stofnanir erlendis beri að skipa
eftir eðli máls hverju sinni, án
sérstakra lagafyrirmæla fyrirfram
um náið samstarf við bandaríska
sendiráðið og bandarískar leyni-
þjónustur eða hernaðaryfirvöld.
Þjóðarhreyfingin telur að með
samningi þessum hafi verið stigið
stórt óheillaskref til framsals
íslensks valds í hendur stofnana
þess stórveldis sem um þessar
mundir er talið helsti ófriðarvaldur
í heiminum samkvæmt nýlegum
könnunum virtra bandarískra
stofnana á viðhorfum til Bandaríkj-
anna meðal almennings um allan
heim, og varar sérstaklega við því
að tengja íslensku Landhelgisgæsl-
una hernaðarvél Bandaríkjanna.
Þjóðarhreyfingin telur öryggi
íslenskrar þjóðar best borgið með
vinsamlegum samskiptum Íslands
og Bandaríkjanna sem jafnrétt-
hárra ríkja. Það er besta vörn
Íslands í „stríðinu gegn hryðju-
verkum“.
Þjóðarhreyfingin tekur því
undir þá skoðun tveggja fyrrver-
andi utanríkisráðherra, þeirra Jóns
Baldvins Hannibalssonar og
Davíðs Oddssonar, að við þessi
tímamót hefði átt að nýta uppsagn-
arákvæði varnarsamningsins við
Bandaríkin og treysta á þá vernd
sem aðild að NATO veitir með því
að árás á hvert eitt aðildarríkja
þess telst árás á þau öll.
Þjóðarhreyfingin skorar því á
núverandi stjórnarandstöðuflokka
að lýsa því yfir nú þegar, að myndi
þeir ríkisstjórn eftir kosningar að
vori, verði varnarsamningnum
sagt upp með það fyrir augum að
sambúð Íslands og Bandaríkjanna
komist í eðlilegt horf svo sem
hæfir sambandi tveggja sjálf-
stæðra og fullvalda ríkja.“
Að hlera – og þagga
Nýr varnarsamningur
UMRÆÐAN
Hleranir
Umræður síðustu daga og vikna um atburði kalda stríðsins og síðan grunsemdir um
símahleranir innan utanríkisráðuneytisins
hafa borið þess greinileg merki, að sannleiks-
ástin er ekki alltaf höfð að leiðarljósi. Eitt
dæmi um það er grein eftir Árna Pál Árnason.
frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar,
hér í Fréttablaðinu hinn 17. október.
Frambjóðandinn ber mig ranglega þeim sökum að
vilja ekki ræða mál tengd kalda stríðinu eða hleranir.
Um langt árabil hef ég hvatt til þess, að allt verði upp-
lýst varðandi þessi mál. Ég var eindreginn talsmaður
þess síðastliðið vor, að alþingi samþykkti ályktun um
skipan sérstakrar nefndar til að kanna skjöl frá tímum
kalda stríðsins og tryggja aðgang að þeim. Ég studdi
það einnig eindregið við upphaf þessa þings, að þessi
nefnd fengi lögbundið umboð til að vinna starf sitt. Ég
fagna því, að Þorgerður K. Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra skuli hafa úrskurðað á þann veg, að
þjóðskjalaverði beri að taka beiðni Kjartans Ólafsson-
ar um aðgang að hugsanlegum gögnum um hann til
endurskoðunar. Ég tel einnig skynsamlegt og heppi-
legt, að Bogi Nilsson ríkissaksóknari skuli hafa falið
Ólafi Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, að
rannsaka á grundvelli laga um meðferð opin-
berra mála, hvað býr að baki orðum Jóns Bald-
vins Hannibalssonar og Árna Páls Árnasonar
um, að símar þeirra hafi verið hleraðir, þegar
þeir störfuðu í utanríkisráðuneytinu.
Ég tel þetta allt stuðla að því að upplýsa
mál og skýra og hafna því algjörlega sem
ósönnum áburði, að ég eða aðrir sjálfstæðis-
menn hafi reynt að bregða fæti fyrir, að þessi
mál séu rædd og upplýst.
Ef frambjóðandinn telur, að ég vilji halda
hlífiskildi yfir einhverjum, sem brutu á rétti hans með
ólögmætu athæfi, er enn verið að gera mér upp skoð-
anir og það algjörlega að tilefnislausu. Að þetta skuli
gert í grein, þar sem frambjóðandinn vill sérstaklega
draga fram eigin sannleiksást gerir málflutninginn
grátbroslegan.
Þetta eru ekki góð fyrstu skref á stjórnmálabraut,
ef frambjóðandinn vill, að mark tekið sé á orðum hans.
Ég hef fært fyrir því rök á öðrum vettvangi, að þrátt
fyrir lyktir kalda stríðsins sé enn haldið dauðahaldi í
ýmsar umræðuvenjur þess tíma – mér sýnist Árni
Páll Árnason gera það með dylgjum og hreinum upp-
spuna í þessari makalausu grein sinni.
Höfundur er dóms- og kirkjumálaráðherra.
Sannleikur í stað uppspuna
BJÖRN
BJARNASON
ÓLAFUR HANNIBALSSON
Í DAG |
„Þetta býður heim pólitísk-
um ofsóknum af því tagi sem
viðgengust á tímum kalda
stríðsins.“
Keppt við sjálfan sig
Gríðarleg velta hefur verið á mál-
verkamarkaði undanfarið og hefur
sala á verkum íslensku meistaranna
á uppboðum í Kaupmannahöfn
og í Reykjavík undanfarinn hálfan
mánuð verið yfir 150 milljónum. Ekki
er þó víst að öll kaupin hafi verið
jafn skynsöm. Á uppboði hjá Bruun
Rasmussen í Kaupmannahöfn í síð-
ustu viku sat þekktur
íslenskur athafna-
maður og bauð í litla
og ekki tilþrifamikla
mynd eftir Kjarval.
Alltaf varð einhver
til að bjóða á
móti athafna-
manninum sem
ekki gaf sig og svo
fór að myndin var
honum slegin á 33 þúsund krónur
danskar. Ásóknin í myndina vakti
furðu með manninum eða allt þar
til rifjaðist upp fyrir honum að sjálfur
hafði hann lagt inn forboð í myndina
sem myndi hætta í 32 þúsundum
króna.
Allt plögg vel þegið
Algjört auglýsingabann er við lýði
meðal prófkjörskandídata Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Margir hafa glott við tönn við þess-
ar fregnir, því meðal þeirra sem
keppa um sæti á lista er tónlistar-
maðurinn Jakob Frímann Magn-
ússon. Jakob Frímann tók þátt
í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík fyrir síðustu
kosningar og auglýsti þá
gríðarlega. Var um það
talað eftir prófkjörið að líklega hefði
þetta verið dýrasta 10. sæti íslenskra
prófkjöra, en hann stefndi nokkuð
hærra; á 2. til 3. sæti.
...og líka umfjallanir um
hleranir
Árni Páll Árnason er einn þeirra sem
keppist um sæti ofarlega á lista
Samfylkingarinnar í Kraganum. Sem
lítið þekktur frambjóðandi hefur
hann komist vel í kring um
auglýsingabannið með
nokkuð stöðugri umfjöllun
fjölmiðla nú um hleran-
ir. Spurning er hvort aðrir
frambjóðendur sitji nú heima
við og eigi þess enga ósk
heitari en að þeirra símar
hafi líka verið hleraðir.
svanborg@frettabladid.is
��
Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogur • Sími 585 0500 • www.skola.is
Opið virka daga kl. 9-18 og á laugardögum kl. 10-14
Nýtt Dalegarn prjónablað
Prjónauppskriftir
með íslenskum
leiðbeiningum
H
ö
n
n
u
n
O
d
d
i
V
O
_
C
0
8
3
7