Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.26 13.13 17.58
Akureyri 8.16 12.58 17.37
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
18. október, 291. dagur
ársins 2006.
Dagmar Björnsdóttir er nemi í Verk-
efnastjórnun - leiðtogaþjálfun hjá End-
urmenntun Háskóla Íslands. Hún segir
að námið nýtist vel í vinnunni.
Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er eins
árs nám á háskólastigi. „Þetta eru tólf ein-
ingar og þeir sem vilja halda áfram geta
fengið þær metnar inn í frekara háskóla-
nám,“ segir Dagmar.
Dagmar vinnur hjá Visa Íslandi við erlend-
ar leiðréttingar og er staðgengill deildar-
stjóra. Hana langaði til þess að fara í eitt-
hvert háskólanám sem hún gæti verið í
samhliða vinnunni. „Það er alltaf gott að
bæta við sig. Ég er ekki með háskólapróf
og langaði til þess að bæta við mig ein-
hverju á háskólastigi. Þetta er mjög gott
nám með tilliti til vinnunnar og vinnuveit-
endur mínir eru mjög ánægðir með að ég
skuli vera í þessu og styðja mig og styrkja,“
segir hún.
Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er
kennd frá byrjun september til loka mars.
„Þetta er mjög þægilegt því það er bara
kennt í september, október og nóvember og
janúar, febrúar og mars. Það er kennt alla
mánudaga frá fjögur til átta og annan hvern
þriðjudag. Auðvitað er þetta tölverð vinna
en alveg viðráðanlegt,“ segir Dagmar.
Um fjörutíu manns eru í hópnum í vetur
með Dagmar. „Margir af þeim sem eru með
mér í bekk eru í stjórnunarstöðum en þetta
nám nýtist manni sama hvað maður er að
gera,“ segir hún.
Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er
kennd í lotum svo farið er í eitt fag í einu.
„Við erum núna búin með fyrsta fagið af
fjórum á þessari önn en það var verkefna-
stjórnun. Við fórum meðal annars í stefnu-
mótun fyrir fyrirtæki og það var mjög gott
að læra fræðin sem liggja á bak við hana.
Mér líst bara vel á þetta nám og finnst það
mjög skemmtilegt,“ segir Dagmar.
emilia@frettabladid.is
Gott að bæta við sig
Dagmar Björnsdóttir er ánægð með námið sem hún er í. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Að auka færni vinnandi fólks
OPIÐ MÁLÞING UM NÁMS-OG STARFSRÁÐGJÖF ER Á
MORGUN Í NORRÆNA HÚSINU KLUKKAN 13 TIL 16.30.
„Ég mun leggja áherslu á að kynna nýjar
leiðir til náms sem fólki á vinnumarkað-
inum stendur til boða,“ segir Ingibjörg
E. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Hún er ein af mörgum fyrirlesurum á
málþinginu í Norræna húsinu. Ingibjörg
bendir á að í síðustu kjarasamningum
hafi verið ákvæði um náms-og starfsráð-
gjöf á vinnustöðum og loforð um styrki
til handa þeim sem nýti sér starfstengt
nám. Nú sé verið að ýta þeirri starfsemi
í gang. „Markmiðið er að það fólk á
vinnumarkaðnum sem af einhverjum
ástæðum hætti í skóla á sínum tíma eigi
kost á að auka færni sína og afla sér viðbótarþekkingar.
Þetta gerbreytir stöðu vinnandi fólks og þetta breytir líka
stöðu þeirra sem sinna náms-og starfsráðgjöf því nú eiga
þeir að fara út í fyrirtækin í stað þess að vera einungis til
viðtals þegar einhver leitar til þeirra. Þeir þurfa að setja
sig inn í ólíkar aðstæður en starf þeirra mun koma bæði
fyrirtækjunum og einstaklingum til góða.“
Ingibjörg E. Guð-
mundsdóttir er ein
þeirra sem heldur
erindi á málþinginu.
Vetrardekkin eru næstu mál
á dagskrá bifreiðaeigenda.
Nagladekk eru leyfð frá 1.
nóvember ár hvert. Upplýsingar
um vetrardekk og undirbúning
fyrir vetrarakstur er að finna á
www.fib.is
Grænland er kannski ekki það
land sem Íslendingum dettur í
hug þegar skreppa á í helgarferð.
Það er alltaf gaman að gera
eitthvað nýtt og því tilvalið að
skjótast til Grænlands, klæða
sig vel og njóta stórbrotinnar
náttúru í friði og ró. Flugfélag
Íslands býður upp á reglulegar
ferðir til Narsarsuaq og Kulusuk
á Grænlandi.
Polar Radio er samnorrænn
hópur þáttargerðarmana sem
gengst fyrir því að kenna ungl-
ingum að vinna heimildaþætti
og hljóðfrásagnir fyrir útvarp. Í
byrjun október opnaði í Norræna
húsinu sýning á afrakstri þess
starfs, í myndum en þó umfram
allt hljóðum. Sýningin er opin
út október alla virka daga frá
kl.9.00-17.00 og frá kl.12.00-
17.00 um helgar. sjá nánari
upplýsingar www.nordice.is
ALLT HITT
[ BÍLAR NÁM FERÐIR ]
ÁHERSLA Á VELLÍÐAN
Í SKÓLA
Hin filippseyska Fe
Galicia Isorena er að
hefja fjórða vetur sinn
sem íslenskukennari
NÁM 6
ENDAR Í 600
HESTÖFLUM
Gerbreyttur
Grand Cherokee
jeppi
BÍLAR 4