Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 34
MARKAÐURINN 18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Ítölsku bankarnir Banco Populare
Italiana (BPI) og Banco Populare
di Verona e Novara hafa ákveðið
að sameinast. Með þessu verður
til þriðji stærsti banki á Ítalíu
en markaðsvirði hans er um 15
milljarðar evra, jafnvirði tæp-
lega 1.300 milljarða íslenskra
króna.
Að sögn breska ríkisútvarps-
ins, BBC, hefur BPI leitað eftir
því að sameinast öðrum banka
síðan samrunaferli bankans við
Banco Antonveneta rann út í
sandinn á síðasta ári.
BPI varð fyrir skakkaföll-
um í kjölfarið en þá komst upp
að stjórn bankans hefði ásamt
ítalska seðlabankanum reynt að
hindra samkeppni frá hollenska
bankanum ABN Amro í Banco
Antonveneta og leiddi það til þess
að bankastjórar BPI og ítalska
seðlabankans urðu að segja af
sér.
Mario Draghi, seðlabanka-
stjóri Ítalíu, er sagður fylgjandi
samruna fjármálastofnana á
Ítalíu og hefur stutt samruna-
ferlið í hvítvetna.
Í sumar varð til stærsti banki
Ítalíu með sameiningu Banca
Intesa, annars stærsta banka
Ítalíu, og Sanpaolo-IMI, þriðja
stærsta bankans. Hluthafar eiga
þó enn eftir að samþykkja sam-
runann en líklegt þykir að af því
verði í desember. - jab
TVEIR SEÐLABANKASTJÓRAR Mario
Draghi, seðlabankastjóri Ítalíu, ásamt Jean-
Claude Trichet, bankastjóra evrópska seðla-
bankans. MARKAÐURINN/AFP
Bankar sameinast
Jane Sheperdson, yfirfram-
kvæmdastjóri tískuvörukeðj-
unnar Topshop, sagði upp störf-
um fyrr í þessum mánuði. Ýjað
hefur verið að því að ástæðan
fyrir uppsögninni sé óánægja
hennar með samning Topshop
við ofurfyrirsætuna Kate Moss.
Hún vísar þessu hins vegar á
bug og segir hafa verið tímabært
að hugsa sér til hreyfings.
Sheperdson er sögð heilinn
á bak við vinsældir Topshop
síðastliðin ár og hefur gjarnan
verið kölluð mikilvægasta konan
í breskum tískuheimi. Hún
hóf störf hjá Topshop fyrir 18
árum en tók við stöðu yfirfram-
kvæmdastjóra árið 1998.
Topshop-keðjan heyrir undir
Arcadia Group, sem er í eigu
breska auðkýfingsins Philips
Green en hann átti hugmyndina
að því að ganga til samninga við
Moss. Hlutverk hennar verður
að hanna nýja fata- og fylgihluta-
línu fyrir tískuvörukeðjuna.
Kate Moss tapaði stórum
samningum við nokkur tískufyr-
irtæki fyrir ári eftir að breska
blaðið Daily Mirror birti myndir
af henni neyta kókaíns í hljóðveri
í Lundúnum í Bretlandi á meðan
unnusti hennar, ólátabelgurinn
Pete Doherty, var við upptökur.
Í kjölfarið fór hún í afeitrun til
Bandaríkjanna og hefur orðstír
hennar vaxið aftur jafnt og þétt.
- jab
NÝR HÖNNUÐUR HJÁ TOPSHOP Ýjað
hefur verið að því að samningur Kate Moss
við Topshop hafi orðið til þess að yfir-
framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði upp.
Hér er Kate Moss ásamt unnusta sínum
Doherty á Glastonbury-tónlistarhátíðinni í
Bretlandi í fyrra. MARKAÐURINN/GETTY IMAGES
Topshop missir tískudrottningu
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Kauphallir á Ítalíu og í Þýskalandi hafa gert með
sér samkomulag um að gera sameiginlegt yfir-
tökutilboð í samevrópska hlutabréfamarkaðinn
Euronext. Verði af yfirtöku skáka markaðirnir
tilboði NYSE Group, sem rekur kauphöllina í New
York í Bandaríkjunum, í evrópska markaðinn.
Deutsche Börse hefur um nokkurn tíma horft
til þess að renna saman við aðrar kauphallir í
Evrópu, þar á meðal kauphöllina í Lundúnum (LSE)
í Bretlandi og Euronext. Þýska kauphöllin gerði
yfirtökutilboð í Euronext, sem rekur kauphallir í
París í Frakklandi, Lissabon í Portúgal, í Belgíu og
Amsterdam í Hollandi, um mitt sumar en stjórn
Euronext hafnaði því. Þá gerði hún sömuleiðis yfir-
tökutilboð í alla hluti LSE á síðasta ári en eigendur
hennar ákváðu að taka því ekki.
Um ár er síðan fyrst var tæpt á því að stjórnir
þýsku og ítölsku kauphallanna hefðu hug á að sam-
einast öðrum kauphöllum. Hreyfing komst hins
vegar ekki á sameiginlegar tilraunir í þá átt fyrr
en Nasdaq gerði yfirtökutilboð í LSE og tryggði sér
fjórðung bréfa í markaðnum eftir að eigendur hans
felldu yfirtökutilboðið.
NYSE Group hefur gert 10 milljarða dala, eða
690 milljarða króna, yfirtökutilboð í Euronext og
hefur verið skrifað undir yfirlýsingu um samruna.
Hluthafar Euronext eiga þó eftir að samþykkja
samrunann.
TVÆR KAUPHALLIR Kauphallir í Þýskalandi og á Ítalíu hafa sam-
einast um að gera yfirtökutilboð í samevrópska hlutabréfamarkað-
inn Euronext. MARKAÐURINN/AFP
Kauphallir horfa
enn til yfirtöku
Líkur þykja á að kauphallir í Þýskalandi og á Ítalíu reyni í
sameiningu að bjóða í Euronext.
Indverska hlutabréfavísitalan
Sensex hefur hækkað um 57 pró-
sent á árinu þrátt fyrir snarpa
dýfu um mitt þetta ár. Vísitalan
nálgast nú 13.000 stiga markið og
hefur aldrei verið hærri.
Vísitalan hækkaði um 1,5 pró-
sent á mánudag og endaði loka-
gengi hennar í 12.927 stigum.
Reyndar fór hún í 12.953,76 stig
um miðjan dag í gær og er það
hæsta gildi vísitölunnar frá upp-
hafi.
Gengi bréfa í indverska rík-
isolíu- og gasfyrirtækinu Oil
and Natural Gas Corporation og
hátæknifyrirtækjum Infosys og
Tata Consultancy hækkuðu mest.
Ástæðan fyrir þessu er bjartsýni
fjárfesta á að fyrirtæki þar í
landi skili góðri afkomu á öðrum
fjórðungi ársins og að hagvöxtur
verði áfram mikill.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
reiknar með því að hagvöxtur á
Indlandi verði um 8,3 prósent á
árinu en það er 3,2 prósentustig-
um yfir meðallagi á heimsvísu.
Hlutabréfavísitalan féll
snögglega í indversku kauphöll-
inni í júní og fór niður fyrir 9.000
stiga markið. Hún hefur jafnað
sig jafnt og þétt, rauf 12.000 stiga
múrinn við lok síðasta mánaðar
og virðist fátt benda til að hún sé
á niðurleið á nýjan leik. - jab
FYLGST MEÐ VÍSITÖLUNNI Verðbréfa-
miðlarar á Indlandi hafa fylgst grannt með
breytingum á Sensex hlutabréfavísitölunni
en hún kemst í methæðir á svo til hverjum
degi. MARKAÐURINN/AFP
Indverska vísitalan slær nýtt met
Þýski þróunarsjóðurinn KfW, sem
hér á landi er einna þekktast-
ur fyrir útgáfu á svokölluðum
Jöklabréfum sem hefur áhrif á
gengi krónunnar, er sagður hafa
hug á að kaupa rúman 7,5 prósenta
hlut í EADS, móðurfélagi flugvéla-
framleiðandans Airbus. Seljandi
bréfanna er þýski bifreiðafram-
leiðandinn DaimlerChrysler sem
á 22,5 prósent bréfa í EADS.
Kaupverð nemur um 130 millj-
örðum íslenskra króna.
Viðskipti með bréf í EADS eru
næstum fullfrágengin en þróun-
arsjóðurinn mun aðeins halda í
bréfin þar til annar þýskur fjár-
festir lýsir yfir áhuga á því að
kaupa þau.
Talsverður áhugi er á bréf-
um í EADS í Þýskalandi. Þýska
vikuritið Der Spiegel segir 16
ríki þar í landi vilja sneið af
kökunni og hefur eftir borgar-
stjóra Hamborgar í Þýskalandi
um síðustu helgi að borgaryfir-
völd hefðu sömuleiðis áhuga á að
kaupa hlut í EADS.
Þá segir blaðið að tilgangur-
inn með því að halda bréfunum í
þýskum höndum sé sá að mögu-
lega verði hægt að koma í veg
fyrir að Airbus segi upp starfs-
fólki sínu í Þýskalandi.
Gengi bréfa í EADS hafa fallið
um þriðjung á árinu í kjölfar þess
að tilkynnt var um tafir á afhend-
ingu A380 risaþotna frá flugvéla-
framleiðandanum Airbus, nú síð-
ast undir lok september. - jab
VIÐ ÞOTU FRÁ AIRBUS Michael Glos, fjár-
málaráðherra Þýskalands, vill að Þjóðverjar
auki við hlut sinn í EADS, móðurfélagi
flugvélaframleiðandans Airbus. Hann segir
eignarhlut KfW verða í eigu þróunarsjóðsins
í stuttan tíma. MARKAÐURINN/AFP
Þróunarsjóður
kaupir í EADS
Hagnaður bandaríska leikfangafram-
leiðandans Mattel nam 239 milljónum
Bandaríkjadala á þriðja fjórðungi árs-
ins. Þetta jafngildir rúmum 16,2 millj-
örðum króna og er nokkuð umfram
væntingar. Helsta ástæðan er aukin
sala á Barbie-brúðum og afmælis-
útgáfu af brúðu úr barnaþáttunum
Sesame Street.
Þetta er enn fremur 6,1 prósents
aukning frá sama tíma í fyrra.
Mattel setti fyrir nokkru á markað
nýja línu af Barbie-brúðum og kepp-
ir hún um hylli kaupenda við Bratz-
brúður frá einum helsta keppinauti
Mattel, MGA Entertainment. Þetta
er þriðji fjórðungurinn í röð sem
sala eykst á Barbie-brúðum.- jab
Mattel græðir á Barbie-brúðum
BARBIE-
BRÚÐA
Hagnaður
Mattel, sem
framleiðir Barbie-
bruður, jókst um
6,1 prósent á
milli ára.