Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 42
■■■■ { líf og heilsa} ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
Samheitalyf má kalla að sé endurgerð lyfja sem þegar
hafa verið markaðssett en hafa glatað einkaleyfa-
verndinni sem ný lyf fá eftir að þau koma fyrst á
markað.
Lyfið sem apað er eftir nefnist frumlyf. Það er oft
töluvert dýrara meðan á einkaleyfistímanum stendur
enda búið að leggja í mikinn kostnað við þróun lyfs-
ins. Þá bera læknar oft meira traust til frumlyfsins þar
sem framleiðandi þess hefur rannsakað það mest, auk
þess sem lyfið er þá þegar orðið þekkt vörumerki.
Samheitalyf innihalda sama virka efnið og frum-
lyfin en eru framleidd af öðrum. Þannig eru sam-
heitalyfin alla jafna sambærileg frumlyfjunum, bæði
hvað varðar innihald og virkni. Dæmi um þetta er
frumlyfið Panodil, sem er vel þekkt verkjalyf, en það
er frumlyf og svo íslenska eftirlíkingin Paratabs, sem
er samheitalyf. Bæði innihalda virka efnið paraset-
amól.
En svo eru líka dæmi um samheitalyf sem hafa
svo ólíka virkni að þau verða ósambærileg. Á upplýs-
ingavefnum Doktor.is er greint frá einu slíku en það
varðar lyfin Tegretol Retard og Karbamazepin. „Þar
sem fyrra lyfið leysist hægar upp og gefur jafnari
þéttni í blóði. Abboticin Novum fer með öðrum hætti
inn í blóðrásina en Erýbas,“ segir þar. Svo kemur fyrir
að fólk telur sig finna mun á því hvernig sambærileg
lyf virka. „Þetta er oftast útskýrt sem ímyndun og er
það vafalaust oft,“ segir doktor.is þótt reyndar kunni
að vera viss lyfjafræðileg rök fyrir slíkum mun. „Hið
virka efni lyfsins er oft blanda tveggja sameinda sem
eru spegilmynd hvor af annarri. Oft er verkun þessara
tveggja mynda lyfsins ólík. Lyfjasameindir sambæri-
legra lyfja eru oftast framleiddar með ólíkum aðferð-
um. Þetta getur valdið því að hlutfall þessara speg-
ilmynda sé breytilegt í lyfjunum tveimur. Stundum
eru líka efni í töflum sem binda þær saman eða lita
þær, og þessi efni geta hugsanlega breytt einhverju í
verkun lyfsins. Með aukinni nákvæmni í framleiðslu
verður þessi munur þó sífellt minni.“
Þá er rétt að árétta að bæði frum- og samheita-
lyf eru framleidd af virtum lyfjafyrirtækjum og þurfa
einnig að standast ríkar kröfur og eftirlit. Enda er
staðan þannig að á markaði er fjöldi lyfja þar sem
frumlyfið er orðið ófáanlegt og bara hægt að fá lyfið
sem samheitalyf. Í langflestum tilfellum skiptir því
ekki nokkru máli hvort sjúklingur tekur inn frumlyf
eða samheitalyf.
Hvað eru samheitalyf?
Panodil er svokallað frumlyf, en Paratabs samheitalyf. Bæði
innihalda virka verkjalyfið parasetamól.
Í sumar ógilti Samkeppniseftirlitið
samruna Lyfja og heilsu og Lyfja-
vers. Ákvörðuninni var skotið til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála
og er samkvæmt heimildum ákvörð-
unar að vænta í málinu á næstu
dögum.
Lyf og heilsa er önnur tveggja
stórra lyfsölukeðja sem Samkeppn-
iseftirlitið hefur komist að raun um
að fari saman með markaðsráðandi
stöðu. Hin keðjan er Lyfja.
Ógilt voru kaup DAC ehf., sem er
í sömu fyrirtækjasamstæðu og Lyf
og heilsa, á Lyfjaveri. Bæði DAC og
Lyfjaver annast innflutning lyfja,
heildsölu og lyfjaskömmtun fyrir
einstaka sjúklinga og sjúklinga á
stofnunum. Að óbreyttu hefði skað-
legra áhrifa samrunans sem hér um
ræðir aðallega gætt á markaði fyrir
smásölu lyfja og á markaði fyrir
svokallaða skömmtun lyfja fyrir
sjúklinga.
„Mikil samþjöppun hefur orðið á
lyfsölumarkaðnum á síðustu árum.
Samruninn hefði leitt til þess að tvær
lyfsölukeðjur, Lyf og heilsa annars
vegar og Lyfja hf. hins vegar, hefðu
rúmlega fjóra fimmtu hluta allr-
ar lyfjasmásölu í landinu. Að mati
Samkeppniseftirlitsins deila Lyf og
heilsa sameiginlegri markaðsráðandi
stöðu með Lyfju á smásölumarkaði
lyfja. Það er mat Samkeppniseftir-
litsins að sameiginleg markaðsráð-
andi staða Lyfja og heilsu og Lyfju
eins og henni er lýst í ákvörðun
eftirlitsins geri fyrirtækjunum kleift
að samhæfa hegðun sína á mark-
aðnum án þess að þurfa að taka til-
lit til keppinauta eða neytenda. Eru
fyrirtækin þannig í stöðu til þess að
takmarka samkeppni og hækka verð.
Ef umræddur samruni hefði geng-
ið eftir hefði þessi staða orðið enn
alvarlegri í samkeppnislegu tilliti.
Hefði samruninn því haft í för með
sér umtalsverða röskun á samkeppni
og skaðað hag þeirra sem þurfa á
lyfjum að halda,“ segir í ákvörðun-
inni frá 11. júlí síðastliðnum.
Jafnframt kemur fram í ákvörð-
un Samkeppniseftirlitsins að sá sér-
staki markaður sem felist í að selja
og pakka lyfjum í notkunarskammta
bæði fyrir einstaka sjúklinga og fyrir
sjúklinga á stofnunum sé stækk-
andi. Ársviðskipti á honum eru sögð
nema nokkrum hundruðum milljóna
króna.
Nokkurrar óánægju gætir meðal
smærri fyrirtækja á lyfjamarkaði
með þá túlkun að Lyfja og Lyf og
heilsa fari saman með markaðsráð-
andi hlut. Engin ákvæði laga eru
sögð verja smærri fyrirtæki gegn
ofureflinu sem í lyfjakeðjunum felist
og þeim frjálst að opna verslanir
ofan í smærri apótekum, en þar séu
menn í raun lokaðir í sínum rekstri
og megi ekki selja hann til keðj-
anna vegna mats eftirlitsins á stöðu
þeirra.
Keðjurnar mega ekki kaupa, en
þeim er heimilaður svokallaður innri
vöxtur, sem þýðir að þær mega bæta
við sölustöðum að vild.
Ákvörðunar beðið frá
áfrýjunarnefnd
Stóru keðjurnar mega ekki kaupa smærri fyrirtæki.
Í verslun Lyfja og heilsu. Í sumar var ógiltur samruni Lyfja og heilsu og Lyfjavers á þeim grundvelli að hann yrði skaðlegur samkeppni á sviði
lyfjasölu í notkunarskömmtum.
Fæst í Jurtaapótekinu á Laugavegi
2, og inniheldur ekki lækningajurtir
heldur spírúlínu, og er full af járni,
amínósýrum, byggblöðum, steinselju,
rauðrófum og grænu þangi. Allt eru
þetta jurtir sem eru mjög ríkar af
blaðgrænu, en að neyta hennar er
rétt eins og að taka inn súrefni og
gefur manni kraft og byggir upp
ónæmiskerfið. Græna bomban er
til í duft- og pilluformi og það er
hægt að gera te úr henni eða setja
út í safa.
Græna bomban