Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 58
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
17MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
JÓHANN BENEDIKTSSON hefur hafið störf
á markaðsdeild Icelandair sem vöru-
merkjastjóri, sem er
nýtt starf innan fyr-
irtækisins. Jóhann
mun vera ábyrgur
fyrir vörumerkinu
Icelandair og notkun
þess ásamt skipu-
lagningu á markaðs-
starfi Icelandair á
milli svæða, deilda
og auglýsinga- og birtingafyrirtækja
sem Icelandair er í samstarfi við.
Jóhann hefur nýlega lokið M.Sc. námi
í alþjóða markaðsfræði og stjórnun við
Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn
(CBS).
BJARNI BIRKIR Harðarson hefur verið
ráðinn til Icelandair í Skandinavíu í
stöðu sölustjóra Icelandair í Noregi.
Bjarni starfaði á
skrifstofu Icelandair
í Bretlandi 2005 og
vann að sérverkefn-
um fyrir Icelandair
í Skandinavíu í
byrjun árs 2006.
Bjarni hefur B.S.
og Mastersgráðu
í viðskiptahagfræði og alþjóða við-
skiptahagfræði frá Álaborgarháskóla
í Danmörku. Bjarni er kvæntur Rakel
Guðmundsdóttur, grafískum hönnuði hjá
Odda ehf.
Er hægt að staðfesta að árangur
íslenskra útrásarfyrirtækja sé
einstakur og er hægt að draga
lærdóm af íslensku útrásinni
sem er gagnlegur fyrir stjórn-
endur, ráðgjafa, fræðimenn og
aðra? Viðskipta- og hagfræði-
stofnun Háskóla Íslands hefur
hafið umfangsmikið rannsókn-
arverkefni til þess að leitast við
að svara þessum spurningum og
öðrum af svipuðum meiði.
Ætlunin er að rannsaka ára-
tug í útrásinni, árin 1998 til
2007. Til skoðunar verða helstu
útrásarfyrirtæki landsins, við-
skiptabankanarnir þrír, Actavis,
Bakkavör, Marel, Össur og
Baugur. Verkefnastjóri rann-
sóknarinnar er Snjólfur Ólafsson
prófessor og með honum í verk-
efnastjórn eru Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson lektor, Runólfur
Smári Steinþórsson prófessor og
Þórhallur Örn Guðlaugsson dós-
ent. Auður Hermannsdóttir, MS
í viðskiptafræði hefur svo verið
ráðin til þess að sinna rannsókn-
arverkefninu.
Auk þeirra munu fjölmarg-
ir aðrir koma að rannsókninni.
Stefnt er að því að skýr heild-
armynd og svör við mörgum
spurningum verði komin haustið
2008 þó að rannsóknirnar á við-
fangsefninu muni halda áfram
lengur en það. Í dag klukkan
12.20 mun Snjólfur Ólafsson
kynna rannsóknarverkefnið í
stofu 101 í Odda og er málstofan
öllum opin. - hhs
ER ÁRANGUR ÍSLENSKRA ÚTRÁS-
ARFYRIRTÆKJA EINSTAKUR? Þessari
spurningu og mörgum öðrum reyni við-
skipta- og hagfræðistofnun HÍ að svara
með umfangsmiklu rannsóknarverkefni.
Leita svara um
íslensku útrásina
Fjárfestingarfélagið Hildingur
ehf. hefur keypt 44 prósenta hlut í
Sandblæstri og málmhúðun hf. og
er nú stærsti hluthafinn í félaginu.
Tveir stjórnendur hjá félaginu
hafa aukið sinn eignarhlut og eiga
átján prósent hvor, þeir Tómas
Ingi Jónsson, fjármálastjóri
félagsins og Helgi Gústafsson,
framkvæmdastjóri Ferro Zink,
dótturfélags Sandblásturs og
málmhúðunar í Hafnarfirði. Jón
Dan Jóhannsson framkvæmda-
stjóri mun láta af störfum en eiga
áfram 20 prósenta hlut í félaginu
og sitja í stjórn þess. Tómas Ingi
Jónsson tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra.
Haft er eftir Bjarna Hafþóri
Helgasyni, framkvæmdastjóra
Hildings, í fréttatilkynningu frá
félaginu að sóknarfæri séu í starf-
semi Sandblásturs og málmhúð-
unar á ýmsum sviðum. Félagið
hafi getið sér góðs orðs fyrir gæði
og góða þjónustu og stefnt sé
að því að efla þá starfsemi enn
frekar.
Þess er ekki að vænta að stór-
ar breytingar verði gerðar á
starfsemi félagsins þótt áherslur
muni að einhverju leyti breytast
með nýjum mönnum. Að sögn
Tómasar Inga Jónssonar, nýs
framkvæmdastjóra félagsins,
eru þegar uppi hugmyndir um ný
skref, bæði hvað varðar innri og
ytri vöxt fyrirtækisins.
Starfsmenn Sandblásturs og
málmhúðunar hf. eru yfir sextíu
talsins. Félagið þjónar einstakl-
ingum og málmiðnaðarfyrirtækj-
um og eru helstu þættir í starf-
seminni stálsmíði, zinkhúðun,
stálsala og sala á vörum tengdum
málmiðnaði. - hhs
Hildingur kaupir Sandblástur
og málmhúðun hf.
FULLTRÚAR NÝRRA EIGENDA SANDBLÁSTURS OG MÁLMHÚÐUNAR HF. Helgi Gústafsson, framkvæmdastjóri Ferro Zink,
Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Hildings, Tómas Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Sandblásturs og málmhúðunar og Jón Dan
Jóhannsson, fráfarandi framkvæmdastjóri.