Fréttablaðið - 18.10.2006, Síða 61
7000 12,6% 20Greiningardeild Kaupþings telur að Úrvalsvísitalan muni ná því gildi fyrir árslok. hlutur Straums-Burðaráss í kan-adíska olíu- og gasframleiðandanum Tanganyika. milljarða króna sem bankarnir og starfs-menn þeirra borga í skatt á þessu ári.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Árangur og umfang bank-
anna vekur ekki bara aðdáun
og gleði í samfélaginu. Dæmi
eru nýir bolir sem samtökin
Andspyrna hefur látið búa til.
Á þá er letrað stórum stöfum
BANKANUM ÞÍNUM ER SAMA
UM ÞIG. Andspyrna gefur þá
skýringu á framtakinu að með-
limir séu dauðleiðir á hvernig
bankarnir poti sér jafnvel víðar
inn í líf fólks en trúarbrögð.
„Til dæmis eru lífsleikninám-
skeið í sumum grunnskólum
í boði Landsbankans,“ segir
Andspyrna og tekur fram að bol-
irnir hafi verið búnir til í hundr-
að eintökum og komi til með að
kosta þúsundkall. Áhugasamir
geta svo keypt fyrstu eintökin
á Organic Airwaves-tónleikum
í kaffi Hljómalind á morgun frá
fimm síðdegis til níu um kvöld-
ið.
Er bankanum
sama um þig?
„Auðveldara en ég hélt“
Me› flátttöku á E*TRADE í gegnum Landsbankann b‡›st einstaklingum möguleiki á
a› n‡ta sér beint og millili›alaust áhugaver› fjárfestingartækifæri.
Kynntu flér máli› á landsbanki.is e›a hringdu í síma 410 4000.
INNKAUPAKORT VISA
Nýr dagur – ný tækifæri
Bjarni reddar öllu.
• Innkaupakort VISA er ókeypis kreditkort.
• Ekkert stofngjald, árgjald eða seðilgjald.
• Kortið er ætlað í rekstrarinnkaup og kemur
í stað beiðna- og reikningsviðskipta.
• Lengri greiðslufrestur.
Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum.
Nánari upplýsingar í síma 525-2280
Úttektartímabil Innkaupakorts er almanaksmánuður og
gjalddagi reiknings 25. næsta mánaðar.
Það voru brosandi hluthafar sem
réttu upp hægri höndina þegar
samþykkt var 20 milljarða arð-
greiðsla Kauþings. Exista fékk
mest sem stærsti hluthafinn og
geymir í sjóðum sínum eigin
bréf fyrir nokkra milljarða.
Egla á 11 prósenta hlut og fær
samkvæmt því um 2,2 milljarða.
Reyndar þegar fjármagnstekju-
skatturinn verður dreginn frá
skýst annar aðili upp fyrir þá.
Það er ríkið sem fær tíu prósent
af heildargreiðslunni í sinn hlut.
Á fundinum var engan fulltrúa
næst stærsta tékkans að finna,
en skilvís greiðsla upp í lækkun
matarverðs ætti að berast frá
bankanum á næstu vikum eða
mánuðum.
Næst stærsti
tékkinn
Áhugi manna á fjölmiðlafyrir-
tækjum virðist vera endalaus og
sá áhugi endurspeglast í enda-
lausum sögusögnum sem fljúga
um markaðinn. Nú gengur fjöll-
unum hærra að hlutur Kristins
Björnssonar og skyldmenna í
Árvakri sé til sölu og FL Group
muni kaupa hlutinn. Enginn fæst
til að staðfesta slíkan orðróm og
er hann því ekki seldur dýrar
en hann er keyptur. Sama gildir
um þrálátan orðróm þess efnis
að Grettir, sem er undir stjórn
Björgólfsfeðga, eigi stóran hlut
í Ári og Degi sem á helmingshlut
í Blaðinu á móti Árvakri. Menn
geta andað rólega því flestum er
ljóst að almennt séð eru menn
meðvitaðir um mikilvægi þess
að það sé engum fjölmiðlum
hollt að leynd hvíli yfir eignar-
haldinu.
Orðrómur um
Árvakur