Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 78
MIÐVIKUDAGUR 18. október 2006 29
Nýtt bindi er komið út í
hinni viðamiklu útgáfu Hins
íslenska fornritafélags á
textum miðalda sem hófust
með útgáfu Sigurðar Nordal
á Egils sögu 1933. Félagið
var stofnað að frumkvæði
Jóns Ásbjörnssonar hæst-
arréttarlögmanns 1928 og
sótti hann fyrirmyndina að
útgáfuhugmyndum sínum
til Þýskalands en þar hafði
komið út frá 1892 stórt safn
norrænna texta, Altnord-
ische Saga- Bibliotek og
lauk þeirri útgáfu ekki fyrr
en 1929.
Tilgangur með útgáfu Fornritafé-
lagsins hélst í hendur við vaxandi
forræði íslenskra fræðimanna í
textarannsóknum hér heima sem
höfðu um langan aldur verið í hönd-
um norrænna manna, þar á meðal
íslenskra fræðimanna í Kaup-
mannahöfn. Stefndi Fornritafélag-
ið að vönduðum fræðilegum útgáf-
um á fornritum, fyrst og fremst
Íslendingasögum, en við bættust
fleiri ritflokkar frá miðöldum:
Biskupasögur, Heimskringla og
fleiri rit. Er ætlun manna þar á bæ
að út komi í ritröðinni, sem nú telur
23 bindi, lögbækur, vísindatextar,
annálar, fornkvæði, ýmsar þýðing-
ar, riddarasögur og ævintýri. Er
ritröðin metnaðarfyllsta verkefni
íslenskra fræða fyrr og síðar.
Nýja bindið er sett saman af
útgáfum Ólafs Halldórssonar á
Færeyingasögu og áður óútgef-
inni Ólafs sögu Tryggvasonar eftir
Odd Snorrason. Er bindið það tut-
tugasta og fimmta í ritröðinni sem
enn er götótt því hún er komin í
töluröðina 35 þegar allt er talið.
Færeyingasaga kom fyrst út í
útgáfu Ólafs í skólabókarútgáfu,
en í útgáfum Fornritafélagsins er
stefnt að útgáfum sem eru í senn
almenningi til lestrar og eru unnar
á fræðilegan hátt. Þar skilja útgáf-
ur Fornritafélagsins sig frá svo-
kölluðum alþýðuútgáfum eins og
útgáfu Valdimars Ásmundssonar í
byrjun tuttugustu aldar og útgáfu
Svarts á hvítu. Þá ber að nefna
útgáfur Halldórs Laxness á völd-
um Íslendingasögum sem brutu
þá reglu sem viðhöfð er í útgáfum
Fornritafélagsins að textarnir eru
með samræmdri stafsetningu
fornri en ekki gildandi réttritun
hvers tíma.
Færeyingasaga er saga Götu-
skeggja, höfðingjaættar sem
kennt er við Götu í Austurey –
aðalhetja sögunnar er Þrándur í
Götu sem lifir góðu lífi í orðatil-
tæki enn þann dag í dag. Saga
Odds Snorrasonar er í ætt við
helgisögur en er með elstu heim-
ildum um Ólaf konung og setur
hann á stall með dýrðlingum, eink-
um Jóhannesi skírara. Í útgáfunni
er ítarlegur formáli eftir Ólaf
Halldórsson. Þá fylgja útgáfunni
kort og ættartré auk sextán
myndasíða. Er útgáfan öll hin
vandaðasta, bundin og prentuð í
Odda. Ritstjórar eru þeir Jónas
Kristjánsson og Þórður Ingi Guð-
jónsson.
Á næstu árum eru væntanleg á
prent á vegum Fornritafélagsins
tvö bindi Biskupasagna, Eddu-
kvæði í tveimur bindum, Snorra
Edda í tveimur bindum, Sturlunga
í fjórum bindum, fornaldarsögur í
fjórum bindum, Hákonar saga
Hákonarsonar og Morkinskinna.
Undrum sætir hversu hægt útgáf-
an hefur gengið fram og er þar
fyrst um að kenna fálæti stjórn-
valda. Þeim lætur betur að tala um
menningararfinn en kosta hann.
-pbb
Þrándur í Götu mættur
ÓLAFUR HALLDÓRSSON VIÐ SITT RÓRILL Á ÁRNASTOFNUN Myndin er tekin um það
leiti sem Færeyingasaga kom út í skólaútgáfu árið 1978
Lúðrasveit Reykjavíkur heldur
sína árlegu hausttónleika í Nes-
kirkju í kvöld.
Sveitinni til fulltingis er hol-
lenski slagverksleikarinn Frank
Aarnink en hann leikur hér ein-
leik á marimbu í verkinu „Conc-
ertino for Marimba and Winds“
eftir Alfred Reed. Aarnink er
fastráðinn slagverks- og páku-
leikari með Sinfóníuhljómsveit
Íslands en hefur tekið virkan þátt
í tónlistarlífi hér á landi og meðal
annars starfað sem slagverksleik-
ari við Íslensku óperuna, slag-
verkshópinn Bendu, Kammer-
sveit Reykjavíkur, Caput, Atón og
Lúðrasveit Reykjavíkur.
Á tónleikunum verður frum-
flutt nýtt verk eftir Báru Sigur-
jósdóttur, „Spaugelsi“ en þetta er
annað verk hennar sem Lúðra-
sveit Reykjavíkur flytur. Áður
hefur sveitin leikið hinn sívin-
sæla slagara „Hver tók ostinn
minn?“. Á efnisskránni í kvöld
eru enn fremur verk eftir Eric
Swiggs, Gerard Boedijn og syrpa
af lögum hljómsveitarinnar
Earth, Wind and Fire.
Stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur er Lárus Halldór
Grímsson. Tónleikarnir hefjast
kl. 19.30 og er aðgangur ókeypis
og ölum frjáls meðan húsrúm
leyfir.
Spaugelsi í Neskirkju
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR Flytur nýtt verk eftir Báru Grímsdóttur á hausttónleikum
sínum.
Félagar í Óperukór Hafnarfjarð-
ar kunna ráð við íslenskum kulda-
köstum og hyggjast í kvöld flytja
söngdagskrá í Hafnarborg sem
bæði yljar og gleður. Um er að
ræða stutta tónleikaröð sem hefur
yfirskriftina „Haustfagnaður“
enda er það fagnaðarefni fyrir
kórinn að koma saman á ný eftir
sumarfrí.
Kórfélagar nú eru á áttunda
tuginn og hefur fjölgað jafnt og
þétt frá stofnun hans árið 2000.
Stjórnandinn nú, sem fyrr, er Elín
Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona.
Markmið kórsins hefur frá upp-
hafi verið að sérhæfa sig í flutn-
ingi á Vínar-og óperutónlist en
þess má geta að eitt af verkefnum
starfsársins nú er tónverkið
Cavalleria Rusticana eftir
Mascagni sem kórinn mun flytja í
samstarfið við Íslensku óperuna á
næsta vor.
Í þessari tónleikaröð mun kór-
inn flytja blandaða dagskrá,
íslenska sem erlenda. Jón
Ásgeirsson skipar stóran sess í
vali á íslensku efni en ýmsir
óperukórarnir vega einnig þungt í
dagskránni. Þá hefur kórinn á að
skipa mjög hæfum einsöngvurum
sem einnig koma við sögu. Með-
leikari á tónleikum er hinn góð-
kunni píanóleikari Peter Máté.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Hafnarborg kl. 20 en á laugardag-
inn heldur kórinn tvenna tónleika,
aðra í Hveragerðiskirkju kl. 14 en
hina síðari á Laugarlandi í Holti
kl. 20.30. -khh
Hlýlegur haustfagnaður
ÓPERUKÓR HAFNARFJARÐAR Fagnar haustinu með tónleikaröð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rokkklúbburinn frægi í New
York, CBGB, lokaði á sunnudags-
kvöldið eftir þrjátíu ára aðsetur í
Bowery. Patti Smith kvaddi með
stuttu setti og smellti mynd af
lúnum innréttingum klúbbsins
áður en hún taldi í.
CBGB opnaði í desember 1973,
og varð snemma einn aðalstaður-
inn fyrir rokksenuna sem þá var
að blóma: Patti Smith var þar
krýnd drottning en flest böndin
sem komu fram í borginni á þess-
um árum áttu þar fastan sama-
stað: Ramones, Blondie, Talking
Heads, Television, Sonic Youth og
þúsundir smærri banda spiluðu
þar uns til yfir lauk.
Deilur hafa staðið við eigendur
húsnæðisins á Bowery 313/315 og
á endanum ákváðu eigendur
klúbbsins að gefa eftir og flytja.
Eigandinn Hilly Kristal skuldaði
leigu og gat ekki borgað. Ýmsir
lögðu honum lið: David Byrne úr
Talking Heads og Steven Van
Zandt í E Street Band og gengið í
The Sopranos, en allt kom fyrir
ekki. Kveðjuathöfnin var vand-
lega kynnt í New York og safnað-
ist fólk saman við klúbbinn á
sunnudag.
Frægir tónleikastaðir í New
York hafa týnt tölunni síðustu
misserin: Bottom Line lokaði
vegna skulda í fyrra og Fez and
the Luna Lounge var lokað vegna
nýbygginga. The Continental á
þriðja stræti í East Village býður
ekki lengur upp á lifandi tónlist.
Kristal er að leita að nýju húsnæði
fyrir klúbbinn, en það er ógerlegt
að flytja margklístruð plaggötin
af veggjunum og rómaða hland-
lyktina úr salernunum – að minnsta
kosti ekki til Las Vegas sem Krist-
al hefur nefnt sem mögulegan
áfangastað klúbbsins. -pbb
Rokkklúbbnum CBGB lokað
ROKKGYÐJAN PATTI SMITH Kvaddi
rokkklúbbinn CBGB ásamt fleirum um
síðustu helgi.
Flestir kannast við
söguna um Franken-
stein, óða vísinda-
manninn sem í þrá-
hyggju sinni skapar
skrímsli sem ekki
getur átt samskipti
við nokkra aðra lif-
andi veru. Þessi
fræga hryllingssaga
er nú loksins komin út
í óstyttri útgáfu hér á
landi. Bókin ber heit-
ið „Frankenstein eða
hinn nýi Prómóþeus“
en forlagið JPV gefur
út þýðingu Böðvars
Guðmundssonar á
verkinu.
Rithöfundurinn
Mary Shelley hóf
ritun sögunnar þegar
hún var aðeins 18 ára
gömul og kom hún fyrst út árið
1818 – þegar Mary var 26 ára. Sex-
tán ára gömul hljópst Mary að
heiman til að búa með ljóðskáld-
inu Percy Shelley
sem þá var giftur.
Mary var útskúfuð
úr samfélaginu og
fjölskyldunni en sam-
band þeirra hjóna
varð henni innblást-
ur að þessi frægustu
skáldsögu hennar.
Sagan af Franken-
stein hefur haft mik-
ilvirk áhrif á heims-
bókmenntasöguna
enda er hún þekkt-
asta hryllingssaga
heimsins. Hún hefur
getið af sér sjálf-
stæða grein hryll-
ingssagna og kvik-
mynda og verið
uppspretta ótal
vangaveltna um sköp-
unargáfu mannsins
og takmörk hennar.
Bókin er ríkulega myndskreytt
fjölmörgum mikilfenglegum trér-
istum eftir Lynd Ward.
Frankenstein allur
VOÐAVERK MANNSINS
Skrímslið Frankenstein gengur
aftur í mýmörgum mynd-
um í afþreyingarmenningu
nútímans.