Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 87

Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 87
 18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR38 HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 hvæs 6 forfaðir 8 stefna 9 svelg 11 kusk 12 hlutverk 14 þrásta- gast 16 hvað 17 málmur 18 kærleikur 20 í röð 21 viðlag. LÓÐRÉTT 1 ekki margir 3 komast 4 hafðir í hyggju 5 arinn 7 ólgandi straumfall 10 hár 13 farfa 15 svari 16 rámur 19 drykkur. LAUSN LÁRÉTT: 2 fnæs, 6 ái, 8 átt, 9 iðu, 11 ló, 12 rulla, 14 kliða, 16 ha, 17 tin, 18 ást, 20 rs, 21 stef. LÓÐRÉTT: 1 fáir, 3 ná, 4 ætlaðir, 5 stó, 7 iðukast, 10 ull, 13 lit, 15 ansi, 16 hás, 19 te. Sjónvarpskonan Inga Lind Karls- dóttir undirbýr nú brotthvarf sitt frá Stöð 2. Enn hefur Inga Lind ekki ákveðið hvað hún tekur sér næst fyrir hendur, en hún mun þó hafa fengið allmörg tilboð um atvinnu. Inga Lind skellti sér til Boston fyrir skemmstu til að hreinsa hugann fyrir komandi átök en með í för voru fjölmargar af vinkonum hennar úr félagsskapn- um Svörtu höndinni. Í félagsskapnum eru kunnar konur á borð við Svanhildi Hólm Valsdóttur sjónvarpskonu, Þorbjörgu Gunnlaugsdóttur lögfræðing, Aðalheiði Ingu Þorsteinsdótt- ur og Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur. Skemmtu Boston- fararnir sér hið besta en engar sögur er að fá úr ferðinni, enda er allt leyndar- mál sem gerist innan Svörtu handarinnar. FRÉTTIR AF FÓLKI Keppendum í X-Factor er gert skylt að skrifa undir samninga eins og gengur og gerist í raun- veruleikaþáttum og eru þær þýdd- ar beint frá Freemantle-fyrirtæk- inu sem á réttinn á þættinum en hann verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. Eitt ákvæðið vekur hvað mesta athygli en þar er tekið skýrt fram að: „Framleiðendur mega, að eigin geðþótta, ómerkja ákvörðun lærimeistar- anna eða úrslit atkvæðis- greiðslu almennings hve- nær sem er á meðan á keppninni stend- ur.“ Þegar Frétta- blaðið hafði sam- band við Þór Freysson, fram- leiðslustjóra þáttanna, vissi hann af þessu ákvæði en tók skýrt fram að þetta væri ákveðinn varnagli til varnar þættinum sjálfum. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst voru reglur um atkvæðagreiðsl- una mun skýrari í Idol-keppni Stöðvar 2 enda réð hún þar algjör- um úrslitum um framtíð kepp- enda. „X-Factor er fyrst og fremst sjónvarpsþáttur og við þurfum að passa upp á það,“ útskýrir Þór en áréttaði að hann teldi mjög ólíklegt að þessu ákvæði yrði beitt og lýsti því yfir að ef svo ólíklega kynni að fara yrði það án nokkurs vafa gert opinbert. Eftir því sem Fréttablað- ið kemst næst eru þessar reglur settar ef framleiðendur sjá fram á að vinsælir eða góðir keppendur gætu verið á leiðinni úr sjónvarp- inu. Þór bendir ennfremur á að keppendum verði vísað úr keppni með allt öðrum hætti en var í Idol- keppninni því annað hvort munu tveir neðstu berjast um eitt laust sæti og mun dómnefndin skera úr um hvor var betri eða að þeim þátttakanda sem neðstur varð í atkvæðagreiðslu verði vikið úr keppni beint. -fgg Ægivald framleiðenda í X-Factor ÞÓR FREYSSON Segist lofa því að ef framleiðendur myndu ómerkja atkvæðagreiðslu almennings yrði það gert opinbert. DÓMNEFNDIN X-Factor er fyrst og fremst barátta dómnefndarinnar en hana skipa þau Einar Bárðarson, Ellý í Q4Y og Páll Óskar. ...fær Jón bóndi Gunnarsson sem lætur ekki aldurinn stoppa sig og fagnaði fyrir skemmstu heimsmeistaratitli öldunga í -90 kílóa flokki í kraftlyftingum. „Það eru svona 10 þúsund sem elska mig. Eru Hrafnaþingsfíklar. Svo eru 20 þúsund sem hata mig. Þú deilir í þetta með 2 og og þá færðu út svona sirka 15 þúsund manna hóp. Það er ágætt,” segir Ingvi Hrafn Jónsson, meistari ljósvakans sem jafnframt telst nú nýjasti sjónsvarpsstjóri Íslands. „Já, já, þetta er stórfrétt. Ég er minn eigin sjónvarpsstjóri. Þetta er nýi tíminn. Ég mun senda út Hrafnaþing á hverjum degi klukk- an tvö. Á netinu. Þeir hinir, sem ekki eru við netið þá, geta bara tengt sig inn hvenær sem er og horft þegar þeim sýnist.” Ingvi Hrafn Jónsson er nú í sumarfríi. Brúnn og sællegur. En hann liggur ekki á meltunni og borar í nef sér. Nú er verið að und- irbúa gerð vefstúdíós á efstu hæð Húss verslunarinnar. Og þar í hæstu hæðum mun Hrafninn sitja og krúnka. Ekki liggja á skoðun- um sínum frekar en fyrri daginn. „Jú, jú, ég verð líka eitthvað hjá 365. En þetta á allt eftir að koma betur í ljós,“ segir Ingvi Hrafn sem er reyndar á leið í árlega ferð sína til Flórída. Og þaðan verða fyrstu þættir Hrafna- þings sendir út á Hrafnathing.is í byrjun nóvember. „Ég stjórnaði þættinum þaðan í fyrravor, bara í gegnum Macintosh-tölvuna. Þá voru viðmælendurnir í 4000 kíló- metra fjarlægð og engin vanda- mál komu upp. Þannig verður það líka með vefsjónvarpið. Fólk getur horft á Hrafnaþing hvort sem það er í Reykjavík, Grímsey eða Timb- úktú.“ Ingvi Hrafn er að viða að sér tækjabúnaði sem til þarf og segir að gæðin muni verða alveg eins og best verður á kosið. Hann er eini eigandi vefsjónvarpsins, en fær fólk með sér eftir þörfum. „Það þýðir reyndar ekkert að spyrja mig út í þessi tæknimál, það eru aðrir sem sjá um þau.“ -jbg/hdm Ingvi Hrafn verður sjónvarpsstjóri INGVI HRAFN JÓNSSON Stofnar vefsjónvarpsstöð á Hrafnathing.is. Fyrsti þátturinn fer í loftið í byrjun nóvember og verður hann sendur út frá Flórída. Kastljós Ríkissjónvarpsins er farið að nota andlit sinnar nýjustu stjörnu verðandi í kynningarskini. En Helgi Seljan er þó enn sem komið er samningsbundinn NFS. Sá samningur losnar ekki fyrr en 1. desember. Lítið hefur þó sést til Helga á skjánum enda Helgi einkum nýttur í ýmis störf bak við myndavélarnar eins og til dæmis að koma lagi á myndasafnið, flokka og skrá fréttir. Róbert Marshall lagði mikla áherslu á að Helgi hlypi ekki beint í Efstaleitið. Sjálfur fór Róbert þó um leið og hann fékk uppsagnar- bréfið en þeir sem við honum tóku sem yfirmenn Helga sýna honum engu minni hörku. -jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég keypti bílinn á eBay árið 2002 og flutti hann með flugi til lands- ins,“ segir Sigfús B. Sverrisson, stoltur eigandi glæsibifreiðarinn- ar Ford Mustang Fastback árgerð 1966. Bíllinn er kominn í fimm bíla úrslit í keppni bandarísku heimasíðunnar www.cardomain. com þar sem hann keppir um titil- inn „Show Off of the Year 2006“ sem gæti útlagst „Montbíll ársins 2006“ eða eitthvað á þá leið. „Ég setti myndir af honum inn á síðuna í keppni um montbíl vik- unnar og hann vann þá umferð. Það eru, eins og gefur að skilja 52 bílar á ári sem ná því að verða montbíll vikunnar og Mustanginn komst svo ásamt fjórum öðrum bílum í úrslit um montbíl ársins,“ segir Sigfús og neitar því ekki að þó hann hafi skráð bílinn í keppn- inna upp á grínið þá sé hann ansi montinn af honum. „Það væri auðvitað geggjað að vinna þetta,“ segir Sigfús og þar sem um netkosningu er að ræða vonast hann til þess að „Magna- æði“ renni á íslenskt bíladellufólk og það láti til sín taka í kosning- unni. „Ég á E-týpu af Jagúar sem hefur unnið silfurverðlaun hjá Fornbílaklúbbnum og það væri ekki verra að fá loks fyrstu verð- laun og þetta væri ekki ónýtur vettvangur þar sem CarDomain er með rúmlega 1.700.000 félaga.“ Sigfús er með bíladellu á háu stigi og segist hafa verið með hana frá því hann man eftir sér. „Ég eyði ekki peningum í reykingar eða brennivín og þetta er mitt hobbí.“ Sigfús hefur átt fölmarga bíla sem eru honum hjartfólgnir og má þar til dæmis nefna forláta Corvettu en svarti Mustanginn er honum ekki síður hjartfólginn. „Ég held að allir vilji eiga Must- ang. Þetta er svo einföld og falleg lína og það eru til dæmis 18.900 aðrir Mustangar á CarDomain síð- unni,“ segir Sigfús sem er að búa drossíurnar sínar undir veturinn en þá setur hann þær undir ábreið- ur og inn í skúr. Dagsdaglega ekur hann um á Ford Explorer jeppa en sýnir sig á köggunum þegar veður og aðstæður leyfa. Sigurvegari keppninnar verður kynntur á SEMA-sýningunni í Bandaríkjunum í byrjun nóvem- ber en „þar hittast allir flottustu gaurarnir sem hafa eitthvað að gera með aukahluti og breytingar á bílum að gera“, segir Sigfús og bætir við að hann geti vel hugsað sér að skella sér á sýninguna fari svo að hann vinni. „Ef þeir láta mann vita með fyrirvara held ég að maður yrði nú að stökkva enda væri það vel þess virði, bara til þess að sjá sýninguna.“ Sigfús er líkt og fjölmargir aðrir bílahugamenn með sína eigin undirsíðu á CarDomain (http:// www.cardomain.com/ ride/2066882) þar sem hann fjallar um Mustanginn og aðra bíla sem hann á. „Umferðin um síðuna mína rauk upp úr öllu valdi eftir að bíll- inn komst í show off-keppnina og eftir eina viku voru heimsóknirn- ar orðnar 19.000.“ Á síðu Sigfúss er tengill sem leiðir lesendur á kosninguna þar sem þeir geta greitt Mustangnum atkvæði sitt. thorarinn@frettabladid.is SIGFÚS SVERRISSON: VÆNTIR AÐSTOÐAR ÍSLENDINGA Í NETKOSNINGU Keppir til úrslita um montbíl ársins 2006 SIGFÚS B. SVERRISSON Hefur gert heilmikið fyrir Mustanginn síðan hann fékk hann og segist alltaf vera að dytta að honum enda sé bíllinn eilífðar dekurverkefni. „Hann er í ágætu standi og er alltaf að verða betri.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4 Egill Helgason kemur frískur inn í skrif sín á Vísi.is eftir sumar á Grikklandi: „Jæja, mýtan um bókmenntaþjóðina er endanlega að hrynja. Þetta hefur verið ein kjölfestan í þjóðarvitundinni. Nú er komið í ljós að íslensk ungmenni lesa miklu minna en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum. Þarf svo sem ekki að koma á óvart mitt í allri ameríkaníser- íngunni og neyslubrjál- æðinu hér. Á frönsku heitir ástand- ið sem ríkir hér nostalgie de la boue – þið getið flett því upp.“ -jbg/hdm

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.