Fréttablaðið - 19.10.2006, Page 4
4 19. október 2006 FIMMTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR „Við erum mjög
hamingjusamir yfir að þetta
skuli farið af stað,“ segir Friðrik
J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna, um þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að heimila
hvalveiðar að nýju.
„Við töpum yfir tíu milljörð-
um á ári á þeim vexti sem orðinn
er á hvalastofnunum miðað við
að veiðar hefðu verið stundaðar.
Það er mjög mikilvægt fyrir
þjóðarbúið að þessum skepnum
sé haldið innan hæfilegra
marka,“ bætir Friðrik við.
Friðrik segir að jafnvel þótt
ekki tækist að selja hvalkjötið
muni veiðarnar borga sig fyrir
þjóðarbúið vegna þeirra áhrifa
sem minnkun hvalastofnanna
hefði á fiskveiðar.
„Ég tel það. Ekki spurning,“
segir hann aðspurður um það en
tekur þó um leið skýrt fram að
hann hafi fulla trú á því að kjötið
seljist:
„Kristján Loftsson þekkir Jap-
ansmarkað örugglega betur en
nokkur annar og hann segir að
hægt sé að selja kjötið þar og ég
hef enga ástæðu til að rengja
það,“ segir Friðrik sem heldur
óttast ekki að Íslendingar muni
tapa rökræðustríði á alþjóðavett-
vangi.
„Langflestir jarðarbúar eru
ekkert að hugsa um þetta. Og
þeir sem hugsa komast að því að
það er langt frá því að verið sé að
ganga nærri þessum stofnum.
Það er ekki útilokað að það verði
einhver neikvæð áhrif en það er
bara svo miklu meira í húfi,“
segir Friðrik.
„Þetta mun ábyggilega fara
fyrir brjóstið á einhverjum en
allir sem maður ræðir málið við
skilja rökin fyrir þessum veið-
um,“ segir Eggert B. Guðmunds-
son, forstjóri sjávarútvegsfyrir-
tækins HB Granda. „En það
getur verið erfitt að eiga við til-
finningalegu hliðina,“ bætir hann
við.
Eggert segir það eðlilegt að
hvalastofninn sé ekki látinn vaxa
út fyrir öll mörk því það komi
niður á fiskstofnunum: „Hann er
jú keppinautur okkar um fisk-
inn.“
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, vill ekkert
tjá sig að sinni um ákvörðunina
um að hefja hvalveiðar að nýju
heldur vísar til yfirlýsingar sinn-
ar frá því í lok september.
„Afstaða Samherja til þessa
máls er því skýr. Fyrirtækið
telur að hefja eigi hvalveiðar og
að nýta beri hvalastofna með
sjálfbærum hætti rétt eins og
aðra nytjastofna,“ sagði meðal
annars í yfirlýsingu Þorsteins.
„Við erum ekki tilbúnir til að
tjá okkur um málið að svo
stöddu,“ segir Bjarni Benedikts-
son, framkvæmdastjóri hjá fisk-
sölufyrirtækinu Iceland Seafood
International.
gar@frettabladid.is
GENGIÐ 18.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,4444
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
68,21 68,53
127,6 128,22
85,51 85,99
11,464 11,532
10,092 10,152
9,222 9,276
0,5743 0,5777
100,21 100,81
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
SUBARU LEGACY SEDAN GL
Nýskr. 01.06 - Sjálfskiptur - Ekinn 5 þús. - Allt að 100% lán.
Verð
2.290
.000.
-
Veiðarnar borga sig jafnvel
þótt hvalkjötið seljist ekki
Framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna segir Íslendinga tapa yfir 10 milljörðum á ári
vegna stækkunar hvalastofna. Sjávarútvegurinn fagnar veiðunum og óttast ekki rökræðu á alþjóðavettvangi.
SÍÐASTI HVALURINN Svona var umhorfs þegar síðasti hvalurinn var dreginn á land í Hvalfirði árið 1989. FRÉTTABLAÐIÐ/SVEINN ÞORMÓÐSSON
Það er mjög mikilvægt
fyrir þjóðarbúið að
þessum skepnum sé haldið innan
hæfilegra marka.
FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI LÍÚ
SJÁVARÚTVEGUR Hvalveiðiskipið
Hvalur 9 hélt á miðin vestur af
landinu á þriðjudagskvöld en
enginn hvalur
veiddist í gær að
sögn Kristjáns
Loftssonar,
forstjóra Hvals
hf. Skipið leitaði
að hval rúmlega
eitt hundrað
sjómílur norð-
vestur af
Garðskaga.
Sigurður Njálsson er skipstjóri
í þessari fyrstu veiðiferð og eru
alls tíu reynsluboltar í áhöfn með
þeirri undantekningu að skips-
hundurinn Pjakkur Kolsson er
viðvaningur. Kokkurinn, sem er
um fimmtugt, er yngstur en
Sigurður skipstjóri spaugaði með
það við brottför skipsins úr
Reykjavíkurhöfn að vafi léki á
hvort kalla ætti áhöfnina „lands-
liðið í hvalveiðum“, eða „elliheim-
ili á hvalveiðum“. - shá
Hvalur 9 á miðunum:
Enginn hvalur
veiddist í gær
SIGURÐUR
NJÁLSSON
SJÁVARÚTVEGUR Hvalstöðin í
Hvalfirði hefur ekki starfsleyfi
til matvælavinnslu en Landbúnað-
arstofnun hefur ekki viljað veita
stöðinni slíkt starfsleyfi. Kristján
Loftsson, stjórnarformaður Hvals
hf., segir hins vegar öll leyfi í
lagi. Halldór Runólfsson yfir-
dýralæknir segir að Hvalur hf.
hafi ekki leyfi til matvælavinnslu
í Hvalstöðinni.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra segir starfsleyfi
hvalstöðvarinnar í réttum
farvegi. „Við erum að hefja
þessar veiðar eftir langt hlé og
ekki að undra þó komi upp
álitaefni. Embættismenn, sem eru
til þess bærir, eru að fara yfir
þessi mál.“ - shá
Atvinnuhvalveiðar:
Hvalstöðin án
vinnsluleyfa
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�����������������
��������������
��������������
�������������
���������������
�������������
�������������
���������������
�������������
�������������
���������������
�����������
������������
�����������
���������������
������
�� ��������������
������� ������ �����
������������������������
��������� ��� ���� ����
������� ��������� ���
������� �������������
����������������������
�������� �������������
� ��� ����� ��� ���������
������ �������� �����
��� ������ �����������
������� ���������
����������������� ��
������������������
�������� ����������� ���
������������������������
������������������� ��
�������� ��
�����������
�� ���� ����� ��
��������������� ���
�������� ��������������� �
�����������������������������������
��������������������������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�
�
�
�
�
�
�
�
�
��
��
�
�
�
�
�
�
��
��
�
�
�
�
�
��
��
�
�
�
�
�
�
��
DÓMSMÁL Vitnaleiðslur í máli
Íslenskrar erfðagreiningar gegn
fimm fyrrverandi starfsmönnum
hafa staðið yfir í Fíladelfíuborg
undanfarnar vikur en ganga
hægt.
Meðal þeirra sem hafa komið
fyrir dóminn og svarað spurning-
um eru Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, og
Hákon Hákonarsson, sem sakað-
ur hefur verið um iðnaðarnjósnir
gegn ÍE.
Samkvæmt vefriti The Scient-
ists sagði Kári fyrir dómi að hann
hafi vitað af því að Hákon ætlaði
að fara til starfa hjá erfðarann-
sóknarmiðstöð Barnaspítala Fíla-
delfíuborgar en að hann hefði
ekki vitað hvers eðlis starfsemi
miðstöðvarinnar var fyrr en
fréttatilkynning þess efnis var
gefin út í júlí síðastliðnum. Það
hafi komið ÍE í opna skjöldu
þegar ljóst var að miðstöðin ætl-
aði í samkeppni við fyrirtækið.
Hákon Hákonarsson sagði að
Kári hafi lengi vitað um áform
hans og að reynt hafi verið að ná
samkomulagi milli ÍE og mið-
stöðvarinnar sem meðal annars
myndi fela í sér að Hákon yrði
áfram starfsmaður ÍE að hluta.
Þær viðræður hafi síðar siglt í
strand og ÍE hafið málarekstur-
inn í kjölfarið. Lögfræðingar
miðstöðvarinnar segja auk þess
að túlkun ÍE á starfsmannasamn-
ingum mannanna sé allt of víð og
til þess fallin að koma í veg fyrir
að þeir starfi nokkurn tímann
aftur við erfðarannsóknir.
- þsj
Vitnaleiðslur í máli ÍE gegn fimm fyrrverandi starfsmönnum ganga hægt:
Kári og Hákon báru vitni
KÁRI STEFÁNS-
SON Sagði fyrir
dómi að eðli
miðstöðvarinnar
hefði komið flatt
upp á sig.
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra segir mikilvægt að einhver
mælistika verði lögð á árangur
grunnskólanema; það sé vilji
foreldra og eins leggi Efnahags-
og framfarastofnun Evrópu
(OECD) áherslu á það. Hún segir
hins vegar að samræmd próf eins
og nú eru viðhöfð séu ekki
endilega rétta leiðin og kveðst
reiðubúin að ræða aðra mögu-
leika.
Björgvin G. Sigurðsson
Samfylkingunni hefur lagt fram
frumvarp um að samræmd
lokapróf grunnskólanema verði
aflögð. - bþs
Þorgerður K. Gunnarsdóttir:
Mikilvægt að
hafa mælistiku