Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 10
10 19. október 2006 FIMMTUDAGUR
HREKKJAVÖKUHÚS Jorge Romero
hjálpar til við byggingu graskerahúss
tengdaföður síns, Ric Griffith, í Kenova
í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum.
Griffith smíðar hús úr graskerum
árlega fyrir hrekkjavökuna, aðfaranótt
1. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum
���������������������� ��� ������������ ���
��������������� ������� ����� ��� ���������
����������� �����
������ ������������ ���� �������� �� ����������
��� �������� ����� ����������� ��� �������� ������
��������������������������������
������ ������������ ������� ������� ��� ������
������������
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
����� ���������� �������
���������� ����� ������������ �����������
����������������
�������������� ������������ ����������
���������������
��������������� ������������ ����������
����������������
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður
�
��
��
��
�
�
��
��
��
��
��
Hlutabréfasjóðir
50%
Skuldabréfasjóðir
50%
Sparnaður eftir
þínum nótum
Hefðbundna safnið –19,14% ávöxtun
Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 01.01. 2006 til 01.10. 2006.
PARÍS, AP Þrír franskir sósíalistar
vilja verða fyrir valinu sem for-
setaframbjóðandi franska Sósíal-
istaflokksins á næsta ári, þau
Segolene Royal, Dominique
Strauss-Kahn og Laurent Fabius.
Á þriðjudagskvöldið mættust þau
í dálítið óvenjulegum kappræðum
í sjónvarpssal þar sem þau reyndu
að höfða til flokksfélaga sinna.
Þau tóku vissa áhættu með því
að koma fram í sjónvarpsumræð-
um. Ef þau hefðu deilt hart, þá
fengju kjósendur þá mynd af
Sósíalistaflokknum að þar væri
allt logandi í illdeilum. Þess vegna
gættu þau sín á að grípa ekki
hvert fram í fyrir öðru, heldur
svöruðu til skiptis spurningum
umræðustjórnandans og leiddu
hjá sér flestan ágreining.
„Við erum ekki hérna til þess
að vinna sigur hvert á öðru,“ sagði
Strauss-Kahn, sem er fyrrverandi
fjármálaráðherra í ríkisstjórn
Lionels Jospins, 57 ára gamall.
Fabius, sem er sextugur að
aldri og fyrrverandi forsætisráð-
herra, gaf sig út fyrir að vera
lengst til vinstri af þeim þremur.
Hann talaði um „ofurkapítalisma“
og „milljónir launþega sem geta
ekki látið enda ná saman.“
Royal, sem er yngst þeirra
þriggja, 53 ára, hefur verið efst í
skoðanakönnunum mánuðum
saman og hafði því mestu að tapa.
Hún sagði meðal annars fátækt
vera að aukast í Frakklandi og
banna þyrfti þeim fyrirtækjum,
sem þegið hafa aðstoð frá ríkinu,
að flytja út starfsemi sína þangað
sem vinnuafl er ódýrara.
Félagar í Sósíalistaflokknum
eru 200 þúsund og þeir eiga að
velja sér forsetaframbjóðanda í
prófkjöri þann 16. nóvember. Ef
enginn hlýtur meirihluta í það
skiptið verður valið á milli tveggja
efstu í annarri umferð viku síðar.
Íhaldsflokkur Chiracs forseta,
sem lætur af embætti á næsta ári,
mun hins vegar velja sinn forseta-
frambjóðanda í janúar, en í þeim
herbúðum þykir Nicolas Sarkozy
innanríkisráðherra sigurstrang-
legastur.
gudsteinn@frettabladid.is
SEGOLENE ROYAL, DOMINIQUE STRAUSS-KAHN OG LAURENT FABIUS Gættu þess að
grípa ekki hvert fram í fyrir öðru. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þrír sósíalistar sækjast eftir forsetaframboði:
Forðuðust deilur
í sjónvarpinu
NAGLADEKK Dregið hefur úr notkun
nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu
á undanförunum árum og eru nú 52
prósent farartækja með nagladekk.
Til samanburðar má geta þess að 64
prósent voru með nagladekk árið
2001. Þetta kemur fram í viðhorfs-
könnun á notkun vetrardekkja sem
gerð var í maí 2006.
Jón Halldór Jónasson, upp-
lýsingastjóri framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar, segir helstu
breytingarnar þær að þeir sem eru
á fjórhjóladrifnum bílum séu ólík-
legri til að vera á nagladekkjum en
þeir sem aka bílum með drifi á
einum öxli. Fjórhjóladrifnum
bílum hafi fjölgað og þar með dragi
úr notkun á nagladekkjum. „Þannig
voru 62 prósent bíla með drifi á
einum öxli á nagladekkjum á móti
36 prósentum bíla með fjórhjóla-
drifi.“
Jón Halldór segir gleðilegt að
nagladekkjum sé að fækka og
greinilegt að fólk telji sig öruggt
án þeirra. „Það er mikill hagur í
því að sleppa nöglunum því þeir
eru stór þáttur í svifryksmengun
borgarinnar og eyðingu slitlags. Á
síðasta ári spændust 10 þúsund
tonn upp af slitlagi í Reykjavík
vegna nagladekkja og nemur kostn-
aður við lagfæringu þess 150 millj-
ónum.“
Í könnuninni kemur í ljós að ríf-
lega 42 prósent þeirra sem sögðust
myndu kaupa nagladekk telja að
önnur dekk kæmu til greina ef
aukið yrði við mokstur og söltun.
Jón Halldór segir að nú sé í bígerð
að auka söltun og mokstur á vegum
borgarinnar frá í fyrra. - hs
Nagladekkjanotkun hefur dregist saman um 12 prósent á síðustu fimm árum:
Söltun og mokstur aukinn í borginni
JÓN HALLDÓR
JÓNASSON
Þeir sem aka
fjórhjóladrifnum
bílum eru ólík-
legri til að vera á
nagladekkjum
en þeir sem aka
bílum með drifi á
einum öxli.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Hafnar-
firði, sem gerði 170 kannabis-
plöntur upptækar við húsleit í
iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á
sunnudag, er langt komin með
rannsókn málsins.
Tveimur mönnum, sem
handteknir voru vegna málsins,
var sleppt að loknum yfirheyrsl-
um. Að sögn Kristjáns Ó. Guðna-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í
Hafnarfirði, telst málið að mestu
upplýst. Eins og greint var frá í
Fréttablaðinu í gær voru tæki og
tól í iðnaðarhúsnæðinu sem dugðu
til þess að rækta upp kannabis-
plöntur sem náðu næstum tveggja
metra hæð. - mh
Kannabisræktun í Hafnarfirði:
Málið enn til
rannsóknar