Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 56
19. október 2006 FIMMTUDAGUR24
...að arnar-konan Jean Keen
hefur alið um 300 skallaerni við
heimili sitt í Alaska í yfir 20 ár. Ern-
irnir lifa að öllu öðru leyti villtir?
...að skallaernir geta synt eins
konar flugsund með vængjum
sínum?
...að kondórar geta flogið um
100 kílómetra á 50 kílómetra
hraða án þess að blaka vængjum
sínum?
...að kólibrífuglar eru einu fugl-
arnir sem geta flogið aftur á bak?
...að kólibrífuglar geta flogið í
allar áttir en þeir geta hins vegar
ekki gengið?
...að ef sumar tegundir kólibrí-
fugla fá ekki að borða í tvo tíma
þá deyja fuglarnir úr hungri?
...að strútar geta tekið 7,5 metra
löng skref á hlaupum?
...að strútar geta drepið ljón
með einu sparki?
...að grafuglur herma eftir hljóði
skröltorma til að reka burt óboðna
gesti?
...að í miðri San Francisco borg
lifir villtur fuglahópur sem telur 50
suður-ameríska páfugla?
...að í yfirgefinni stálsmiðju
í Bandaríkjunum fannst dúfna-
hreiður sem var eingöngu úr járn-,
kopar- og álræmum?
...að albatrosar geta sofið á
flugi á 50 kílómetra hraða?
...að til er ein tegund eitraðra
fugla? Tegundin lifir í Nýju-Gíneu
en eitrið er bæði á fjöðrum fugl-
anna og skinni.
...að golíat-bjöllur geta borið
250-falda eigin þyngd? Það er
eins og að 80 kílóa maður bæri
20 tonn.
...að margar tegudir eyðimerk-
urmaura bera látna einstaklinga
eigin tegundar í sérstaka grafreiti?
...að frjósamasta skordýr á
jörðu gæti á einu ári, ef allar
aðstæður eru eins góðar og
mögulegt er, framleitt afkvæmi
með sameiginlegan lífmassa
upp á 120 milljón tonn? Það er
rúmlega þrisvar sinnum þyngd alls
mannkyns.
...að eins undarlega og það
hljómar þá geta mörg skordýr
heimskautanna þolað 60°C hita?
...að bolabítsmaurar fara í bað
hvern einasta dag?
VISSIR ÞÚ...
Macaulay Culkin (1980) hóf ungur leik að
frumkvæði foreldra sinna. Hann var aðeins
fjögurra ára þegar hann lék í uppfærslu New
York balletsins á Hnetubrjótnum og átta ára
steig hann sín fyrstu skref í kvikmyndaheimin-
um. Níu ára gamall stal hann senunni frá leik-
aranum John Candy í kvikmyndinni Uncle Buck
(1989), sem varð til þess að leikstjórinn John
Hughes bauð honum aðalhlutverkið í annarri
kvikmynd, Home Alone (1990), sem gerði Cul-
kin að stórstjörnu. Eftir því sem Culkin færðist
nær unglingsaldri fór hins vegar að halla undan
fæti, hlutverkum fækkaði og við tók óreglusamt
líferni. Í seinni tíð hefur hann fengið ágætis
dóma fyrir kvikmyndaleik þótt hlutverkin séu
fá. Nýverið tók hann fyrir að þau yrðu fleiri.
1. My Girl (1991).
Ung stúlka haldin þráhyggju yfir dauða móður
sinnar, þarf að taka á honum stóra sínum
þegar hún missir besta vin sinn. Vasaklútamynd
í hæsta gæðaflokki með gamansömum undir-
tóni. Culkin stelur aftur senunnni frá aðalleik-
aranum, barnastjörnunni Önnu Chlumsky, sem
er þó nokkuð góð.
2. Uncle Buck (1989).
Það reynir heldur betur á þolrif letingjans
Bucks þegar hann þarf að passa börn bróður
síns og konu. Myndin vakti verulega athygli á
Culkin, enda fær hann sérlega skemmtilegan
texta til að moða úr. Þess má geta að þegar
Candy og Culkin eiga í snörpum samræðum í
eldhúsinu (einu frægasta atriði myndarinnar),
hafði Candy fest texta Culkins á hatt sinn svo
hann gæti farið nægilega hratt með hann.
3. Home Alone (1990).
Átta ára drengur, sem er fyrir gáleysi skilinn
einn eftir heima á meðan fjölskyldan fer
í jólafrí, verður að verja heimilið fyrir inn-
brotsþjófum. Myndin gerði Culkin að mestu
barnastjörnu í heimi síðan Shirley Temple var
upp á sitt besta. Gat af sér misgóðar framhalds-
myndir.
4. Saved (2004).
Þegar ung stúlka, sem gengur í baptistaskóla,
verður barnshafandi snúast vinirnir gegn
henni. Culkin sýnir að hann er ekki útbrunn-
in barnastjarna í hlutverki unglingsdrengs í
hjólastól, sem vingast við aðalsöguhetjuna.
Vonandi hættir drengurinn bara við að hætta
kvikmyndaleik.
5. The Good Son (1993).
Ungur drengur, sem dvelst hjá frændfólki
sínu, kemst að því að sonurinn á heimilinu
er kaldrifjaður morðingi. Culkin fékk misjafna
dóma fyrir hlutverk illmennisins, kannski af því
að það samrýmdist ekki stjörnuímynd hans.
Mótleikara hans, Elijah Wood, var hins vegar
hrósað í hástert.
TOPP 5: MACAULAY CULKIN