Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 80
56 19. október 2006 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson mun
ekki spila með íslenska landslið-
inu gegn Ungverjum í tveimur
vináttuleikjum í lok mánaðarins.
Meiðsli í öxl eru enn að plaga Ólaf
en hann hefur átt í vandræðum
með öxlina í marga mánuði og
gengur illa að finna út hvað
nákvæmlega er að honum. Alfreð
Gíslason landsliðsþjálfari valdi
hornamanninn Einar Örn Jónsson
í hópinn í stað Ólafs og svo bætti
hann við þriðja markverðinum
sem er Ólafur Gíslason, mark-
vörður Vals.
Ólafur kemur til Íslands í dag
og hittir Brynjólf Jónsson, lækni
landsliðsins, en Brynjólfur mun
taka myndir af Ólafi á föstudag og
nýta síðan helgina í að skoða hann
betur en Ólafur fer aftur til Spán-
ar á mánudag. Í gær fór Ólafur í
myndatöku hjá virtum spænskum
lækni í Madrid sem hefur höndlað
knattspyrnumenn frá Madridar-
liðunum en ekkert kom út úr þeirri
heimsókn.
„Það ætti að koma betur í ljós í
tökunni hjá Brynjólfi hvað er að
plaga mig,“ sagði Ólafur skömmu
eftir fundinn með spænska lækn-
inum. Hann er í fínu líkamlegu
formi en hefur lítið sem ekkert
spilað með Ciudad Real í vetur
vegna meiðslanna.
„Ég er í hörkuformi en get ekk-
ert lyft hendinni. Ég get tekið und-
irskot á æfingum en allt fyrir ofan
það ræð ég ekkert við og ástandið
hefur verið mjög slæmt síðustu
fjórar vikur. Ég hef verið að taka
bólgueyðandi sem hefur engu skil-
að. Ég hef þá prófað að kasta en
daginn eftir get ég ekki einu sinni
slökkt á vekjaraklukkunni. Öxlin
er búin að angra mig í ansi langan
tíma og það er ágætt að fara alla
leið með málið núna og fá bót
meina sinna. Ég fer kannski í
sprautumeðferð en það er ekki
talið líklegt í dag að ég þurfi að
fara í aðgerð.“
Í byrjun næsta árs fer fram
stærsta handboltamót sögunnar,
HM í Þýskalandi, og Ólafur hefur
beðið lengi spenntur eftir því móti.
Hann segist ekki vera farinn að
hafa áhyggjur af því að hann missi
af mótinu.
„Ég er alveg rólegur núna en ég
mun fara að hafa áhyggjur ef ekk-
ert kemur út úr þessu næstu fimm
daga. Þá get ég byrjað að hafa
áhyggjur,“ sagði Ólafur alvarleg-
ur.
henry@frettabladid.is
Ég er ekki byrjaður að
hafa áhyggjur af þessu
Ólafur Stefánsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum sem mætir Ungverj-
um ytra í lok mánaðarins. Þrálát axlarmeiðsli halda honum utan vallar og
hann kemur til landsins í dag þar sem læknir landsliðsins tekur á móti honum.
ÁKVEÐINN Ólafur Stefánsson er ákveðinn í því að fá bót meina sinna og fara með landsliðinu á HM í janúar. Hann sést hér fagna
marki í úrslitaleik meistaradeildarinnar gegn Portland San Antonio fyrr á árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Jerzy Dudek, varamark-
vörður Liverpool, gæti fengið
fimm leikja bann í kjölfar atviks
sem átti sér stað í leik með
varaliði Liverpool gegn Everton í
síðustu viku. Dudek var rekinn af
velli eftir að hafa lent saman við
Victor Anichebe, sóknarmann
Everton.
Dudek átti fyrst að fá þriggja
leikja bann en eftir að hafa
skoðað atvikið nánar hefur enska
knattspyrnusambandið ákveðið
að leggja fram nýja ákæru sem
segir til um að Dudek megi eiga
vona á fimm leikja banni. Félögin
hafa bæði fengið sekt út af
þessum leik en það brutust út
slagsmál í kjölfar rauða spjalds-
ins sem Dudek fékk. - dsd
Liverpool:
Dudek í fimm
leikja bann?
JERZY DUDEK Átti stóran þátt í sigri
Liverpool í meistaradeild Evrópu á
sínum tíma. NORDIC PHOTOS/GETTY
Almennir hlutar 1a, 1b og 1c
Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 30. okt.,
en þar mun Jens Evald frá Danmörku, sem meðal annars er
formaður fyrir Anti Doping Danmark, flytja erindi.
Þátttakendur geta keypt hádegisverð hjá Café easy sem
staðsett er í Íþróttmiðstöðinni í Laugardal en aðgangur að
fundinum sjálfum er ókeypis. Fundurinn er öllum opinn.
Frekari upplýsingar um hádegisverðarfundi ÍSÍ má finna á
www.isisport.is Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
ÍS
Í
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
www.isisport.is
ÍSÍ heldur þrjú þjálfaranámskeið á fyrsta stigi í Reykjavík á næstunni. Lágmarksaldur þátttakenda á
þessi námskeið er 16 ár. Hvert námskeið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað
leiðbeinendum barna í íþróttum. Námskeiðin hefjast á föstudegi kl. 17:00 og áætluð lok eru á
sunnudegi kl. 15:00. Kennt verður í fundarsölum ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Dags. Námskeið Verð kr. Skráning í síðasta lagi
27.– 29. okt. Þjálfari 1a – almennur hluti 12.000,- Miðvikudaginn 25. október
10.– 12. nóv. Þjálfari 1b – almennur hluti 8.000,- Miðvikudaginn 8. nóvember
24.– 26. nóv. Þjálfari 1c – almennur hluti 8.000,- Miðvikudaginn 22. nóvember
Frekari upplýsingar um þessi námskeið og þjálfaramenntun ÍSÍ má finna á heimasíðu ÍSÍ.
Skráning sendist á namskeid@isisport.is eða í síma 514-4000
Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru
gjaldgengir á Almennan hluta 1b.
ÍÞF102 í framhaldsskólum jafngildir
Þjálfara 1 – almennum hluta hjá ÍSÍ.
Þ.e. almennum hluta 1a, 1b og 1c.
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar fæst
metin til eininga í framhaldsskólum
samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar og skráning er á
www.isisport.is
Hádegisverðarfundir
FÓTBOLTI Thierry Henry, sóknar-
maður Arsenal, er allt annað en
sáttur við dómarann í leik CSKA
Moskva og Arsenal á þriðjudaginn
en dómarinn dæmdi mark af sem
virtist vera fullkomlega löglegt.
Dómarinn taldi að Henry hafi lagt
boltann fyrir sig með hendinni og
gaf leikmanninum spjald fyrir
vikið. Arsenal tapaði leiknum, 1-0.
„Þetta var fullkomlega löglegt
mark og ótrúleg mistök dómarans.
Leikmenn andstæðingana báðu
ekki einu sinni um hendi, bara
aðstoðardómarinn sem var langt í
burtu. Ég spurði dómarann og
aðstoðardómarann hvað þeir hefðu
séð athugavert við markið og þeir
gátu ekkert sagt. Ég vona bara að
heppnin verði með okkur næst,“
sagði Henry sem getur ekki áfrýj-
að spjaldinu sem hann fékk.
„Leikmenn mega ekki tala við
dómara. Þegar leikmenn nálgast
þá og spurja þá vilja þeir ekki
ræða við mann. Ég er ekki að tala
um að ráðast á þá, heldur bara að
spyrja þá hvað þeir séu að dæma
og það er ekki leyfilegt í fótbolta.
Þegar leikmaður jafnar á lokamín-
útu leiksins og markið er dæmt af
þá á maður að geta spurt dómar-
ann hvers vegna hann hafi dæmt,“
sagði Henry bitur.
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal. kenndi líka vellinm
um tapið á þriðjudaginn. „Við
reyndum eins og við gátum að
jafna leikinn en CSKA Moskva lék
vel og völlurinn var líka erfiður,“
sagði Wenger, en þess má geta að
völlurinn var væntalega jafn erf-
iður fyrir bæði liðin. - dsd
Henry er sótillur eftir að mark hans var dæmt af:
Ótrúleg mistök
Á HVAÐ VARSTU AÐ DÆMA? Henry ræðir
hér málin við aðstoðardómarann sem
dæmdi markið af. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Það var sannkallaður
Íslendingaslagur á Bröndby-
vellinum í gær þegar Bröndby
tók á móti Silkeborg. Allir þeir
Íslendingar sem eru á mála hjá
liðunum byrjuðu inn á í leiknum.
Hannes Þ. Sigurðsson var á
sínum stað í sókn Bröndby og
þeir Bjarni Ólafur Eiríksson,
Hólmar Örn Rúnarsson og
Hörður Sveinsson voru allir í
byrjunarliði Silkeborgar. Leikur-
inn byrjaði fjörlega og eftir sjö
mínútna leik var staðan 1-1, þar
sem heimamenn höfðu náð
forystunni. Fleiri mörk litu ekki
dagsins ljós og lokatölur því 1-1.
Hólmari Erni var skipt út af á
síðustu mínútu leiksins en aðrir
Íslendingar léku allan leikinn.
- dsd
Bröndby-Silkeborg:
Jafnt í Íslend-
ingaslagnum
HÖRÐUR SVEINSSON Lék allan leikinn í
liði Silkeborgar en komst ekki á blað.
FRÉTTABLAÐIÐ/MITDJYLLANDS AVIS
FORMÚLA 1 Alþjóða bílasambandið
hefur samþykkt mótaskrá fyrir
næsta tímabil í Formúlu 1. San
Marínó-kappaksturinn á Imola
hefur verið tekinn af dagskrá en
Spa-kappaksturinn í Belgíu
kemur aftur inn í mótaröðina.
Sautján mót verða á dagskrá árið
2007.
Einnig voru samþykktar
nokkrar reglubreytingar. Meðal
þeirra breytinga sem taka gildi á
næsta ári er að einungis einn
dekkjaframleiðandi verður í
keppnunum, en það er
Bridgestone. Hver ökumaður fær
56 keppnisdekk til umráða fyrir
þurra braut, en það eru helmingi
fleiri dekk en í ár. Keppnisliðin
munu öll nota sams konar dekk.
- dsd
Formúla 1:
Ekki keppt í
San Marínó
FÓTBOLTI Brasilíski sóknarmaður-
inn Giovane Elber hefur tilkynnt
að hann muni leggja skóna á
hilluna í desember. Elber, sem er
34 ára gamall, leikur þessa
dagana með Cruzeiro í heima-
landi sínu en tímabilið þar endar í
desember. Ástæðuna segir Elber
vera að hann finni stöðugt til í
ökklanum, en hann fótbrotnaði
árið 2004 þegar hann lék með
Lyon.
Enginn útlendingur hefur
skorað fleiri mörk í þýsku
úrvalsdeildinni en Elber en hann
skoraði 131 mark í 260 leikjum
með Stuttgart, Bayern München
og Mönchengladbach í öllum
keppnum. - dsd
Goðsögn hættir:
Elber leggur
skóna á hilluna
GIOVANE ELBER Sést hér í kveðjuleik
sínum með Bayern. NORDIC PHOTOS/GETTY