Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 77
Fyrsta plata söngkonunnar Lay
Low, Please Don´t Hate Me,
kemur út í dag. Lay Low, sem
heitir réttu nafni Lovísa Elísabet
Sigrúnardóttir, spilar jafnframt
á Iceland Airwaves-hátíðinni í
kvöld.
Lovísa, sem er 23 ára Reykja-
víkurmær, kom fram á sjónar-
sviðið í byrjun ársins þegar
útgáfufyrirtækið Cod-music
gerði við hana plötusamning
eftir að hafa aðeins heyrt tvær
demóupptökur á myspace-síðu
hennar. „Þá var ég ekki búin að
semja mikið af lögum og var eig-
inlega nýbyrjuð. Ég ætlaði ekki
að fara langt með þetta og fannst
furðulegt og fyndið að þeir
skyldu hafa samband við mig,“
segir Lovísa, sem er einnig í
hljómsveitinni Benny Crespo´s
Gang. „Svo þróaðist þetta út í að
ég fór að semja meira og þá
vorum við allt í einu að spá í
plötu,“ segir hún.
Lovísa játar að það hafi verið
erfitt að stíga ein fram á sjónar-
sviðið sem Lay Low eftir að hafa
alla tíð haft heila hljómsveit á
bak við sig. „Mér fannst það
alveg skelfilegt fyrst og ég hélt
að ég myndi deyja. Svo bara eftir
hverja einustu tónleika lagaðist
það og núna líður mér nokkuð
ágætlega. Þetta venst furðuvel.“
Ásamt útkomu nýju plötunnar
hefur lagið Boy Oh Boy hljómað
í auglýsingu frá Samskipum, auk
þess sem titillag plötunnar er í
kvikmyndinni Mýrin sem verður
frumsýnd á morgun. Lagði Mugi-
son, sem sá um tónlistina í mynd-
inni, mikla áherslu á að lagið yrði
haft með.
Tónlist Lay Low er nokkurs
konar blanda af kántrí, rokki og
blús. Semur hún öll lög og texta
sjálf. Að sögn Lovísu er nýja
platan blanda af öllu sem hún
hlustar á dagsdaglega. „Ég hef
gaman af gömlum blúslögum og
einu sinni hlustaði ég líka mikið
á gamalt gospel. Síðan hlusta ég
á nýja tónlist eins og Will Old-
ham,“ segir hún.
Lovísa útilokar ekki að spila
erlendis í framtíðinni, enda á hún
fjölskyldu úti í Englandi en pabbi
hennar er breskur.
Tónleikar Lay Low í kvöld
verða á Nasa og hefjast þeir
stundvíslega klukkan 20.00.
freyr@frettabladid.is
Lay Low lætur að sér kveða
LAY LOW Fyrsta plata Lay Low, Please Don´t Hate Me, kemur út í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Ef ekki væri fyrir snillinginn Meryl
Streep, þá væri The Devil Wears
Prada ósköp óspennandi ræma...
enda er sagan ekki sérlega frumleg,
heldur enn ein prinsessusagan; litli
ljóti andarunginn...My Fair Lady.
Andy (Anne Hathaway) er sæt,
en púkaleg stelpa sem dreymir um
að verða „alvöru“ blaðamaður. Hún
kemur til New York í atvinnuleit og
fær vinnu á tískuritinu Runway
sem aðstoðarkona, aðstoðarkonu
eins alræmdasta ritstjóra fjöl-
miðlaheimsins – Miröndu Priestly
(Streep).
Hin óspillta Andy veit ósköp fátt
um tísku. Í gáfumannahroka sínum
heldur hún framan af í það viðhorf
að tíska og greind geti ekki átt sam-
leið, en Miranda stígur á þær skoð-
anir líkt og hæll á sígarettustubb og
með snilldarlegri ræðu breytir hún
skoðunum Andy á örfáum sekúnd-
um. Í kjölfarið tekur Andy stakka-
skiptum. Verður metnaðargjörn
skvísa sem vinnur allan sólarhring-
inn en fjarlægist vini sína og kær-
asta.
Uppgjör Andy gengur svo út á:
Er ég vond að vera metnaðargjörn?
Er ég að svíkja sjálfa mig með því
að hugsa bara um tísku en ekki
alvöru blaðamennsku? Og niður-
staðan... Andy snýr baki við glam-
úrlífinu, hættir að vinna fyrir Mir-
öndu, velur dyggðina fram yfir
metnaðinn, fer úr tískufötunum og
nær sáttum við kærastann.
Skemmtilegra (og öllu frum-
legra) hefði verið ef Andy hefði
bara farið alla leið. Nýtt sér tæki-
færið til frama og frægðar og sagt
skilið við skilningslausa kærast-
ann... en svoleiðis gera góðar stelp-
ur náttúrlega ekki. Ha?
Margrét Hugrún Gústavsdóttir
Tískuskrattinn og litli
ljóti andarunginn
THE DEVIL WEARS PRADA
LEIKSTJÓRI: DAVID FRANKEL
AÐALHLUTVERK: MERYL STREEP, ANNE
HATHAWAY, STANLEY TUCCI.
Niðurstaða: Gömul tugga um gömul gildi og
staðlar kvenímyndir en ágætis afþreying. Meryl
Streep heldur myndinni uppi enda frábær í
hlutverki tískuskrattans.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
2
5
2
3
1
0
/2
0
0
6
Farðu á www.icelandair.is/airwaves, halaðu niður podcast og hlustaðu á leiðsögn
þriggja tónlistarmanna um tónlistarhátíðina. Leyfðu Bóasi úr Reykjavík!, Mr. Silla og
Úlfi úr Apparat Organ Quartet að leiða þig um hátíðina. Þá verður valið kannski auðveldara.
SKILGREINING Á VALKVÍÐA:
ICELAND AIRWAVES. YFIR 180 GIGG.
+ Farðu á www.icelandair.is/airwaves fyrir auðveldara líf
Icelandair er aðal styrktaraðili Airwaves tónlistarhátíðarinnar.PODCAST TÓNLIST
����������������������������
��������������������������������������
KVIKMYNDIR.IS
����
DV
�����
TOPP5.IS
��������
MBL
Stórmynd sem lætur engan ónsnortin.
ótextuð
HAGATORGI • S. 530 1919
www.haskolabio.is
WORLD TRADE CENTER kl. 6 - 8:30 - 10:10 B.i. 12
THE QUEEN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 Leyfð
ZIDANE kl. 6 - 8
THE ROAD TO GUANTANAMO kl. 10:10 ótextuð. B.i. 16
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
BJÓLFSKVIÐA kl. 6 B.i.16
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:15 Tilboð 400 kr B.i. 12
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA / KEFLAVÍK
JACKASS NUMBER TWO kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 12
JACKASS NUMBER TWO VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
THE THIEF LORD kl. 4 - 6 - 8 Leyfð
WORLD TRADE CENTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12
BEERFEST kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12
NACHO LIBRE kl. 10:10 B.i. 7
BÖRN kl. 8 B.i.12
STEP UP kl. 5:50 - 10:10 B.i. 7
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð
MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. kl. 3:40 Leyfð
JACKASS NUMBER TWO kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12
THE THIEF LORD kl. 6 - 8 Leyfð
WORLD TRADE CENTER kl. 10 B.i. 12
JACKASS NUMBER TWO kl. 8 - 10:10 B.i. 12
BEERFEST kl. 8 B.i. 12
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16
/ AKUREYRI
Brellurnar í þessari mynd voru framkvæmdar af atvinnumönnum, þannig
að hvorki þú né heimsku litlu vinir þínir ættu að reyna að leika þær eftir.Varúð
����
EMPIRE
BBC
ROLLING STONE
���
���
����
TOPP 5.IS
Nelgdi fyrsta sætið þegar hún var sýnd í USA fyrir nokkru.
Biluð
skemmtun !
Jackass number two
„Nýtt lágmark“
-WASHINGTON TIMES
Stórmynd sem lætur engan ónsnortin.
Oliver Stone
fráNýjasta stórvirkið
����
S.V. MBL
EINN ÓVÆNTASTI GLEÐIGJAFI ÁRSINS
ZIDANE
einn af bestu knattspyrnumönnum sögunnar
���
- V.J.V - TOPP 5.IS
BEERFEST kl. 5:45 - 8 -10:10 B.i. 12
THE GUARDIAN forsýnd. kl. 8 B.i. 12
THE THIEF LORD kl. 6 Leyfð
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16
BÖRN kl. 8 B.i.12
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
����
- H.Ó. - Mbl
Munið
afsláttinn
Ekki missa af kraftmestu spennumynd ársins.
Frá leikstjóra „The Fugitive”
Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu
Truflaðasta
grínmynd ársins er komin.
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
Forsýnd í kvöld !