Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 12
12 19. október 2006 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri
var í gær dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir stórfellda
líkamsárás. Hann veittist að
morgni laugardags í desember að
öðrum manni og sló hann
hnefahögg í höfuðið með þeim
afleiðingum að hinn síðarnefndi
féll við og höfuð hans lenti á
götunni. Við það hlaut fórnar-
lambið sprungu í höfuðkúpu og
blæðingu á heila sem leiddi meðal
annars til minnis- og taltruflana.
Árásarmaðurinn var dæmdur í
þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi, auk greiðslu ríflega
hálfrar milljónar í sakarkostnað
og málsvarnarlaun. -jss
Maður á þrítugsaldri:
Dæmdur fyrir
líkamsárás
RÚSSLAND, AP Lögregla gerði á
þriðjudag rassíu á útimarkaði í
Moskvu og handtók tugi bakara,
smákaupmanna og aðra sem flutt
hafa frá fátækum fyrrverandi
Sovétlýðveldum til rússnesku
höfuðborgarinnar til að finna
vinnu. Rassían er liður í herferð
rússneskra yfirvalda gegn ólög-
legum innflytjendum, en til henn-
ar var efnt eftir að Rússar hófu að
vísa úr landi Georgíumönnum.
sem störfuðu í Rússlandi án til-
skilinna pappíra og leyfa.
Þessar aðgerðir gegn Georgíu-
mönnum í Rússlandi voru liður í
viðbrögðum rússneskra stjórnvalda
við því að georgísk yfirvöld héldu
föngnum til skamms tíma fjórum
Rússum sem sakaðir voru um njósn-
ir í Georgíu. Í þessum aðgerðum
hafa hundruð Georgíumanna verið
fluttir nauðugir úr landi og búðum
þeirra og veitingahúsum lokað.
Vladimír Pútín gaf í byrjun
október út þau fyrirmæli, að tekið
skyldi til „hertra aðgerða til að
bæta viðskipti á heildsölu- og smá-
sölumarkaði, í því skyni að vernda
hagsmuni rússneskra framleið-
enda og almennings, hins inn-
fædda almennings.“
Talsmenn mannréttindasam-
taka gagnrýndu þessi ummæli for-
setans og sögðu þau bera vott um
útlendingahatur. Auk þess myndi
það ekki leysa neinn vanda að vísa
þessum útlendingum úr landi.
Nær væri að skera upp herör gegn
spilltri lögreglu, sem tæki „vernd-
argjöld“ af útlendingum sem ynnu
í landinu án tilskilinna leyfa. - aa
PAPPÍRARNIR ATHUGAÐIR Lögreglu-
maður skoðar skilríki manna á Kijevsky-
markaðnum í suðvesturhluta Moskvu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Herferð gegn ólöglegum innflytjendum í Rússlandi:
Fjöldahandtökur í Moskvu
Dögg Pálsdóttir
4.í sætiðwww.dogg.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Dögg hefur víðtæka
reynslu og þekkingu á
málafl okkum sem snerta
daglegt líf fjölskyldna og
barna, aldraðra, öryrkja og
sjúklinga.
Tryggjum Dögg örugga
kosningu í 4. sætið í
prófkjöri sjálfstæðismanna
í Reykjavík
27. og 28. október nk.
KOSNINGASKRIFSTOFA
Laugavegi 170, 2. hæð
Opið virka daga kl. 16-22
og um helgar frá kl. 12-18
dogg@dogg.is
sími 517-8388
Nýtt tilboð til allra
áskrifenda í Og1
BUBBI
06.06.06
Afmælistónleikar Bubba Morthens á DVD.
Upplifðu þessa mögnuðu tónleika, aftur og aftur.
Viðskiptavinir í Og1 fá þennan frábæra tónleikadisk
með rúmlega 40% afslætti eða á aðeins 1.690 kr.
í stað 2.990 kr.
Þetta er aðeins einn af mörgum ávinningum þess
að skrá sig í Og1.
Verið velkomin í næstu verslun.
Vodafone
gríptu augnablikið og lifðu núna
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
0
2
0
UMFERÐARMÁL Lönguhlíðin hefur
verið þrengd til að bæta öryggi
barna í hverfinu. Akreinum hefur
verið fækkað í eina hvoru megin í
Lönguhlíðinni og hjólreiðastígar
gerðir.
Hjólreiðastígarnir eru nýjung í
borgarkerfinu og gerðir að hug-
mynd stjórnmálamanna. Stígarnir
ná frá hringtorginu við Hamrahlíð
að gatnamótunum á Miklubraut.
Hinum megin við gatnamótin eiga
hjólreiðamennirnir svo að fara
upp á gangstígana og hjóla þar.
Höskuldur Tryggvason, deild-
arstjóri á framkvæmdasviði borg-
arinnar, segir að þess misskiln-
ings hafi gætt að á svæðinu milli
gangstígs og akreinar séu bíla-
stæði en það sé rangt.
„Það hafa verið brögð að því að
menn leggi á þessu svæði en þetta
eru ekki bílastæði. Það eru inn-
keyrslur úr götunni inn á lóðirnar
frá götunni og þess vegna var ekki
hægt að loka hjólreiðastígana
meira af. Við eigum eftir að setja
upp reiðhjólamerkingar.“
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdirnar í götunni nema
rúmum 40 milljónum króna.
- ghs
Reiðhjólamenn fá sérstakan hjólastíg fyrir sig í Lönguhlíðinni:
Þetta eru ekki bílastæði
HJÓLREIÐASTÍGAR Hjólreiðastígar, ekki bílastæði, hafa verið lagðir sitt hvorum
megin í Lönguhlíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA