Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 6
6 19. október 2006 FIMMTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Ákvörðun
íslenskra stjórnvalda um að
hefja atvinnuhvalveiðar hefur
vakið mikla athygli erlendis.
Allar helstu fréttastofur vestan
hafs og austan hafa fjallað um
málið síðan á þriðjudag.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra sagði við utan-
dagskrárumræður á Alþingi í
gær að hann gerði ráð fyrir mót-
mælum. Mótmæli Breta, sem
bárust áður en ákvörðunin um
atvinnuhvalveiðar var tilkynnt,
sagði hann ekki hafa komið sér á
óvart og að hann teldi líklegt að
fleiri þjóðir myndu fylgja í kjöl-
far þeirra á næstu dögum. Einar
segir viðbrögðin við fréttunum
hafa verið fyrirsjáanleg og ekki
eins harkaleg og margir hefðu
haldið að þau yrðu.
Norsk og grænlensk stjórn-
völd fagna ákvörðun Íslendinga
og í viðtali við norska blaðið
Fiskaren segir Helga Pedersen,
sjávarútvegsráðherra Noregs,
það fagnaðarefni að íslensk
stjórnvöld skuli hafa heimilað
hvalveiðar í atvinnuskyni. Hún
segir Íslendinga hafa vistfræði-
legar forsendur til að hefja hval-
veiðar og Norðmenn fagni því að
fá félagsskap á hvalveiðisviðinu.
Hörðustu mótmælin koma frá
stjórnvöldum í Nýja-Sjálandi
sem kalla ákvörðunina aumk-
unarverða. Áströlsk stjórnvöld
gagnrýna Íslendinga einnig hart.
Fulltrúar utanríkisráðuneyt-
isins áttu í gær fund með sendi-
herrum þeirra landa, sem hafa
sendiráð hér á landi, til að kynna
málstað Íslendinga. Þar ítrekaði
breski sendiherrann andstöðu
Breta við veiðarnar og í sama
streng tók sendiherra Bandaríkj-
anna.
Erlendir fjölmiðlar hafa farið
mikinn í umfjöllun sinni um hval-
veiðarnar. Málið var fyrirferðar-
mikið á fréttavef breska ríkisút-
varpsins, BBC. Þar er í inngangi
greint frá ákvörðun stjórnvalda
og ranglega sagt að langreyður
væri í útrýmingarhættu. Frétta-
stofan greindi einnig frá sögu
hvalveiða hér við land og aðkomu
að Alþjóðahvalveiðiráðinu, ræddi
auk þess við talsmenn Græn-
friðunga og annarra umhverfis-
verndarsamtaka. Sérstaklega er
þar rætt um markaðsmál. Mynd-
skeið fylgir fréttinni þar sem
hvalveiðar eru sýndar en varað
við því að myndirnar geti valdið
óhug.
Fréttastofurnar Reuters og
AP tóku málið sérstaklega fyrir
og bandarísku dagblöðin Wash-
ington Post, New York Times og
fleiri birtu grein AP um málið.
Málsvarar umhverfisverndar-
samtaka eru áberandi í allri
umfjöllun um veiðarnar.
svavar@frettabladid.is
KJÖRKASSINN
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Valfrelsi og skapandi umhverfi
www.gudfi nna.is
Hádegisverðarfundur
fi mmtudaginn 19. október
kl. 12.00–13.00.
Guðfi nna S. Bjarnadóttir
kynnir stefnumál sín og
situr fyrir svörum.
Staður: Kosningaskrifstofan í
Landsímahúsinu við Austurvöll.
Verið velkomin,
stuðningsfólk
Guðfi nnu S. Bjarnadóttur.
Framtíðin
okkar
KOSNINGASKRIFSTOFA GUÐFINNU S. BJARNADÓTTUR LANDSÍMAHÚSINU VIÐ AUSTURVÖLL
Sími 591 1100
gudfinna@gudfinna.is
Opið virka daga kl. 10:00–20:00
Helgar kl. 10:00–18:00
Hvalveiðar vekja at-
hygli um allan heim
Fjölmiðlar víða um heim greina frá hvalveiðum Íslendinga hver í kapp við ann-
an. Stjórnvöld fjölmargra ríkja hafa komið skoðunum sínum á framfæri. Mót-
mæli eru ekki talin eins harkaleg og búast hefði mátt við fyrirfram.
HVALUR 9 Hvalveiðiskipið sigldi til hvalveiða í fyrsta skipti í mörg ár á þriðjudag.
Veiðarnar hafa vakið mikla athygli en ekki eins hörð viðbrögð og margir bjuggust
við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra
segir að viðbrögðin við ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að hefja
atvinnuhvalveiðar að nýju hafi
verið fyrirsjáanleg. Aðspurður
segir hann mótmæli Bandaríkj-
anna ekki koma sér á óvart en að
þau séu mótsagnakennd. „Mér
finnst það afskaplega skrítið og
ég hef talið að við værum í góðra
vina hópi þegar við færum að
veiða hval í atvinnuskyni. Við
fylgjum í fótspor Bandaríkja-
manna að þessu leyti. Við erum
hér að veiða hvali óralangt innan
þeirra marka sem vísindamenn
telja óhætt og þó að mótmæli
bandarískra stjórnvalda komi
mér ekki beint á óvart þá finnst
mér þau mjög mótsagnakennd,
þó ekki sé nú meira sagt. Ég veit
að þeir eru að veiða mun meira
en heimildin sem ég gaf út kveð-
ur á um og mun stærra hlutfall
úr veiðistofninum en við erum
að gera.“
Mótmæli annarra þjóða hafa
ekki komið Einari á óvart á
neinn hátt. „Ég hef heyrt við-
brögðin frá breskum stjórn-
völdum og ég veit að Nýsjálend-
ingar hafa látið í sér heyra. Ég
bjóst við því þar sem þetta eru
þjóðir sem eru þekktar fyrir
andstöðu gegn hvalveiðum. Ég
hefði verið undrandi ef þessar
þjóðir hefðu ekki ítrekað sjón-
armið sín.“
Gísli Víkingsson, hvalasér-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, segir Bandaríkjamenn
veiða Grænlandssléttbak við
Alaska undir formerkjum frum-
byggjaveiða. Árið 2004 veiddu
Japanar mest allra þjóða innan
Alþjóðahvalveiðiráðsins í tonn-
um talið en Bandaríkjamenn og
Rússar fylgdu þar í næstu
sætum með veiði í kringum
2.000 tonn. - shá
Ráðherra um mótmæli bandarískra stjórnvalda:
Telur andstöðuna vera
mótsagnakennda
EINAR K. GUÐFINNSSON Mótmæli
annarra þjóða hafa ekki komið sjávar-
útvegsráðherra á óvart.
Treystir þú ríkissaksóknara til
að stjórna hlerunarrannsókn?
Já 39,3%
Nei 60,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga skólamáltíðir að vera
fríar?
Segðu skoðun þína á visir.is
SJÁVARÚTVEGUR Helgi Ágústsson,
sendiherra Íslendinga í Banda-
ríkjunum, kom fram í beinni
útsendingu fréttastöðvarinnar
CNN í gær þar sem hann svaraði
spurningum um hvalveiðar.
Helgi dró fram helstu rök
stjórnvalda fyrir veiðum; rétt
þjóðarinnar til að stunda sjálf-
bærar hvalveiðar sem byggðu á
vísindaveiðum. Í útsendingunni
kom einnig fram talsmaður
Grænfriðunga sem taldi helst
ámælisvert að veiða hval fyrir
þær sakir að markaðsmál væru í
óvissu og þetta myndi skemma
fyrir hvalaskoðunarfyrirtækjum
og annarri ferðaþjónustu. - shá
Helgi Ágústsson sendiherra:
Hvalveiðar
ræddar á CNN
SRÍ LANKA, AP Fimmtán menn sem
grunaðir eru um að hafa tilheyrt
Tamílatígrunum dulbjuggust sem
fiskimenn í gær og sprengdu
sjálfa sig og tvo báta í loft upp í
flotastöð Galle-borgar á Srí Lanka
með þeim afleiðingum að minnst
einn fórst og 26 særðust. Allir
uppreisnarmennirnir fórust einn-
ig og þrjú herskip skemmdust í
árásinni. Lögregla setti útgöngu-
bann á og öryggisgæsla var gífur-
leg í Galle-borg eftir árásina.
Nokkrum tímum síðar réð st
stjórnarherinn á Tamílatígrana í
Batticaloa og tilkynnti talsmaður
Tamílatígranna að einn óbreyttur
borgari hefði farist í árásinni og
tveir særst. Óttast er að sjálfs-
morðsárásin ógni ferðamanna-
iðnaðinum á Srí Lanka, en Galle
er einn vinsælasti áfangastaður
erlendra ferðamanna í landinu.
Galle er 110 kílómetrum sunnan
við höfuðborgina, Kólombó.
Jafnframt töldu fréttaskýrend-
ur að árásin myndi hafa slæm
áhrif á friðarviðræður Tamíla-
tígranna og ríkisstjórnar Srí
Lanka, sem hefjast eiga í Sviss í
lok þessa mánaðar. - smk
Sjálfsmorðsárás í ferðamannaborg á Srí Lanka:
Tamílatígrar sprengja herskip
LAGANNA VERÐIR Lögreglan herti
öryggisgæslu í Galle-borg á Srí Lanka
til muna eftir sjálfsmorðsárás Tamíla-
tígranna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP