Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 86
19. október 2006 FIMMTUDAGUR62
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2 hæð 6 kringum 8 sam-
stæða 9 nudda 11 gylta 12 gnýr 14 stó
16 rás 17 skýra frá 18 niður 20 til 21
nabbi.
LÓÐRÉTT 1 skarð 3 gat 4 ítalskur ofn-
réttur 5 traust 7 ríkur 10 for 13 lúsaegg
15 komust 16 espa 19 tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 holt, 6 um, 8 par, 9 núa, 11
sú, 12 druna, 14 arinn, 16 æð, 17 tjá,
18 suð, 20 að, 21 arða.
LÓÐRÉTT: 1 sund, 3 op, 4 lasanja, 5
trú, 7 múraður, 10 aur, 13 nit, 15 náðu,
16 æsa, 19 ðð.
Herra Ísland 2006, Jón Gunnlaug-
ur Viggósson, er einn þátttak-
enda í þættinum Gegndrepa sem
frumsýndur verður á Skjá
einum í kvöld. Tökur
standa enn yfir og því
ekki ljóst hver ber sigur
úr býtum í vatnsstríðinu
mikla. Mikil leynd hefur
hvílt yfir hverjir taka
þátt í ævintýrinu,
og eins yfir
hinum dularfulla
herra X. Jón
Gunnlaugur
tók við titli
fallegasta
manns
Íslands eftir að
Ólafur Geir Jóns-
son var sviptur
honum, en aðalástæða sviptingar-
innar er talin vera framganga Ólafs
Geirs í sjónvarpsþættinum Splash
TV. Aðstandendur Gegndrepa
sögðust ekki geta tjáð sig um
afstaðnar eða mögulegar titilsvipt-
ingar, en sáu ekki ástæðu til annars
en að ætla að Jón Gunnlaugur yrði
sjálfum sér og öðrum til sóma í
þættinum.
Andrés Sigurvinsson leikstjóri
með meiru (bróðir Ásgeirs) hefur
undanfarin ár verið búsettur á
æskuslóðum úti í
Eyjum þar sem
hann hefur gert sig
gildandi í bæjarmál-
um og menningarlífi
er nú fluttur í bæinn.
Eflaust munu þess
sjást merki í leikhúslífi
borgarinnar en áður
en Andrés lætur
til sín taka á
þeim vett-
vangi ætlar
hann að
beina kröft-
um sínum fyrst og fremst að því
að koma Lúðvíki Bergvinssyni á
öruggan stað á lista Samfylkingar
á Suðurlandi fyrir næstu alþingis-
kosningar.
Þeir félagar, Friðrik Indriðason
blaðamaður á DV (bróðir Arn-
aldar) og Tómas Tómasson
bassasnillingur hafa tekið höndum
saman á ný. Þeir sendu frá sér
bók um síðustu jól „Kofa Tómasar
frænda“ sem byggði á sögum úr
bransanum. Áður höfðu nokkrar
þeirra birst í DV og nú mun sá
greinaflokkur vakinn til lífsins í DV
með magnaðri sögu af verkefni
sem sveipað er dulúð. Andrew er
fyrirbæri í íslenskri tónlistarsögu
sem skipar nánast sama sess og
plata Icecross meðal safnara. Andri
Örn Clausen heitinn, leikari og
söngvari, lagði til fyrri part nafnsins
en –ew á að
vera Júlli
eða
Júlíus
Agn-
arsson
tónlist-
ar- og
hljóð-
maður.
-sun/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hefur Brynja Gunnarsdóttir,
markaðs- og þjónustustjóri hjá
útgáfufélaginu Eddu, verið ráðin til
starfa hjá Landsbankanum en þau
hafa verið hæg heimatökin hjá
Björgólfi Guðmundssyni, stjórnar-
formanni bankaráðs bankans, að fá
Brynju yfir því hann er sem kunn-
ugt er einn aðaleigandi útgáfunnar.
Ekki er enn ljóst hvert hlutverk
hennar hjá bankanum verður en
Brynja og Samson-hópurinn höfðu
skrifstofur hlið við hlið um tíma.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins lét Brynja af störfum hjá
Eddu á föstudaginn við mikinn
söknuð starfsmanna en Björgólfur
mun hafa hrifist svo af störfum
Brynju hjá útgáfunni að hann vildi
ólmur fá hana til liðs við sig.
Björgólfur
hefur verið
áberandi í
menn-
ingar-
lífi
landsmanna og lagt margvíslegum
menningarmálum lið auk þess sem
Landsbankinn hefur stutt dyggilega
við menningaratburði og heldur
meðal annars alltaf tónleika á menn-
ingarnótt Reykjavíkurborgar við
útibú sitt í Austurstræti og munu
starfskraftar Brynju án
nokkurs vafa nýtast á
þeim vettvangi. Ekki
náðist í Brynju vegna
málsins þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
-fgg
Brynja til liðs við Björgólf eldri
Leikstjórinn aldni, Clint East-
wood, hefur fengið boðskort frá
Sambíóunum um að koma hingað
til lands og vera viðstaddur frum-
sýningu myndar sinnar, Flags of
our Fathers. Myndin var að miklu
leyti tekin upp í Sandvík á Reykja-
nesi og er ekki óalgengt að kvik-
myndagerðarfólk láti sjá sig á
þeim stöðum þar sem upptökur á
myndinni fara fram.
Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst róa Sambíóin og kvik-
myndafyrirtækið True North nú
að því öllum árum að fá kvik-
myndagoðsögnina hingað og sagði
Sigurður Viktor Chelbat, mark-
aðsstjóri hjá Sambíóunum, að þeir
væru með alla putta krosslagða.
„Við hlaupum og hoppum ef við
getum gert eitthvað til að fá hann
hingað,“ sagði hann en ljóst þykir
að frumsýning Flags of our
Fathers verður mjög stór hluti
af jólahaldinu en Íslendingar
fá hana að líta á annan í
jólum.
Möguleikarnir á að Clint
komi hingað hafa aukist til
muna því leikstjórinn hefur
lýst því yfir í heyranda hljóði að
hann vilji gjarnan koma hingað
aftur þótt það verði ekkert bundið
neitt sérstaklega við kvikmynd-
ina. Samkvæmt Sigurði Viktori
hefur Eastwood hins
vegar ákveðið að
sleppa öllum stór-
um markaðssvæð-
um í Evrópu vegna
myndarinnar og
ætlar eingöngu
að ferðast til Jap-
ans vegna henn-
ar sem gæti
minnkað líkur á
heimsókn kapp-
ans. Ljósið í myrkrinu er hins
vegar að fulltrúi Warner Bros. í
London hringdi sérstaklega í
Sambíóin og lýsti yfir mikilli
ánægju með myndina og var hún
sett í sama flokk og The Departed
eftir Martin Scorsese og The
Prestige eftir Christopher Nolan
sem förðunarsérfræðingurinn
Heba Þórisdóttir vann við.
Hjá True North fengust þær
upplýsingar að róið væri að því
öllum árum að fá Clint hingað til
lands en ekki væri kominn nein
niðurstaða í málið. „Við erum í
góðu samstarfi við okkar fólk
þarna úti og það er verið að vinna
í þessu,“ sagði Helga Margrét
Reykdal, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. -fgg
Clint Eastwood boðið til Íslands um jólin
CLINT EASTWOOD Hinn aldni leik-
stjóri ætlar ekki að ferðast mikið
um heiminn með mynd sína,
Flags of our Father, en gæti
komið hingað.
...fær Ingvi Hrafn Jónsson fyrir
að stofna eigin fjölmiðil á netinu
og gera þannig aðdáendum
sínum kleift að sjá sig hvenær
og hvar sem er.
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
Ó
tr
ú
le
g
ve
rð
!!
!!
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Hefur látið
til sín taka í menningarmálum landans
og verður hlutverk Brynju væntanlega að
aðstoða hann við þau fjölbreyttu verkefni
sem liggja fyrir.
BRYNJA GUNNARSDÓTT-
IR Hefur verið ráðin
aðstoðarmann-
eskja Björgólfs
Guðmunds-
sonar.
Tökulið frá MTV og meðlimir
rokksveitarinnar We are Scient-
ists reimuðu á sig gönguskóna í
gærdag og héldu í tveggja tíma
draugagöngu um Reykjavík með
Jónasi Freydal, sem staðið hefur
fyrir slíkum göngum í sumar. We
are Scientists er ein af fjölmörg-
um hljómsveitum sem troða upp
á Airwaves en þegar MTV fal-
aðist eftir viðtali við þá Scient-
ists-kappa voru þeir þegar
búnir að bóka sig í gönguna, en
Jónas sagði þá hafa mikinn
áhuga á að fræðast um íslenska
drauga og álfa. Starfsliðið
frá MTV ákvað því að
fylgja þeim eftir, enda
þótti þetta skemmtilegt
sjónarhorn í tengslum við Airwa-
ves á Íslandi.
„Þetta verður bara ósköp venju-
leg ganga,“ sagði Jónas þegar
Fréttablaðið talaði við hann í gær,
en hann segir útsendara MTV ekki
hafa farið fram á að gangan yrði
lokuð öðrum.
„Þau höfðu mestan
áhuga á gjörningnum
okkar bak við Alþingis-
húsið. Þar fáum við skila-
boð frá álfum og huldu-
fólki í gegnum Íslands
þúsund ár,“ sagði Jónas.
„Litlir álfar og vík-
ingar ætla að
búa hér eftir
þúsund ár
líka,“ bætti
hann við, en
Jónas hefur
mikinn
áhuga á
umhverfismálum og hefur stað-
fasta trú á því að ferðaþjónusta
geti þjónað sama tilgangi og stór-
virkjanaframkvæmdir hvað varð-
ar fjárhag þjóðarbúsins. „Drauga-
gangan er dæmi um það, við fórum
af stað í albjörtu veðri í byrjun júní
og í dag hafa yfir átta þúsund
manns mætt í göngurnar,“ sagði
hann, en útlendir ferðamenn og
innfæddir hafa að sögn hans jafn-
mikinn áhuga á göngunum.
Starfslið frá National
Geographic var statt á landinu
fyrir stuttu til að gera úttekt á
virkjanamálum og fleiri erlendir
fjölmiðlar hafa komið í göngurnar.
Innslagið sem MTV tók upp með
We Are Scientists í gær verður
sýnt á MTV í Evrópu, í alls 16 lönd-
um. Auk þess munu útsendarar
stöðvarinnar að sjálfsögðu taka
upp heilmikið efni á tónleikum Air-
waves. sunna@frettabladid.is
JÓNAS FREYDAL: LÓÐSAR FRÆGA ÚTLENDINGA UM BORGINA
MTV og Airwaves-hljóm-
sveit í draugagöngu
MTV Í DRAUGAGÖNGU Liðsmenn rokkhljómsveitarinnar We Are Scientists fengu leiðsögn frá Jónasi Freydal í Draugagöngu um
Reykjavík í gær og voru svo yfirheyrðir af MTV-sjónvarpsstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
JÓNAS FREYDAL Lóðsaði
MTV og We Are Scient-
ists um Reykjavík í gær.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4