Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 68
19. október 2006 FIMMTUDAGUR44
Leikkonan Edda Björg-
vinsdóttir mun taka sér
örstutt skólaleyfi til þess
að sýna nokkrar sýningar
á verkinu Alveg brilljant
skilnaði í Borgarleikhúsinu
enda kveðst hún komin með
ástríðu fyrir Ástríði.
Þetta er þriðja leikárið sem Edda
sýnir einleik Geraldine Aron um
hina ólánssömu Ástríði. „Þetta er
mögulega harmrænasti skilnaður
mannkynssögunnar, þetta ætlar
engan enda að taka,“ útskýrir Edda
hlæjandi, „það fundust tveir, þrír
Íslendingar sem eiga eftir að sjá
verkið aftur – fólk kemur trekk í
trekk svo okkur þótti vert að bjóða
upp á nokkrar sýningar enn.“
Edda kveðst aldrei hafa lent í
öðru eins ef frá er talið sýning-
arævintýrið í kringum leikritið Sex
í sveit sem gekk fyrir fullu húsi um
langa hríð. „Þá vorum við líka öll
búin að láta sauma á okkur nýja
búninga því fólk hafði ýmist fitnað
eða horast. Sem betur fer er ég
samt alveg eins núna og þegar ég
byrjaði svo búningurinn passar
enn,“ segir hún.
Edda er ein á sviðinu en aðrir
aðstandendur sýningarinnar eru
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri
og Rebekka A. Ingimundardóttir
sem sér um leikmynd og búninga.
Um þýðingu og staðfærslu verks-
ins sá Gísli Rúnar Jónsson. Alveg
brilljant skilnaður fjallar um skiln-
aðarferli konu sem teljast má tals-
verður spekingur þó seintekin sé.
Ástríður þessi, eða Ásta, veitir
áhorfendum einlægan og opinská-
an aðgang að sínum innstu hugar-
fylgsnum skömmu eftir að elsku-
legur eiginmaður hennar til þrjátíu
ára yfirgefur hana til að taka
saman við yngri konu. „Aumingja
Ásta – hún ætlar hreinlega aldrei
að jafna sig á þessu,“ útskýrir Edda
og bætir því við að sögutími leik-
ritsins sé þrjú ár líkt og leikárin
sem hún hefur verið á sviðinu í
gervi þessarar grátbroslegu konu.
„Þetta er orðin sannkölluð
ástríða, það er einstaklega gaman
að leika Ástríði því þetta er svo
mannlegt verk með dásamlega
fyndnum og hallærislegum
uppákomum.“
Þessa dagana stundar Edda nám
í Háskólanum á Bifröst. „Ég er að
stúdera stjórnun mennta- og menn-
ingarfyrirtækja – svo maður geti
tekið við þessum leikhúsum, skil-
urðu,“ segir hún og kímir. „Það er
hryllilega langt síðan ég var á
skólabekk og ég hef þurft að byrja
að læra alveg upp á nýtt. En þetta
er ofboðslega gaman,“ segir hún.
„En ég verð að viðurkenna að ég
hef ekki fengið svona kvíðaköst
yfir leiklistinni eins og þessum
verkefnum á Bifröst,“ hvíslar hún,
en bætir því við kokhraust að hún
muni samt einörð halda áfram. -
khh
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR LEIKKONA Tekur sér örstutt frí frá skólabókunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Með ástríðu fyrir Ástríði
Hitt húsið tekur virkan þátt í tón-
listarhátíðinni Iceland Airwaves
og rokkar stíft með Fimmtudags-
forleik í dag. Ung og upprennandi
bönd eiga athvarf sitt í Póst-
hússtrætinu og þar ríða á vaðið
sveitirnar Furstaskyttan, The
Ministry of Foreign Affairs og
Sudden Weather Change. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20, það er algjör-
lega ókeypis inn en 16 ára aldurs-
takmark. Aðrir tónleikar verða
haldnir á laugardagskvöldið en
þá mæta Jamie´s Star, Nögl,
ÚT*Exit og sveitin Sudden Weath-
er Change á sviðið.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.hitthusid.is.
Fimmtudagsforleikur
ÞAÐ ER DÆMALAUST HRESSANDI AÐ FARA Á GÓÐA TÓNLEIKA Líklegt má teljast að það
verði heilmikið fjör í Pósthússtrætinu í kvöld þegar ungliðarnir rokka þakið af Hinu húsinu.
GÍSLI SÚRSSON Í MÖGULEIKHÚSINU
Lau. 21 . okt k l . 20 . - Sun. 22 . okt k l . 20 - Fim. 26 . okt k l . 20 UPPSELT
Aðeins þessar þr jár sýningar!
GÍSLI SÚRSSON Í HVERAGERÐI
Fös . 20 . okt . k l . 20 :30
GÍSLI SÚRSSON Á AKRANESI
Mið. 25 . okt . k l . 20 Miðapantanir í s íma: 5622669
& komedia@komedia . i s
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI