Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 34
[ ]
Ný ljós, nýtt rafmagn og nýjar flíkur.
Verslunin Spaksmannsspjarir var fyrst opnuð árið 1993, þá í litlu hús-
næði við Skólavörðustíg en í dag stendur hún við Bankastræti 11 og
hefur gert það síðan 2001. Á síðustu vikum hafa eigendur verslunarinn-
ar staðið í því að breyta búðinni töluvert og í dag njóta flíkurnar sín þar
inni líkt og prinsessur á skínandi dansgólfi. Laugardaginn síðasta var
svo slegið upp lítilli veislu í tilefni breytinganna og þangað komu helstu
viðskiptavinir, vinir og vandamenn.
Spaksmannsspjarir
fá andlitslyftingu
Kampavín, kaffi, ólífur og ostar voru
meðal þess sem var á boðstólnum
þegar Spaksmannsspjarir opnuðu dyrnar
og sýndu nýjar innréttingar.
Harpa Guðmundsdóttir, Kristín Eyjólfs-
dóttir, Guðbjörg Kristinsdóttir og Kristín
Jónsdóttir voru kátar í Spaksmanns-
spjörum.
Hönnuðirnir Björg Ingadóttir og Vala Torfadóttir hafa rekið verslunina Spaksmanns-
spjarir síðan árið 1993.
Hlýr klæðnaður Ekki vera það ofurseld tískunni að klæða ykk-
ur ekki eftir veðri. Það er kalt úti og alveg hægt að vera töff um leið
og maður er vel klæddur. Húfa, trefill og föðurland er alveg málið.
Vesti hafa
verið vinsæl
undanfarið og
eiga eflaust
eftir að verða
enn vinsælli
þegar líða tekur
á veturinn. Hettutrefillinn er ótrú-
lega smart. Gamaldags,
rómantískur og á sama
tíma praktískur þar sem
hann hentar bæði við
hversdagsleg og sparileg
tilefni. Krossinn er fram-
leiddur af Spaksmanns-
spjörum.
Jarðlitirnir hér í fyrirrúmi,
grænt og brúnt. Takið eftir
leggings buxunum, en í
Spaksmannsspjörum verð-
ur gott úrval af þröngum
buxum í vetur. Drapplitað, brúnt og svart
– sígildir litir. Takið eftir því
hvernig jakkinn hneppist
saman.
Smart pils með klemmum
og rennilásum og rómant-
ísk blússa.
Grátt verður áber-
andi litur í hönnun
Spaksmannsspjara
í vetur.
Skólavörðustíg 18
Lokaútkall
Lagersölunni lýkur á sunnudag
3 fyrir 2
(ódýrasta parið frítt)
Aðeins 4 verð:
500, 1500,
3000 og 5000
Flatahraun 5a, Hafnarfi rði
(á móti Iðnskólanum)
Opið: 13-18 fi mmtud. – föstud.
og 13-17 laugard. – sunnud.
s. 555 4420