Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 81
FIMMTUDAGUR 19. október 2006 57
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
DHL-deild kvenna
HK-HAUKAR 29-36
Mörk HK (skot): Hjördís Rafnsdóttir 6(6), Auður
Jónsdóttir 6(19/1), Elísa Viðarsdóttir 4(6), Tatjana
Zukovska 3(7), Arna S. Pálsdóttir 2(5), Aukse
Wysniauskaite 2(2), Rut Jónsdóttir 1(2), Elfa Arn-
arsdóttir 1(4), Elsa R. Óðinsdóttir 1(4), Brynja
Magnúsdóttir 0(1/1).
Varin skot: Ólöf Ragnarsdóttir 9/2, Sunna Frið-
björnsdóttir 2
Hraðaupphlaup: 3 (Elísa, Auður, Elfa).
Fiskuð víti: 8 (Aukse 2, Elísa, Elsa, Arna, Hjördís,
Elín, Brynja).
Utan vallar: 4 mín.
Mörk Hauka (skot): Hanna G. Stefánsdóttir
14(16/1), Ramune Pekarkyte 9(11/1), Sandra
Stojkovic 6(11), Harpa Melsteð 4(5), Tinna Ósk
Þorvaldsdóttir 3(3), Erna Þráinsdóttir 1(4), Nína
K. Björnsdóttir 1(4), Þórdís Helgadóttir 1/1(1).
Varin skot: Helga Torfadóttir 8/2, Bryndís Jóns-
dóttir 7/1.
Hraðaupphlaup: 5 (Hanna 4, Sandra1).
Fiskuð víti: 4(Sandra, Hanna, Tinna, Erna).
Utan vallar: 8 mín.
STAÐAN
GRÓTTA 6 4 0 2 162-152 8
VALUR 5 3 1 1 135-122 7
STJARNAN 4 3 0 1 128-87 6
HAUKAR 4 3 0 1 124-95 6
ÍBV 5 3 0 2 137-123 6
FRAM 5 2 2 1 121-115 6
FH 5 1 1 3 114-127 3
HK 5 1 0 4 125-164 2
AKUREYRI 5 0 0 5 94-154 0
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL
CHELSEA-BARCELONA 1-0
1-0 Drogba (47.).
WERDER BREMEN-LEVKSI SOFIA 2-0
1-0 Rodrigues (45.), 2-0 da Cunha (74.)
STAÐAN
CHELSEA 3 3 0 0 6-1 9
BARCELONA 3 1 1 1 6-2 4
W. BREMEN 3 1 1 1 3-3 4
L. SOFIA 3 0 0 3 1-10 0
B-RIÐILL
INTER-SPARTAK MOSKVA 2-1
1-0 Cruz (2.), 2-0 Cruz (9.), 2-1 Pavlychenko (54.)
SPORTING LISBON-BAYERN MUNCHEN 0-1
0-1 Schweinsteiger (19.)
STAÐAN
B. MUNCHEN 3 3 0 0 7-0 9
S. LISBON 3 1 1 1 2-2 4
INTER 3 1 0 2 2-4 3
S. MOSKVA 3 0 1 2 2-7 1
C-RIÐILL
BORDEAUX-LIVERPOOL 0-1
0-1 Crouch (58.)
GALATASARAY-PSV EINDHOVEN 1-2
1-0 Ilic (19.), 1-1 Kromkamp (59.), 1-2 Kone (72.)
STAÐAN
LIVERPOOL 3 2 1 0 4-2 7
PSV 3 2 1 0 3-1 7
GALATASAR. 3 0 1 2 3-5 1
BORDEAUX 3 0 1 2 0-2 1
D-RIÐILL
OLYMPIAKOS-ROMA 0-1
0-1 Perrotta (76.)
VALENCIA-SHAKTAR DONETSK 2-0
1-0 Villa (31.), 2-0 Villa (45.)
STAÐAN
VALENCIA 3 3 0 0 8-3 9
ROMA 3 2 0 1 6-2 6
OLYMPIAKOS 3 0 1 2 4-7 1
S. DONETKSK 3 0 1 2 2-8 1
HANDBOLTI Haukastúlkur unnu
nokkuð auðveldan sigur á
kornungu liði HK, 26-39.
Haukar höfðu yfirhöndina strax
frá byrjun og höfðu yfir í
hálfleik, 12-20. Þær kláruðu svo
leikinn í byrjun seinni hálfleiks
með því að skora sjö fyrstu mörk
hálfleiksins. Eftir það áttu HK
stúlkur enga möguleika og urðu
lokatölur sem áður sagði, 26-39.
Hanna G. Stefánsdóttir átti
stórleik í liði Hauka og Ramune
var einnig sterk en í liði HK átti
Ólöf markvörður ágætan leik. - aih
DHL-deild kvenna:
HK skellt illa
BARNINGUR Hanna Stefánsdóttir fór
á kostum og þessi varnarleikur skilaði
engu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Það var mikið líf á knatt-
spyrnuvöllum víðs vegar um Evr-
ópu í gær þegar leikið var í meist-
aradeildinni. Liverpool, PSV,
Bayern München og Valencia
standa mjög vel að vígi eftir leiki
gærkvöldsins en mikil spenna er
enn í öllum riðlum meistaradeild-
ar Evrópu.
Liverpool fór til Frakklands
þar sem liðið heimsótti Bordeaux.
Crouch kom Liverpool yfir þegar
rúmur hálftími var eftir af leikn-
um. Markið skoraði Crouch með
skalla eftir sendingu frá Bellamy.
Þar við sat og Liverpool er í góðri
stöðu eftir þrjá fyrstu leikina.
Í hinum leik C-riðils gerðu leik-
menn PSV sér lítið fyrir og unnu
Galatasaray á útivelli, 2-1.
Í B-riðli tók Inter Milan á móti
Spartak Moskva. Julio Cruz, sókn-
armaður Inter, var í miklu stuði og
skoraði tvö mörk á fyrstu níu mín-
útum leiksins. Roman Pavlyu-
chenko náði að minnka muninn og
þar við sat.
Bastian Schweinsteiger kom
mikið við sögu í leik Sporting Lis-
bon og Bayern München. Hann
skoraði fyrsta mark leiksins á 19.
mínútu en var svo rekinn af velli á
fyrstu mínútu síðari hálfleiks
þegar hann fékk sitt annað gula
spjald. Leikmenn Sporting náðu
ekki að nýta sér liðsmuninn og 1-0
sigur Þjóðverjanna staðreynd.
Werder Bremen á enn ágæta
möguleika á að komast upp úr A-
riðli eftir að liðið lagði Levski
Sofia að velli á heimavelli sínum,
Weserstadion. Werder Bremen er
því enn í baráttunni við Chelsea og
Barcelona um sæti í 16 liða úrslit-
um.
Leikmenn Valencia hafa verið á
skotskónum í meistaradeildinni á
þessari leiktíð. Í gær skoraði
David Villa bæði mörk liðsins í 2-0
sigri Valencia á Shakhtar Donetsk.
Simone Perrotta tryggði Roma
góðan útisigur á Olympiakos frá
Grikklandi með marki á 76. mín-
útu leiksins. . - dsd
Liverpool, PSV, Bayern München og Valencia standa vel að vígi í meistaradeild Evrópu eftir leikina í gær:
Crouch tryggði Liverpool góðan útisigur
SKALLI OG MARK Peter Crouch fagnar
hér markinu sem hann skoraði í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Það var mikið um dýrðir
á Stamford Bridge í gær þegar
Chelsea tók á móti Barcelona í
Meistaradeildinni. Eiður Smári
Guðjohnsen var í byrjunarliði
Chelsea og hann fékk viðurkenn-
ingu fyrir leik frá Chelsea með
þökk fyrir frábæra þjónustu á
sínum tíma. Áhorfendur tóku einn-
ig vel á móti landsliðsfyrirliðan-
um íslenska og klöppuðu vel og
innilega fyrir honum.
Chelsea er í margumtöluðum
markvarðavandræðum og því stóð
hinn óþekkti Portúgali Hilario á
milli stanganna hjá ensku meist-
urunum. Þrátt fyrir frekar varn-
arsinnaða uppstillingu byrjaði
Chelsea leikinn betur og réð ferð-
inni á meðan leikmenn Barcelona
virtust vera að ná áttum.
Andriy Shevchenko fékk dauða-
færi eftir stundarfjórðungsleik en
var of lengi að athafna og því fékk
Rafael Marques tíma til að hreinsa
í horn. Hornspyrnur Chelsea voru
einnig hættulegar þar sem John
Terry var aðsópsmikill í teignum.
Barcelona gekk illa að opna
vörn Chelsea og munaði mikið um
að Ronaldinho og Lionel Messi
voru teknir fast og fengu engan
tíma. Messi slapp þó í gegn um miðjan hálfleikinn en Hilario varði
skot hans úr þröngu færi. Barca-
strákunum óx ásmegin eftir því
sem á leið og á 30. mínútu opnuðu
þeir Chelsea-vörnina laglega en
Hilario varði skot frá Xavi.
Markalaust í leikhléi en síðari
hálfleikur byrjaði með miklum
látum því Didier Drogba kom
heimamönnum yfir eftir aðeins
eina mínútu í síðari hálfleik með
glæsilegu skoti utan teigs. Shev-
chenko hefði getað komið Chelsea
í 2-0 níu mínútum síðar en hann
fór illa að ráði sínu einn gegn
markverði.
Eiður Smári átti erfitt upp-
dráttar í leiknum, fékk úr litlu að
moða en var duglegur að hreyfa
sig og bjóða sig. Það kom því lítt á
óvart þegar Frank Rijkaard, stjóri
Barcelona, skipti honum af velli á
60. mínútu fyrir Ludovic Guily.
Barcelona reyndi hvað það gat
til að jafna leikinn en með mjög
takmörkuðum árangri því Chelsea
hafði öll ráð þeirra í hendi sér og
Ronaldinho komst aldrei í takt við
leikinn.
Leikmenn Chelsea fögnuðu
ógurlega í leikslok enda komnir
með mjög vænlega stöðu í riðlin-
um og þar að auki komnir yfir í
sálarstríðinu við Barcelona.
„Við þurftum á þessum stigum
að halda fyrir Petr, Carlo og stúlk-
una sem vann fyrir Chelsea en er
látin. Ég tileinka fjölskyldu henn-
ar sigurinn,“ sagði markaskorar-
inn Didier Drogba. „Þetta er búinn
að vera erfiður tími fyrir Chelsea
sem er ein stór fjölskylda.“
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
var eðlilega borubrattur eftir leik-
inn. „Þessi sigur er ekki bara fyrir
Carlo og Petr. Þetta er sorgleg
stund enda var þetta indæl stúlka
sem átti með okkur góðar stundir
á æfingasvæðinu,“ sagði Mourin-
ho. Drogba og Mourinho voru að
ræða um starfsstúlku Chelsea sem
lést í umferðarslysi í gær en mikið
hefur verið um áföll hjá Chelsea
síðustu daga. henry@frettabladid.is
Þrumufleygur Drogba sökkti Barca
Evrópumeistarar Barcelona komust ekkert áfram gegn gríðarsterku liði Chelsea á Stamford Bridge í gær.
Didier Drogba skoraði eina mark leiksins með þrumuskoti utan teigs. Eiður Smári Guðjohnsen komst lítt
áfram í leiknum og var tekinn af velli eftir klukkutíma leik.
OG ÞAÐ VAR MARK Boltinn syngur hér
í netinu og stuðningsmenn Chelsea
fagna innilega. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ALLTAF SKREFI Á UNDAN Ronaldinho og félagar í Barcelona áttu engin svör við leik
Chelsea í gær. Heimamenn voru alltaf skrefi á undan og ekkert kom út úr Brasilíu-
manninum snjalla. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÖGNUÐUR Didier Drogba fagnar hér sigurmarki sínu í leiknum ásamt Þjóðverjanum Michael Ballack. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP