Fréttablaðið - 19.10.2006, Page 20
19. október 2006 FIMMTUDAGUR20
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Á tali með Jóni Bald-
vini
„Nú þarf aðeins að finna
upptökurnar, rita þær upp
og gefa út. Gætu þær kallast
Þjóðsögur Jóns Hannibals-
sonar eða Á tali með Jóni
Baldvini.“
SVEINN ANDRI SVEINSSON HÆSTA-
RÉTTALÖGMAÐUR SKRIFAR UM
MEINTAR HLERANIR.
Morgunblaðið 18. október.
Yfir fimmtugt í upp-
reisn
„Okkur finnst við alltaf
þurfa að sanna að við séum
almennilegar mæður, góðar
eiginkonur, góðir starfs-
kraftar, félagslega þroskaðar
... en mikið assk... er það
leiðinlegt.“
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ÞÝÐ-
ANDI RAUÐHETTUKLÚBBSINS SEM
VILL AÐ KONUR YFIR FIMMTUGT
SLEPPI FRAM AF SÉR BEISLINU.
Morgunblaðið 18. október.
Um það bil þúsund villt
dýr af sextíu tegundum
hafa fengið aðhlynningu
og athvarf í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í þau sex-
tán ár sem sem hann hefur
verið starfræktur.
Ekki komast dýr sem fá aðhlynn-
ingu í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum öll til heilsu aftur; mörg
deyja á leiðinni eða stuttu eftir
komu. Mörg lifa þó af og geta horf-
ið aftur til heimkynna sinna í nátt-
úrunni. Tómas Óskar Guðjónsson,
forstöðumaður garðsins, segir það
gefa starfinu gildi.
„Við hófum þetta verkefni í
upphafi í tvennum tilgangi. Í
fyrsta lagi til að láta gott af okkur
leiða en í öðru
lagi til að
fræða almenn-
ing um villt
dýr,“ segir
Tómas sem
segir að í
byrjun hafi
verið mikið
um að fólk
kæmi með
dýr sem ættu
ekki heima í
garðinum svo
sem þrasta-
eða gæsaunga
sem það taldi
hafa villst frá
foreldrum sínum. „Við vildum að
fólk skildi að einmana ungi er ekki
vísbending um að eitthvað sé að
heldur á fólk að láta þá í friði og
gefa foreldrunum tækifæri til að
koma til þeirra. Einnig hefur það
komið fyrir oftar en einu sinni að
fólk hafði ungað út eggjum villtra
fugla heima hjá sér og ætlað þeim
svo að flytja hingað. Það var held-
ur ekki hægt,“ segir Tómas.
Dýrin eru að öllu jöfnu ekki til
sýnis enda flest það veik til að
byrja með að hlúa verður að þeim
inni í ró og næði. Þegar styrkur
þeirra vex hafa sum þeirra mögu-
leika á að stæla vöðvana að nýju
utandyra og gefst gestum þá
stundum einstakt tækifæri til að
fræðast um lifnaðarhætti þeirra
áður en þeim er sleppt á ný út í
náttúruna.
Einna mesta
athygli vekja
fáséðar teg-
undir dýra eins
og fálkar, ernir
og uglur.
Tómas segir
algengast að
fuglarnir þurfi
aðhlynningu
eftir að hafa
lent í grút, oft
eftir að hafa
verið í hvals-
eða selshræi
eða eftir að
hafa lent í við-
ureign við fýl.
Vængbrot séu einnig algeng en við
þau sé erfitt að eiga þó fuglar geti
jafnað sig furðu fljótt eftir að hafa
fengið hlýju, þvott, vítamín, fóðr-
un, dýralæknisskoðun, lyf, umbúð-
ir og tíma til að safna kröftum.
karen@frettabladid.is
Bráðavakt varnarlausra villidýra
VÆNGIRNIR REYNDIR AÐ NÝJU
Búrið sem hér sést var fyrst byggt undir
stork sem hingað hafði villst. Það hefur
komið í góðar þarfir og þar reyna fuglar
á ný á vængi sína.
SLASAÐUR EFTIR SKOT Þessi fallegi og sjaldgæfi fálki varð fyrir skoti fálkaníðings á
síðasta ári. Hann lifði árásina af en í frystikistu níðingsins fannst fjöldi annarra fálka
sem ekki höfðu verið svo heppnir. FRÉTTABLAÐIÐ/FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN
SIGURÖRN Í BAÐI Konungi fuglanna líkar
ekki vel að láta baða sig. Það var þó
nauðsynlegt í tilfelli Sigurarnar. Það var
lítil stúlka frá Grundarfirði sem bjargaði
Sigurerni með því að vaða eftir honum
út í lón.
GRÆNLANDSFÁLKI MEÐ BÓLGINN FÓT
Þegar þessir fallegu fuglar villast af leið
er það þrautalending þeirra að lenda á
skipum. Það eru því helst sjómenn sem
þeim koma til bjargar.
SNÆUGLAN SNÆFINNUR VAR MJÖG ILLA
SLÖSUÐ VIÐ KOMU. Uglan hafði flogið á
gaddavírsgirðingu og barist þar um lengi áður
en henni var komið bjargað.
Sviðamessa er gömul hefð á
Austurlandi. Bændur héldu upp á
lok smalamennskunnar með því
að snæða svið og skemmta sér.
Það er alveg jafn gaman í dag
enda svið mikill herramannsmat-
ur.
Þetta segir Gunnar Sigvalda-
son, formaður Vísnavina sem sér
um ýmsa skemmti- og menning-
arviðburði á hinum sögufræga
stað Djúpavogi. Sviðamessan er
einn þeirra viðburða. Næsta
messa verður haldin 28. október
og segir Gunnar mikla tilhlökkun
vegna hennar. Hann segir að um
tíma hafi verið tekið upp á því að
bjóða upp á pitsur ásamt sviðun-
um. Vinsældir sviðanna hafi þó
verið svo miklum mun meiri að
sá siður hafi fljótlega aflagst.
Í ár eru því aðeins kjammar og
lappir á boðstólum auk dýrðlegra
veiga og tónlistaratriða.
Sviðamessa á Djúpavogi:
Svið vinsælli en pitsur
SVIÐAKJAMMI Herramannsmatur íbúa
Djúpvogs
„Ég er fullur af
vonleysi þegar að
þessum blessuðu
heimsmálum
kemur,“ játar
Eiríkur Örn Norð-
dahl, rithöfundur
á Ísafirði. Nýjasta
tromp Banda-
ríkjastjórnar í
hryðjuverkastríð-
inu er að heimila
að harkalegum
yfirheyrsluaðferð-
um, sem jaðra
við pyntingar,
sé beitt á fanga
í Guantanamo.
Af þessu tilefni
sagði George W. Bush að stjórnvöld
væru jafn einörð nú og þau voru að
morgni 12. september 2001. „Það
er löngu ljóst að þeir hlíta hvort
sem er bara sínum eigin lögum og
því spurning hverju þessar reglur
breyta,“ segir Eiríkur. „Bush talar um
að einurðin sé ennþá jafn mikil og
rétt eftir áfallið. Ég hélt nú að skyn-
samir menn leyfðu áföllum að síast
inn og tilfinningunum að setjast,
til þess einfaldlega að geta tekið
skynsamlegar ákvarðanir.“
SJÓNARHÓLL
HARKALEGAR YFIRHEYRSLUR
Hlýta bara
sínum lögum
hvort sem er
EIRÍKUR ÖRN
NORÐDAHL
Rithöfundur
„Það er bara sama gamla að frétta, allt gott
bara“ segir Þórir Georg Jónsson tónlistarmaður,
sem gengur undir listamanns/hljómsveit-
arnafninu My Summer as a salvation
soldier. „Það er nóg í gangi í sam-
bandi við Airwaves. Ég er að spila í
kvöld á Gauknum, verð með fimm
manna hljómsveit. Við höfum spilað
á óauglýstum tónleikum tvisvar og
það var gaman. Þetta verður 50/50
nýtt efni og gamalt, en það er samt
ekki von á nýrri sólóplötu frá mér fyrr
en í fyrsta lagi í mars. Svo er ég líka
í hljómsveitinni Gavin Portland
og það er plata með okkur að
koma út núna í nóvem-
ber. Gavin Portland
spilar á Grand rokki á
föstudagskvöldið. Við náum ekki að spila mikið
þessa dagana því söngvarinn býr í Englandi.
Á föstudaginn kl. 17.30 ætla ég svo að spila
einn með kassagítarinn á Kaffi Hljó-
malind. Á þessari Airwaves-hátíð er
ég einna spenntastur fyrir Svíanum
Jens Lekman. Ég hef mjög gaman af
honum. Einnig er ég mjög spenntur
fyrir The Foghorns, það er ótrúlega
skemmtilegt band. Bart Cameron,
sem er aðalmaðurinn í því dæmi,
er náttúrulega fluttur af landinu svo
það er ekki hægt lengur að sjá bandið
spila í hverri viku eins og var hægt.
Annars er maður bara að vinna
hérna í frístundaheimili ÍTR í
Grandaskóla. Það er mikill
hávaði hér og geðveiki!“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞÓRIR GEORG JÓNSSON TÓNLISTARMAÐUR
Mikill hávaði og geðveiki
Vændi var bannað
í Kóreu árið 2004.
Framtakssamir
aðilar hafa nú
komið aðfram-
komnum körlum
til bjargar með því
að opna gleðihús
sem bjóða upp á fullkomnar latex-
dúkkur. Brúðuupplifunarherbergin,
eins og fyrirbærin nefnast, er
hægt að leigja fyrir um 1.500 kr. á
tímann, en innifalið auk dúkkunar
er rúm og tölva. „Vændislögin
ná ekki yfir dúkkur svo það er
spurning hvort við getum nokkuð
aðhafst,“ lét lögreglustjóri í Seoul
hafa eftir sér nýlega.
KÓREA:
DÚKKUVÆNDI
Sigþóra Gunnarsdóttir
Sölumaður í verslun RV
R
V
62
17
Höldum óhreinindum á mottunni
Úti- og innimottur fyrir íslenskar aðstæður
Á til
boð
i
í ok
tóbe
r 20
06
Úti-
og in
nimo
ttur
af ým
sum
ger
ðum
og s
tærð
um
…fjarlægir óhreinindi og vætu af skóm
…hindrar að gólfið innandyra verði hált
…heldur anddyrinu hreinu og snyrtilegu
gólfmottukerfið