Fréttablaðið - 19.10.2006, Síða 22
19. október 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Heildarfjöldi farþega um Keflavíkurflugvöll
Heimild: Hagstofa Íslands
1980
73
5.
06
4
1.
45
5.
70
5
1.
63
7.
02
9
39
6
.2
46
1990
2000
2004
Rannís er ríkisstofnun sem
meðal annars veitir íslenskum
vísindamönnum styrki til ýmissa
rannsókna. Nýlega var undirrituð
viljayfirlýsing um aukið samstarf
á milli Rannís og bandarísku
vísindastofnunarinnar. Páll
Vilhjálmsson er sviðsstjóri
upplýsinga- og útgáfusviðs Rannís.
Hvað felst í þessari
viljayfirlýsingu?
Hún er mikil viðurkenning fyrir
íslenskt vísinda- og tæknisamfélag.
Mögulegt samstarf væru til dæmis
rannsóknir á breytingu loftslags
í heiminum. Breyting loftslags
er gífurlegt hagsmunamál fyrir
báða aðila og að því samstarfi
gætu komið t.d. Veðurstofan og
Orkustofnun.
Hverjir fleiri geta notið góðs af?
Doktorsnemar og háskólakennarar
gera oftast verkefnin sem Rannís
styrkir. Styrkveitingar eru háðar
vísindalegri færni einstaklinganna
og aðstöðunni sem þeir hafa til
afnota. Þrír til sex aðilar koma oft
að fjármögnun svona verkefnis og
okkar mat er ákveðinn gæðastimpill
því þá er komið jafningjamat sem
aðrar stofnanir virða.
SPURT OG SVARAÐ
SAMNINGUR NSF OG RANNÍS
Mikil
viðurkenning
PÁLL VILHJÁLMSSON
UPPLÝSINGAFULLTRÚI RANNÍS
Ótti stjórnarandstöðunnar
við að Ríkisútvarpið verði
selt er grundvöllur and-
stöðu hennar við breytingu
RÚV í hlutafélag. Yfir-
lýsingar stjórnarliða um
að ekki eigi að selja duga
skammt.
Fyrstu umræðu um frumvarp
menntamálaráðherra um Ríkisút-
varpið lauk í fyrrakvöld, stuttu
áður en Orð kvöldsins hófst á Rás
1. Umræðan hafði þá staðið með
hléum í tólf klukkustundir en hún
hófst síðdegis á mánudag með
ræðu Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur.
Frumvarp um Ríkisútvarpið er
nú komið fram þriðja sinni. Í
fyrsta frumvarpinu átti Ríkisút-
varpið að verða sf. í öðru frum-
varpinu átti það að verða hf. en nú
á það að verða ohf. O fyrir framan
stendur fyrir opinbert - ohf. þýðir
sumsé opinbert hlutafélag.
Sem fyrr hafa stjórnarandstæð-
ingar haldið uppi harðri gagnrýni
á tillögur menntamálaráðherra um
breytingar Ríkisútvarpsins og
byggir hún á grunni ótta um að í
kjölfar formbreytinga verði fyrir-
tækið selt. Þrátt fyrir að mennta-
málaráðherra og aðrir stjórnarlið-
ar hafi margsinnis lýst yfir að sala
sé ekki á dagskrá hefur það engu
breytt. Stjórnarandstaðan treystir
ekki stjórnarflokkunum – og þá
helst Sjálfstæðisflokknum. Er bent
á að svipuð fyrirheit hafi verið
gefin þegar Pósti og síma var
breytt í hlutafélag. Síminn sé nú í
einkaeigu.
Ekki sátt um málið
Menntamálaráðherra sagði í ræðu
sinni á mánudag að breyta þyrfti
rekstrarformi Ríkisútvarpsins til
nútímahorfs svo það gæti staðið
undir kröfum sem gerðar væru til
þess sem útvarps í almannaþágu.
Taldi hún það almenna skoðun í
landinu að rétt væri að breyta
rekstrarumhverfi RÚV svo unnt
væri að styrkja rekstur þess og
¿efla hið mikilvæga menningar-,
almannaþjónustu- og lýðræðishlut-
verk sem stofnunin gegnir í þjóð-
félaginu¿. Kvað ráðherra breyting-
ar sem gerðar voru á frumvarpinu
í sumar koma til móts við athuga-
semdir stjórnarandstöðunnar og
síðar sagðist hún telja að með
frumvarpinu mætti ná markmið-
um fjölmiðlanefndarinnar sem
þverpólitísk sátt ríkti um.
Hvað sem líður orðum og mati
Þorgerðar Katrínar er ekki sátt
um frumvarpið á Alþingi.
Margvíslegar athugasemdir
Þó grunnur andstöðu stjórnar-
andstöðunnar sé óttinn við einka-
væðingu hafa þingmenn hennar
dregið fram nokkur helstu atriði
sem þeir finna að frumvarpinu.
Eitt þeirra er stjórnskipulagið
sem þeir telja samrýmast illa
hugmyndinni um almannaútvarp
og telja nauðsynlegt að stjórn
Ríkisútvarpsins verði valin á
breiðari grunni en frumvarpið
gerir ráð fyrir. Þá segja þeir hall-
að á réttarstöðu starfsmanna eftir
breytingu í hlutafélag, fjárhagur
fyrirtækisins sé ótraustur, umsvif
þess á auglýsingamarkaði of
mikil auk þess sem þeir hafa
gagnrýnt að fyrirtækinu skuli
aflað tekna með sköttum í stað
afnotagjalda.
En stjórnarandstæðingar sjá
bjartar hliðar líka; Mörður Árna-
son Samfylkingunni fagnar alla-
vega að upplýsingalög eigi að ná
til Ríkisútvarpsins ofh. samkvæmt
frumvarpinu. „Það er mikils virði
að upplýsingalögin skuli eiga að
gilda um þetta fyrirbæri ef það
kemst einhvern tíma á fæturna,“
sagði Mörður.
Traust og vantraust
Framsóknarflokkurinn hefur
fengið sinn skerf af gagnrýni og
flokknum meðal annars brigslað
um sinnaskipti í afstöðunni til
Ríkisútvarpsins. Andstæðingar
breytinga á RÚV í hlutafélag –
svo ekki sé nú minnst á einka-
væðingu – hafa á undanförnum
árum lagt traust sitt við að fram-
sóknarmenn stæðu gegn öllum
slíkum áformum sjálfstæðis-
manna. Dagný Jónsdóttir hefur
útskýrt afstöðu flokksins til máls-
ins á þann veg að í frumvarpinu
standi skýrum stöfum að sala
Ríkisútvarpsins ohf. sé óheimil.
„Við erum þannig gerð að við
treystum fólki,“ sagði Dagný orð-
rétt. Kolbrún Halldórsdóttir VG
sagðist á hinn bóginn trúa núver-
andi menntamálaráðherra þegar
hún segði ekki standa til að selja
RÚV en það traust næði ekki
lengra. „Þessi hæstvirtur mennta-
málaráðherra verður ekki í ríkis-
stjórn alltaf og kannski ekki bara
á næsta kjörtímabili.“
Einkavæðing RÚV – þar er efinn
RÍKISÚTVARPIÐ Í BLÁMA MORGUNHIMINSINS Stjórnarandstaðan á Alþingi óttast að frumvarp menntamálaráðherra um RÚV sé
skref í átt til einkavæðingar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
ÞORGERÐUR K.
GUNNARSDÓTTIR
DAGNÝ
JÓNSDÓTTIR
MÖRÐUR
ÁRNASON
KOLBRÚN
HALLDÓRSDÓTTIR
HELSTU BREYTINGAR
• Ríkisútvarpið verður hlutafélag.
• Stjórn verður kosin í stað útvarps-
ráðs áður.
• Meginhlutverk stjórnar verður
að fjalla um rekstur RÚV - ekki
dagskrá eins og útvarpsráð gerir.
• Stjórn ræður og rekur útvarps-
stjóra - ekki menntamálaráðherra
eins og nú er.
• Útvarpsstjóri ræður aðra starfs-
menn, þar með talda fram-
kvæmdastjóra.
• Það hlutverk er nú á höndum
menntamálaráðherra.
• Afnotagjöld verða aflögð 2009
og í staðinn innheimtur sérstakur
skattur.
HELSTA GAGNRÝNI
• Að Ríkisútvarpinu skuli breytt í
hlutafélag.
• Að völd útvarpsstjóra skuli aukin.
• Að réttindi starfsmanna hlutafé-
lagsins séu ekki tryggð.
• Að breytingin auðveldi sölu á
RÚV.
Hvalveiðar hafa verið mikið í fréttum að undanförnu eftir að Einar K.
Guðfinnsson ákvað að gefa heimild til að veiða níu langreyðar og 30
hrefnur undir formerkjum atvinnuveiða.
Hvernig lítur langreyður út?
Langreyður er næststærsta dýr jarðarinnar og verður mest um 27
metrar á lengd og um 100 tonn að þyngd. Oftast eru dýrin um 18 til
20 metrar að lengd og vega um 42 tonn. Kvendýrin eru stærri eins
og á við um alla reyðarhvali. Það á einnig við um reyðarhvalastofna á
suðurhveli jarðar. Langreyður getur orðið mjög gömul og greint hefur
verið 94 ára gamalt dýr við Ísland.
Hvað um útbreiðslu og lífshætti hvalsins?
Langreyði er að finna um öll heimsins höf. Er
á Íslandsmiðum frá maí til ágúst. Lífshættir
og far er svipað og hjá sandreyði. Langreyður
er algengasti stórhvalurinn við Ísland og
er mest af henni við landgrunnsbrún-
ina suðvestur og vestur af landinu. Þar
voru hvalveiðar stundaðar um árabil frá Hvalfirði. Einnig er nokkuð
af langreyði allt í kringum landið en minnst fyrir utan norður- og
norðvestur ströndina. Langreyður telst vera úthafshvalur. Langreyður
étur aðallega ljósátu við Íslandsstrendur en rannsóknir sýna að hún
étur einnig torfufisk. Hún er afar hraðsynd og getur náð allt að 35
kílómetra hraða á klukkustund.
Hvað um veiðar og stofnstærð?
Langreyður er sú hvalategund sem mest hefur verið veitt af hér við
land. Meðalársveiði árin 1948 til 1985 var 234 dýr en mest 348
dýr árið 1957. Hún var ofveidd á þessu tímabili en stofninn hefur
náð fyrri stærð og er talinn í sögulegu
hámarki. Samkvæmt nýjustu talning-
um var stofnstærð Austur-Grænlands-
Íslands langreyðarinnar um 23.700 dýr
árið 2001. Þetta mat hefur verið stað-
fest af vísindanefnd NAMMCO árið
2003 og af vísindanefnd Alþjóða-
hvalveiðiráðsins fyrr á þessu ári.
FBL-GREINING: LANGREYÐUR
Næststærsta dýr jarðarinnar