Fréttablaðið - 19.10.2006, Qupperneq 26
19. október 2006 FIMMTUDAGUR26
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.472 -0,49% Fjöldi viðskipta: 375
Velta: 2.226 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis % ... Alfesca 4,71 -2,28% ...
Atlantic Petroleum 595,00 +1,88% ... Atorka 6,48 -0,31% ... Avion
32,80 +1,55% ... Bakkavör 58,60 -0,68% ... Dagsbrún 5,01 -0,60%
... FL Group 23,70 +0,42% ... Glitnir 22,50 +0,90% ... Kaupþing
873,00 -0,57% ... Landsbankinn 27,50 -1,08% ... Marel 80,50
-1,23% ... Mosaic Fashions 16,60 -1,19% ... Straumur-Burðarás
17,20 -1,71% ... Össur 125,00 +0,40%
MESTA HÆKKUN
Atlantic Petroleum +1,88%
Avion +1,55%
Glitnir +0,90%
MESTA LÆKKUN
Alfesca -2,28%
Straumur-Burðarás -1,71%
Icelandic Group -1,24%
Fjárfestingarfélagið Grettir fór
upp fyrir tíu prósenta hlut í Avion
Group í fyrradag. Grettir hefur
verið duglegur að kaupa í félaginu
því, frá byrjun október hefur
heildarhlutur félagsins farið úr
einu prósenti í 11,5 prósent.
Reikna má með að bréfin hafi
verið keypt á genginu 29,5-32
krónur á hlut en hluturinn stóð í
32,6 krónum í gær.
Heildarhlutur Grettis í Avion
Group er metinn á 6,7 milljarða
króna.
Eigendur Grettis eru Sund
(49%), Landsbankinn (35%) og
Ópera félag í eigu Björgólfsfeðga
(16%). - eþa
Grettir bætir við sig
bréfum í Avion
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON
Meðal hluthafa í Gretti sem hefur verið
að auka við hlut sinn í Avion Group.
Hæfilega bjartsýnn á Bloomberg
Árni Mathiesen fjármálaráðherra sat fyrir svörum í
sjónvarpsviðtali hjá viðskiptafréttaveitunni Bloom-
berg í gær. Þar sagði hann mun bjartari horfur í
efnahagslífinu sem stefndi í aukið jafnvægi auk
þess sem bankarnir væru núna í betri stöðu en í
upphafi árs þegar neikvæð umræða um efnahags-
lífið fór í gang. „Við erum hæfilega bjartsýn varð-
andi næsta ár,“ sagði hann og taldi ljóst að draga
myndi úr viðskipta-
hallanum. Hann
áréttaði spár
ráðuneytis síns
um að hallinn
fari í 11 prósent á
næsta ári. Árni tók
þó jafnframt fram að
í spá um aukið jafn-
vægi í efnahagslífinu
væru ekki tekin inn í myndina
áform um frekari stórframkvæmdir. „Og við vitum
vissulega af álverkefnum sem eru á teikniborðinu.“
Stóra skiptimyntin
Stærsta arðgreiðsla Íslandssögunnar fer fram á
næstu dögum þegar Kaupþing greiðir út nítján
milljarða aukaarð í formi hlutabréfa í Exista.
Þetta kemur til viðbótar við 6,6 milljarða
arðgreiðslu fyrr á árinu. Stærsti hluthafinn
í Kaupþingi er Exista sem fær þar með
fullt af bréfum í sjálfu sér eða tvö prósent
hlutafjár. Vaknar nú upp sú spurning hvað
félagið hyggst gera við arðinn. Hvorki er talið
sennilegt að hlutafé Exista verði fært
niður né bréfin seld á markaði né
greidd út sem arður. Líkegast er talið
að stjórnendur félagsins líti á bréfin
sem skiptimynt í viðskiptum sem
kunna að koma upp síðar, enda yfirlýst
stefna þess að vaxa á Evrópumarkaði.
Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTAR...Samkvæmt niðurstöðum úr vinnumark-
aðsrannsókn Hagstofu var atvinnu-
þátttaka á 3. fjórðungi ársins ríflega 84
prósent og það sem af er ári hlutfallið
83,5 prósent. Meðal OECD-landa hefur
aðeins Sviss hærra hlutfall atvinnuþátt-
töku af mannafla.
Verð á laxi stóð í stað á erlendum
mörkuðum í síðustu viku. Laxverðið
hefur lækkað hratt undanfarnar vikur
en meðalverðið í síðustu viku stóð hins
vegar í stað frá vikunni á undan.
Í gær tilkynnti nýr útgefandi jökla-
bréfa, bankinn Eurofima sem er í eigu
evrópskra járnbrautafélaga og með
höfuðstöðvar í Sviss, um útgáfu fyrir þrjá
milljarða með tíu prósenta vöxtum og á
lokagjalddaga í nóvember 2008.
ANZA hefur keypt rekst-
ur fyrirtækja í Svíþjóð,
Noregi og Danmörku
af TietoEnator, stærsta
upplýsingatæknifyrir-
tæki Norðurlanda. „Við
lítum á Skandinavíu alla
sem okkar heimamark-
að,“ segir Hreinn Jakobs-
son, framkvæmdastjóri
ANZA.
ANZA hf. hefur keypt þann hluta
af starfsemi finnsk/sænska upp-
lýsingatæknifyrirtækisins Tieto-
Enator sem veitir aðilum tengdum
opinbera geiranum í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð þjónustu. Um
leið hefur verið stofnað fyrirtækið
Sirius IT, nýtt norrrænt upplýs-
ingatæknifyrirtæki sem tekur yfir
starfsemina. Sirius IT verður með
um 420 manns í vinnu og er áætlað
að veltan á þessu ári nemi 5,4 millj-
örðum króna.
Keypt er starfandi fyrirtæki í
Svíþjóð og stofnuð eru ný rekstrar-
félög um starfsemina í Danmörku
og Noregi. Lykilstjórnendur félags-
ins halda allir áfram störfum og
munu eiga um 10 prósent hlutafjár.
Hreinn Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri ANZA, segir að með
kaupunum verði ANZA eitt stærsta
upplýsingatæknifyrirtæki landsins
með starfsemi í fjórum löndum,
Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Nor-
egi. Samanlagður starfsmanna-
fjöldi fer yfir 500 manns og áætlað
er að velta ANZA samstæðunnar á
næsta ári verði hátt í sjö milljarðar
króna.
„Í þessu er ég búinn að vera að
vinna allt sumar, en þetta flókin
samningagerð því við kaupum
þarna ákveðna starfsemi út úr
TietoEnator í þremur löndum.
Ástæðan fyrir því að þeir selja er
að þeir leggja í auknum mæli
áhersluna á ákveðna kjarnastarf-
semi, en þessi þjónusta er ekki
hluti af henni.“ Hreinn segir að
þessi nýi hluti sem komi til með að
heyra undir Sirius gangi mest út á
sérhæfða hugbúnaðarþjónustu og
ráðgjöf. „Fyrirtækið hefur þróað
lausnir fyrir opinbera og hálfopin-
bera aðila, því í kúnnahópnum eru
líka einkafyrirtæki.“
Hreinn segir mikil tækfæri fel-
ast í kaupnum fyrir ANZA, bæði
við að bjóða áfram þær sérhæfðu
lausnir sem þarna hafa verið þró-
aðar og færa þær hingað heim. „Og
eins í að flytja út rekstrartengda
þekkingu héðan til að ýta undir
frekari vöxt, enda lítum við núna á
Skandinavíu sem okkar heima-
markað.“
Hreinn segir að kaupverð fyrir-
tækjanna, miðað við svokallað
enterprise value, hafi verið 200
milljónir danskra króna, en það eru
tæpir 2,3 milljarðar íslenskra
króna. „Samanburður á verðlagn-
ingu fyrirtækja úti og hér heima
hefur ekki síst orðið til þess að við
höfum horft meira út fyrir land-
steinana eftir vaxtartækifærum,“
segir hann og bætir við að ANZA
telji sig hafa fengið reksturinn á
mjög sanngjörnu verði. „Við gerum
þetta með lykilstjórnendum, sem
okkur þykir skipta miklu máli, auk
þess sem við sjáum í þessu mikla
möguleika til hagræðingar. Veltan
er mikil og við væntum þess að
geta náð enn meiru út úr þessum
rekstri.“
Kaupþing veitti ANZA ráðgjöf
við kaupin og annaðist fjármögnun
þeirra. ANZA hf., sem er dóttur-
fyrirtæki Símans, var stofnað árið
1997 og sérhæfir sig í rekstri og
uppbyggingu tölvukerfa.
olikr@frettabladid.is
HREINN JAKOBSSON Framkvæmdastjóri ANZA segir kaup á starfsmi á Norðurlöndum
skapa fyrirtækinu fjölda tækifæra.
ANZA kaupir af TietoEnator
fyrir 2,3 milljarða króna
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Þ
ú
ve
rð
u
r
b
ar
a
lík
a…
Atvinna
Stýrimaður óskast
á 240 tonna
netabát
Erling KE 140
Upplýsingar í síma
862-2291
Samanlagðar hreinar vaxtatekjur
viðskiptabankanna gætu dregist
saman um 30 milljarða milli þessa
árs og næsta. Frá þessu var greint í
Vegvísi Landsbankans.
Íslensku viðskiptabankarnir
hafa allir jákvæðan verðtrygging-
arjöfnuð, Landsbankinn 135 millj-
arða króna og Glitnir og Kaupþing
um 115 milljarða hvor um sig. Þetta
hefur skilað þeim talsverðum tekj-
um á þessu ári og er áætlað að
jákvæður verðtryggingarjöfnuður
skili bönkunum samtals um 10 millj-
arða króna hagnaði umfram það
sem væri ef jafnvægisaðstæður
ríktu í þjóðarbúskapnum. Útreikn-
ingar sýna að háir stýrivextir sam-
hliða lágri verðbólgu á næsta ári
munu svo valda því að hreinar
vaxtatekjur bankanna gætu orðið
um 20 milljörðum króna minni en ef
jafnvægi ríkti í þjóðarbúskapnum.
Tekið er fram að breytingar á
forsendum um þróun verðbólgu og
vaxta geti haft mikil áhrif á niður-
stöðuna. - hhs
Viðsnúningur í
vaxtatekjum