Fréttablaðið - 19.10.2006, Síða 35
FIMMTUDAGUR 19. október 2006 3
Hver stórviðburðurinn rak annan á tískuvikunni í París á dögunum
þar sem að Janet Jackson og Victoria Becham þræddu sýningarnar.
Jean-Paul Gaultier hélt upp á þrjátíu ára hönnunarafmæli sitt og
hann hefur svo sannarlega farið langan veg á 30 árum. Frá því að
vera „l´enfant terrible de la mode“ í að fjöldaframleiða fatnað, hátísku
og að vera listrænn stjórnandi hjá Hermès sem er eitt virtasta tísku-
hús í Frakklandi. Kaupendur eru þar á biðlista í nokkur ár til að kaupa
sumar gerðir handtaska. Gaultier hannar átta tískulínur á ári, auðvit-
að með hópi aðstoðarfólks. Hann lét sig ekki muna um að hanna bún-
inga Madonnu að auki fyrir tónleikaferð hennar á árinu sem aftur
varð innblástur fyrir sumarlínuna 2007.
Á sama tíma átti annar hönnuður einnig þrjátíu ára hönnunaraf-
mæli en fagnaði í staðinn því að vera loksins tekinn í hóp samtaka
hönnuða. Þetta er Agnès B. sem hefur um árabil hannað í frjálslegum
stíl sem hentar ungu og fáguðu fólki líkt og Bill Tornade og fleiri.
Agnès B. gat á þessari tískuviku í fyrsta skipti haldið tískusýningu í
hópi viðurkenndra hönnuða.
Fyrirsætur hafa alveg sérstakt göngulag þegar að þær henglast
um sýningarpallinn. Það er reyndar alveg ótrúlegt hversu vel þeim
gengur að fóta sig á tíu til tólf sentimetra háum skóm, sem eru oft
hærri en þeir sem eru svo til sölu hjá tískuhúsunum. Hjá Yves Saint
Laurent var bókstaflega stórhættulegt að sýna. Sviðið var þakið fjólu-
bláum gerviblómum sem auðveldlega hefði verið hægt að flækja
hælunum í en allt fór þó vel fram. Á sýningu Vivienne Westwood var
sviðið hins vegar autt og óskreytt. Skórnir voru svo háir, og hefðu lík-
lega ekki verið samþykktir af byggingarverkfræðingi, að þeir höll-
uðu aftur á bak. Ein vesalings fyrirsætan datt líka aftur yfir sig, hún
hélt þó andlitinu og stillti sér upp á sviðsendanum, sneri við og hélt til
baka. Ekki vildi þá betur til en svo að hún steyptist fram fyrir sig. Því
miður hefur þetta atriði verið klippt burt á netinu.
Annars eru nú fimm mánuðir þangað til sumartískan verður komin
á götuna og aðeins eitt ráð sem hægt er að gefa konum til að undirbúa
næsta sumar og það er megrun. Nánast hver einasti hönnuður býður
upp á míní-síddir, enn styttri en í sumar og vetur. Undantekning er
Gaultier sem er í öllum síddum og hjá Dior og YSL er þó nokkuð af
síðkjólum. Hjá Chanel var hins vegar sagt eftir sýninguna að þar
hefðu ekki sést neinir neðripartar, aðeins efrihlutar, stuttbuxurnar
og pilsin sáust varla. Og hvaða litur haldið þið að verði í tísku? Hvít-
ur! Er ekki eins og maður hafi heyrt þetta áður?
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Twiggy afturgengin feitum
konum til skelfingar
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Framakonur meðal fyrirsætna
á tískusýningu um helgina.
Um næstu helgi verður stór við-
burður í Laugardalshöll en þangað
munu konur geta komið til að eiga
góða stund saman og kynna sér
margt af því sem konur hafa
almennt áhuga á. Þær Nína Björk
Gunnarsdóttir og Selma Ragnars-
dóttir hafa undanfarið staðið í
ströngu við undirbúning og skipu-
lagningu tískusýninga sem verða í
höllinni.
Fyrirsæturnar á sýningunum
eru flestar þekktar meðal almenn-
ings en meðal þeirra má nefna ung-
frú Ísland 2006, Dísu í World Class,
Önnu Margréti Jónsdóttur, Guð-
rúnu Möller, Hugrúnu Harðardótt-
ur, Kolfinnu Baldvinsdóttur, Ingu
Lind fjölmiðlakonu og Elmu Lísu
leikkonu. „Við völdum að nota áber-
andi flottar konur sem skera sig úr,
hver á sinn hátt og eru jafnframt
viðskiptavinir þeirra verslana og
hönnuða sem taka þátt í tískusýn-
ingunni,“ segir Selma Ragnarsdótt-
ir. „Þetta setur skemmtilegan og
líflegan brag á sýningarnar sem
verða kl. 15 á laugardag og kl. 16 á
sunnudag.“
Konan í Laug-
ardalshöll
Þær Nína Björk og Selma hafa staðið
í ströngu við að undirbúa tískusýning-
ar, þar sem meðal annars má sjá það
nýjasta frá Eggerti feldskera.
Fjörður • Hafnarfirði
565 7100
Tískusýning
í ANAS
kl. 20.00 í kvöld
fimmtudaginn 19. október
•
Danski hönnuðurinn
Lisbeth Skov
verður á staðnum
•
Komdu og upplifðu einstakt
kvöld í ANAS
•
Léttar veitinga og óvæntir
glaðningar
SPÖNGINNI S: 587 0740
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
Sokkar geta undirstrikað persónuleikann.
Hnésokkar og sokkar yfirleitt, hafa venjulega ekki þótt mjög smart í
tískusýningum. Einhverjum finnst þó alltaf sjarmerandi að poppa upp
útlitið með sérstökum sokkum, oft á tíðum með skemmtilegum mynstrum
og í alls kyns litum. Hnésokkar henta bæði konum og körlum, þá yfir-
leitt við stutt pils eða stuttbuxur. Hægt er að klæða sokkana upp og niður
með því að vera annað hvort í sætum hælaskóm eða sportlegum striga-
skóm. Sama hvað verður fyrir valinu þá verður heildarútlitið skemmti-
lega frábrugðið hinu hefðbundna.
Stællegir sokkar
Leikarinn Mike Myers fylgir ekki alltaf
straumnum. Köflóttu hnésokkarnir fara
þó vel við skoska þjóðbúninginn.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Létt, ljóst
og sport-
legt úr
haustlínu
Louis
Verdad.
Hnésokkar
geta vel verið
smart ef
þeir eru í stíl
við annan
fatnað. Hér
er fatnaður
úr haustlínu
Louis Verdad.
Það er vel hægt að vera
töff í hnésokkum líkt og
sést á þessari fyrirsætu
sem sýnir föt úr vor- og
sumarlínu Gaspards
Yurkievich.
Frá tískusýningu á
vor- og sumarlínu
Gaspards Yurki-
evich í París.
Chanel setti
nýlega á
markaðinn
olíu í úðaformi
sem hægt er
að spreyja
á líkamann
hvenær sem
húðin þarf á
raka að halda.
Olían er þurr
þannig að hún
smitast ekki í
föt og þornar
umsvifalaust.
Hún ilmar sér-
lega vel, enda
í sömu línu
og ilmurinn
góði sem ber
sama nafn, eða
Chance.
Líkamssprey
frá Chanel
OLÍA Í ÚÐAFORMI.
Chanel Chance olíu-
spreyið gefur húðinni
raka og góðan ilm.