Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.10.2006, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 19.10.2006, Qupperneq 44
[ ] Beinverndardagurinn er á morgun. Björn Guðbjörnsson læknir er einn þeirra sem sinna beinheilsu landsmanna. Gefum honum orðið. „Sterkir vöðvar auka líkur á sterk- um beinum og því eru góðar neysluvenjur, líkamsæfingar og útivera öllum hollar. Með góðum neysluvenjum á ég til dæmis við að tryggja nægilegt kalk og D- vítamín fyrir beinin. Þetta er mik- ilvægast á uppvaxtarárunum þegar við erum að leggja inn á beinabankann. Beinmagnið fimm- faldast í skrokknum á kynþroska- árunum og þá eru þungaberandi æfingar þýðingarmiklar. Hið alvarlega er að einmitt á þeim árum draga margir krakkar úr íþróttaiðkun og neysla mjólkur víkur fyrir öðrum drykkjum. Síðan er styrking vöðvanna líka afar mikilvæg á efri árum því þá byrjar beinmagnið að minnka, eftir tíðahvörf hjá konum og körl- um eftir sextugt.“ Björn er einn þeirra sem stund- að hafa beinþéttnimælingar og segir þær hafa veruleg áhrif til bóta því hægt sé að grípa í taum- ana ef beinþéttnin mælist lág. „Einkenni um beinþynningu koma ekki fram fyrr en fólk beinbrotnar og því eru mælingarnar góð leið til að láta fylgjast með þessum þætti heilsunnar. Beinþéttnimæl- ing er einföld rannsókn, nokkurs konar myndataka. Fólk kemur og leggst á rannsóknarbekkinn og þarf að liggja þar kyrrt í tíu mín- útur, kortér, meðan tæki rennur fyrir ofan það og myndar hrygg og mjaðmir.“ Hann telur fulla ástæðu til að koma á kerfisbund- inni leit eftir beinþynningu, líkt og gert sé í Bandaríkjunum þar sem mælt er með að allar 65 ára gaml- ar konur fari í slíka mælingu og karlar 72 ára. „Hér á landi verða tólf til fjór- tán hundruð beinbrot árlega vegna beinþynningar. Það er mikið. Við erum kannski að tala um 250 mjaðmabrot og fleiri hundruð framhandleggs- og samfellsbrot á hrygg. Við vitum að beinbrot hafa umtalsverð áhrif á lífsgæði því við það að brotna missir fólk færni og jafnvægi. Það hættir jafnvel að ganga um úti og eitt brot eykur hættu á byltum og fleiri brotum.“ Miklar framfarir hafa orðið í meðferð á beinþynningu á síðustu árum að sögn Björns. Ný lyf hafa komið til sögunnar sem þolast almennt vel og áhættan á bein- brotum minnkar um helming við notkun þeirra. Samtök beinverndarfélaga á heimsvísu leggja áherslu á eitt þema á hverjum beinverndardegi. Á síðustu árum hefur augum verið beint að hreyfingu, beinþéttni- mælingu og beinþéttni barna og í ár er það mataræðið. „Við leggjum áherslu á að lík- aminn fái nægilegt kalkmagn sem fæst úr okkar ágætu mjólkuraf- urðum og svo D-vítamín. Þýðing D-vítamíns er að koma betur og betur fram í þætti beinheilsu. Það fæst með útiveru, neyslu á feitum fiski og lýsi. Við ættum öll að taka lýsi yfir veturinn,“ segir Björn og tekur fram að starfsfólk Bein- verndar sé svo heppið að vera í samstarfi við matreiðslumenn sem á morgun ætli víða að kynna beinhollan mat. Í lokin skal bent á heimasíðu Beinverndar, www. beinvernd.is gun@frettabladid.is Leggjum inn á beinabankann Björn sinnir mælingum á styrk beina og gefur góð ráð í framhaldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Heilbrigð sál BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI Í fyrsta gír á Strikinu Ég var í Kaupmannahöfn á sunnu- daginn, á leið minni heim frá Brussel. Stoppið í Kaupmanna- höfn var sérstaklega gert til að slappa vel af og njóta borgarinn- ar áður en ég færi heim í vel skipulagða dagskrá hversdags- leikans. Ég vissi að fáar búðir yrðu opnar eins og alla aðra sunnudaga og hafði svolitlar áhyggjur af því hvað ég ætti að gera þessa átta tíma sem ég yrði þar. Var aðeins farin að bölva í hljóði hvað Danir væru nú langt á eftir okkur Íslendingum varðandi opnunartíma verslana. Hvað eru þeir eiginlega að spá að hafa ekki opið á sunnudögum? Gera þeir sér ekki grein fyrir hversu mikl- um peningum þeir eru að tapa með því að hafa allt lokað? En þegar ég gekk í gegnum borgina og framhjá lokuðum hurðum verslana og upplifði þessa næst- um væru tilfinningu sunnudags- ins, rann það upp fyrir mér að auðvitað á allt að vera lokað á sunnudögum. Sunnudagar eru hvíldardagar og Danir kunna að njóta og „hygge sig“. Þarna var ég bara að njóta mannlífsins og stemningarinnar á Stikinu án þess að vera að hugsa um hvaða búðir ég ætti eftir að fara í og hvað ég ætti eftir að kaupa mér. Og þetta var miklu betra svona. Bara í fyrsta gír að drekka kaffi og borða ís. Í fyrsta sinn í langan tíma þurfti ég ekki að vera ein- hvers staðar að gera eitthvað, heldur gat ég andað djúpt og notið hverrar mínútu. Ég hugsaði með mér að svona eiga allir sunnudag- ar að vera, án skipulags og versl- unarleiðangra og lofaði sjálfri mér þar með að eiga sunnudaga sem hvíldardaga og fara helst ekki í búðir. Það erum við Íslendingar sem erum langt á eftir Dönum í frið- helgi hvíldarinnar og rólegheita. Við kunnum varla að taka okkur frí eða gefa öðrum frí. Við hugs- um of mikið um að við gætum verið að missa af einhverju eða gætum grætt aðeins minni pen- ing. Að hafa verslanir opnar á sunnudögum er ekki spurning um að veita betri þjónustu, heldur líklega aðeins að ýta undir óþarfa eyðslu á peningum og orku, þó að valið liggi auðvitað alltaf hjá okkur sjálfum. Mér fannst alla- vega gott að mér hafi ekki verið hleypt inn í H&M, þar sem ég hefði líklega misst mig eins og okkur Íslendingum er lagið. Það er gott að einhver hafi stundum vit fyrir manni og kippi manni aðeins niður á jörðina og úr sam- félaginu þar sem mest er umbun- að er fyrir atorku og peninga- gróða. Lifið heil! Kvef Ýmsar kvefpestir eiga það til að ganga á haustin sem best er að verja sig fyrir. Takið sólhatt og C-vítamín. Reynið líka að gæta hreinlætis svo að eins manns hnerri verði ekki að faraldri. Útsölustaðir: Apótek, Heilsubúðir, Fjarðarkaup og Hagkaup 1 til 2 tsk. 5 mínútur fyrir t.d. morgunmat og kvöldmat Það veldur mettunartilfinningu, jafnar blóðsykur og kemur meltingunni í jafnvægi. Duftið er troðfullt af öllum helstu vítamínum, steinefnum, ammónísýrum, góðum fitusýrum og próteinum. Lífrænt ræktað, eykur orku, úthald og vellíðan! Gott ráð er að taka inn Living Food Engergy duftið frá dr. Gillian McKeith. Sækir þú mikið í sætindi, halda þér engin bönd? ������� Líka fyrir þig; lífið, fréttirnar og fjörið á ensku
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.