Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 60
19. október 2006 FIMMTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1918 Mesta frost í Reykjavík
mælist, -24,5 gráður.
1924 Vladimír Lenín, leiðtogi
Sovétríkjanna, andast 54
ára að aldri.
1950 George Orwell
rithöfundur andast í
London.
1976 Atli Heimir Sveinsson
hlýtur tónskáldaverðlaun
Norðurlandaráðs, fyrstur
Íslendinga.
1976 Tvær Concorde
farþegaþotur fara af stað
í sitt fyrsta flug samtímis
frá London og París.
1982 Tveir Íslendingar farast við
björgun áhafnar belgísks
togara. Tveir Belgar
drukkna.
Mánuði eftir að fjölmennur her Napóleons
ruddist inn í brennandi og yfirgefna Moskvuborg
neyddist glorsoltinn og þrekaður herinn til að
hörfa og taka stefnuna aftur á París. Undanhald-
ið hófst á þessum degi árið 1812 en Napóleon
hafði ráðist með 500.000 manna herlið inn í
Rússland í júní þetta sama ár.
Þetta var stærsta herlið sem smalað hafði verið
saman í sögu Evrópu en Rússarnir voru þó
ekkert á þeim buxunum að lúffa fyrir ofurefl-
inu og Napóleon mátti þola öfluga mótspyrnu
Rússanna á meðan franski herinn fikraði sig jafnt
og þétt inn í landið.
Það var svo 14. september sem Napóleon kom
til Moskvu en þar reiknaði hann með að finna
vistir og húsaskjól til vetrardvalar fyrir herinn.
Borgin var hins vegar nánast mannlaus og Rúss-
ar gerðu honum alvarlega skráveifu með því að
brenna borgina.
Napóleon beið í mánuð eftir uppgjöf Rússanna
en þeir gáfu sig ekki þannig að þegar rússneski
veturinn fór að láta á sér kræla sá Napóleon sér
þann kost vænstan að draga lið sitt til baka.
Undanhaldið var hin mesta sneypuför en Rússar
gerðu óvæntar og linnulausar árásir á Frakkana
á bakaleiðinni. Her Napóleons var illa haldinn,
vannærður og kaldur og þegar þetta mikla
stórskotalið kom aftur heim til Parísar hafði
það misst 400.000 manns í þessum hörmulega
herleiðangri.
ÞETTA GERÐIST: 19. OKTÓBER 1812
Napóleon hrökklast frá Moskvu
GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR ALÞINGIS-
MAÐUR ER 56 ÁRA Í DAG
Að sjálfsögðu fer ég upp eins
og allir, því Guð fyrirgefur allt.
Ef ekki þá verð ég bara send til
baka á jörðina til að gera upp
gamlar skuldir.
Guðrún veltir fyrir sér eilífðinni í
Fréttablaðinu vorið 2004.
„Þetta leggst mjög vel í mig. Ég hef tekið þátt í kúrsum þarna
uppfrá og veit því nokkurn veginn hverju ég geng að,“ segir
Reynir Kristinsson, sem ráðinn hefur verið deildarforseti
viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst.
Reynir er verkfræðingur að mennt frá Tækniháskólanum
í Óðinsvéum og hefur auk þess MBA-gráðu frá Háskólanum
í Reykjavík. Á liðnum árum hefur hann starfað sem stjórn-
andi og ráðgjafi og til dæmis leitt stefnumörkunar- gæða-
stjórnunar- og breytingastjórnunarverkefni í fjölmörgum
stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Þá hefur hann
meðal annars verið framkvæmdastjóri ParX, IBM Business
Consulting Service á Íslandi, PricewaterhouseCoopers og
Hagvangs. Reynir hefur jafnframt verið stjórnarformaður
CCP, Hagvangs og fleiri fyrirtækja.
Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst er stærsta og elsta
deild háskólans og við hana stunda um 300 nemendur nám.
Deildarforseti hefur á sinni könnu ýmis verkefni, stór og
smá. Hann stýrir deildarfundum, ber ábyrgð á starfsemi og
rekstri deildarinnar og ræður starfsfólk. Hann leiðir jafn-
framt stefnumörkun hennar, svo fátt eitt sé nefnt. „Ég þekki
það ekki nógu vel til að segja til um hvaða breytingar ég vil
sjá á starfsemi skólans, en vona vissulega að ég fái að taka
þátt í stefnumörkun hans eftir því sem tíminn líður. Þekking-
ariðnaðurinn er gríðarlega spennandi umhverfi og ég vill
leggja áherslu á að tengja námið við atvinnulífið,“ segir
Reynir, sem hittir nemendur á Bifröst í dag en hefur form-
lega störf um næstu mánaðamót.
REYNIR KRISTINSSON: NÝR DEILDARFORSETI Á BIFRÖST
Spennandi umhverfi á Bifröst
REYNIR KRISTINSSON Er verkfræðingur að mennt frá Tækniháskólan-
um í Óðinsvéum og er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Okkar ástkæri
Eyjólfur Valgeirsson
áður bóndi á Krossnesi í Árneshreppi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn
20. október kl. 13.00.
Hildur Eyjólfsdóttir
Úlfar Eyjólfsson Oddný S. Þórðardóttir
Petrína S. Eyjólfsdóttir
Fríða Eyjólfsdóttir Árni E. Bjarkason
Valgeir A. Eyjólfsson Kolbrún Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Friðþjófur Haukdal Þorgeirsson
Krókahrauni 4, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 6. október á hjúkrunarheimilinu
Sólvangi.
Við viljum koma fram þakklæti til allra sem önnuðust
Friðþjóf af einstakri alúð og kærleika í hans erfiðu
veikindum. Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Bjarnheiður Sigmundsdóttir
Sigmundur Haukdal Friðþjófsson Guðrún M. Jónsdóttir
Sesselja Haukdal Friðþjófsdóttir
Heiða Hrönn Sigmundsdóttir
Hulda Hrund Sigmundsdóttir
Davíð Hilmar Blessing
Alma Hannesdóttir
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Hennings Þorvaldssonar
Hamrabyggð 14, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins fyrir ómetanlega aðstoð.
J. Steinunn Alfreðsdóttir
Jóna Júlía Henningsdóttir Adólf Adólfsson
Henning F. Henningsson Ása Karin Hólm
Þorvaldur J. Henningsson
Henný Jóna, Vigfús, Arnar Hólm, Lovísa Björt og Hilmar
Smári.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Tryggvi G. Blöndal
fyrrverandi skipstjóri, Hrafnistu,
Hafnarfirði,
verður jarðsettur föstudaginn 20. október kl. 15.00 frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði.
Benedikt Blöndal Ragna Blöndal
Sigurður G. Blöndal Irma Blöndal
Margrét Þ. Blöndal Sigurjón Finnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlý-
hug og stuðning við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jakobs Einars Ármannssonar
Guðjóna Ólafsdóttir
Guðrún Dagný Einarsdóttir Magnús Geir Helgason
Steinunn Aldís Einarsdóttir Guðlaugur Ævar Hilmarsson
Ármann Einarsson Marit Van Rangelroy
Jóndís Sigurrós Einarsdóttir Agnar Þór Sigurðsson
Ingibjörg Einarsdóttir Haraldur Júlíusson
Helga Einarsdóttir Halldór Sveinbjörnsson
Kristrún Einarsdóttir Brynjar Már Eðvaldsson
barnabörn og fjölskyldur
Guð blessi ykkur öll.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Jóhann Guðmundsson
efnaverkfræðingur, Hraunbæ 103,
lést 16. október sl. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 23. okt. kl. 13.00.
Solveig Jóhannsdóttir
Hrönn Harðardóttir Þorsteinn Lýðsson
Solveig Þóra Þorsteinsdóttir
Jökull Ernir Þorsteinsson
Erna Harðardóttir
Þorsteinn Jóhannsson Katrín Sigurðardóttir
Kristín Þorsteinsdóttir
Páll Þorsteinsson
Pétur Þorsteinsson
Alúðar þakkir fyrir hlýju og vinsemd við
andlát og útför
Valdimars Jónssonar
skipstjóra, Vesturgötu 15a, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir frábæra umönnun
og hlýju á liðnum árum. Guð blessi ykkur öll.
Árnína Jónsdóttir
Jón Kristinn Valdimarsson María Loftsdóttir
Margrét Lilja Valdimarsdóttir Karl Hermannsson
Þórður Gunnar Valdimarsson
Erna Valdís Valdimarsdóttir
og afabörn