Fréttablaðið - 19.10.2006, Side 70
19. október 2006 FIMMTUDAGUR46
AF HVÍTA TJALDINU
Þórarinn Þórarinsson
Leikstjórinn Martin Scorsese er í toppformi í sinni nýjustu mynd The
Departed og gagnrýnendur halda vart vatni af hrifningu. Handrit
myndarinnar er byggt á Hong Kong myndinni Infernal Affairs en
sagan er færð með miklum ágætum til Boston þar sem löggur og bófar
takast á með miklum bægslagangi.
Það er því óhætt að segja að Scorsese sé kominn aftur á kunnugleg-
ar slóðir en hann er, eins og dæmin sanna, áberandi bestur þegar hann
fæst við glæpahyski og durta. The Departed ber öll helstu höfundar-
einkenni leikstjórans sem nær ótrúlega miklu út úr vöskum leikhópn-
um.
Myndin kemst næstum því með tærnar þar sem Scorsese hafði
hælana í Goodfellas og Casino og sem fyrr hefur hann einstakt lag á að
útfæra ofbeldi á ónotalega smekklegan hátt.
Scorsese gerði Casino árið 1995 og síðan þá hefur hann látið mafíósa
eiga sig og gert ágætis myndir á borð við Gangs of
New York og Aviator en það verður að segjast
eins og er að það fer manninum langbest að
blanda sér í skipulagða glæpastarfsemi.
Robert De Niro hefur iðulega borið bestu
myndir Scorsese uppi en hann hefur nú skipt
sínum manni út fyrir Jack Nicholson sem
kemur inn af fullum krafti og er mun
ferskari en De Niro hefur verið síðustu ár.
Samstarf þessa tveggja risa í amerískri
kvikmyndagerð er því bæði heppilegt og
löngu tímabært. De Niro hefur staðnað og
getur vart leikið nokkuð annað en sjálfan
sig.
Scorsese er hins vegar enn ferskur og
eins og góður þjálfari verður hann að
skipta markakóngi sínum út þegar hann
hættir að skora en þá er ekki ónýtt að vera
með hamhleypu eins og Nicholson á
kantinum.
Scorsese á heimavelli
bio@frettabladid.is
Eftirlætis kvikmynd:
Planes, trains and automobiles með
Steve Martin og John Candy.
Ef t i rminni legasta
atriðið:
Skólaballið hennar
Carrie í samnefndri
mynd eftir De
Palma, fær svína-
blóð í hausinn.
Uppáhaldsleikstjóri:
Brian De Palma sem gerði bæði
Scarface og Untouchables
Mesta kvikmyndastjarna allra tíma:
Grínistinn Jack Black
Mesta hetja hvíta tjaldsins:
Tom Cruise fær þann titil, án nokkurs
vafa.
Mesti skúrkurinn:
Ralph Fiennes sem nasistinn í Schind-
ler´s list, illmenni af verstu gerð.
Hvaða persóna fer mest í taugarnar
á þér?
Erfitt að velja á milli Mels Gibson og
Wills Smith.
Ef þú fengir að velja þér kvikmynd
til að leika í, hvernig væri sögu-
þráðurinn, hver væri leikstjóri og
hver myndi leika á móti þér?
Ég lék einu sinni í helvíti fínni
mynd um Geirfinnsmálið
sem aldrei var kláruð. Þar
var leikstjóri Viðar Víkings-
son og á móti mér léku
ekki ómerkari menn en
Sigmundur Ernir Rúnars-
son, Ævar Örn Jósepsson
og Gulli Helga. Ég lék
gríðarlega ábúðarfullan
rannsóknalögreglumann.
Þessa mynd myndi ég vilja
sjá kláraða takk fyrir.
KVIKMYNDANJÖRÐURINN SIGURJÓN KJARTANSSON, GRÍNARI
Vill klára Geirfinnsmyndina
JACK
BLACK
SIGURJÓN KJARTANSSON
GOTT GLÁP
The Da Vinci Code: Tom Hanks
er kannski ekki sá besti í hlutverki
Roberts Langdon en fyrir þá sem
hafa ekki lesið bókina er myndin
prýðileg skemmtun.
X - Men: Last Stand: Síðasta myndin um X-Man flokk
Charles Xavier stendur forverum sínum ekki langt að baki,
tilvalin í tækið á föstudagskvöldi.
Poseidon: Kvikmynd fyrir þá sem hafa
gaman af hetjudáðum og stórslysa-
myndum. Ekki skemmir nærvera Kurts
Russell.
Goodfellas: Fínt að hita aðeins upp fyrir nýjustu kvikmynd
Martin Scorsese en The Departed stendur þessari mynd
víst ekki langt að baki.
Íslenska sakamálamyndin
Mýrin í leikstjórn Baltasars
Kormáks verður frumsýnd
á Íslandi á morgun. Mynd-
in byggir, eins og alþjóð
sjálfsagt veit, á samnefndri
skáldsögu Arnaldar Ind-
riðasonar um rannsóknar-
lögreglumanninn Erlend.
Þórarinn Þórarinsson
ræddi við Ingvar E. Sig-
urðsson sem túlkar Erlend
á hvíta tjaldinu.
Glæpasögur Arnaldar hafa notið
fádæma vinsælda á Íslandi síðustu
ár og það er því óhætt að fullyrða að
aðlögun Mýrarinnar að kvikmynda-
forminu hafi verið beðið með tals-
verðri eftirvæntingu. Ingvar er
meðvitaður um áhugann en lætur
það ekki hræða sig þó vænn hluti
þjóðarinnar hafi myndað sér skoð-
un á persónunni og fjöldi lesenda sé
búinn að búa sér til ákveðna mynd
af lögreglumanninum.
Gæti verið Erlendur
„Mér fannst Erlendur vera þraut til
að leysa,“ segir Ingvar. „Ég þekkti
lítið til hans þegar þetta kom upp og
byrjaði á því að lesa allar bækurn-
ar. Ég sá alveg fyrir mér að ég gæti
leikið mann sem er aðeins eldri en
ég sjálfur enda er ég að verða 43
ára og Erlendur þarf ekki að vera
mikið eldri en ég er. Það gengur líka
alveg upp að maður á þessum aldri
eigi langan feril í lögreglunni að
baki og ég gæti alveg átt dóttur um
tvítugt eins og Erlendur. Ég sann-
færði mig því um að þetta væri ekk-
ert mál og ég gæti alveg gert
þetta.“
Ingvar segist hafa reynt að gefa
Erlendi þá vigt sem hann á skilið og
hentar honum og það hafi ekki þurft
átakanlegan undirbúning til þess.
„Þetta var fyrst og fremst gott
verkefni.“
Stelst til að leika lifandi persónu
Vinsældir bóka Arnaldar um Erlend
eru slíkar að framhaldsmyndir
hljóta að koma til tals og Ingvar
segist vel vera tilbúinn til þess að
vinna áfram með persónuna. „Ef
myndin verður vinsæl og Arnaldur
samþykkir fleiri myndir þá er ég
tilbúinn en við sjáum bara til. Ég er
ekki einu sinni að hugsa um þennan
möguleika,“ segir Ingvar og bætir
því við að það sé að mörgu leyti sér-
stakt að leika persónu sem er enn í
þróun eins og Erlendur. „Bækurnar
um hann eiga kannski eftir að verða
fleiri, hver veit, og það er svolítið
skrýtið að leika svona persónu enda
er þetta eins og maður sé nánast að
stelast til að leika mann sem er á lífi
og býr Reykjavík.“
Fastur í London
Ingvar og Baltasar hafa oft unnið
saman og Ingvar lætur ákaflega vel
að samstarfinu við þennan gamla
félaga sinn við gerð Mýrarinnar.
„Þetta var æðislega gaman og and-
rúmsloftið á tökustað var mjög gott.
Þetta var ekki stór hópur og við
þekkjumst öll vel.“
Ingvar er staddur í London þar
sem hann leikur á sviði í Hamskipt-
unum eftir Kafka og hann getur því
ekki verið viðstaddur frumsýningu
myndarinnar. „Því miður kemst ég
ekki. Ég er búinn að reyna allt
þannig að það er ekki af áhugaleysi
sem ég verð fjarverandi og mér
finnst þetta ferlega leiðinlegt.“
Hamskiptin hafa gengið vonum
framar í London en Ingvar er vænt-
anlegur heim í lok mánaðarins.
„Þetta hefur gengið rosalega vel og
leikhússtjórinn er mjög ánægður
með hvernig gengur í miðasölunni,“
segir Ingvar sem unir hag sínum
vel í London þó hann geti ekki fagn-
að frumsýningu Mýrarinnar með
félögum sínum.“
Erlendur var þraut til að leysa
ERLENDUR Rannsóknarlögreglumað-
urinn hefur í nógu að snúast þegar lík
finnst í Norðurmýrinni en líkfundurinn
á eftir að vinda upp á sig þannig að
Erlendur þarf að leysa flókna ráðgátu.
Kvikmyndahátíðin í London hófst í
gær en þetta er í fimmtugasta sinn
sem hátíðin er haldin í borginni.
Gala-opnunarmynd hátíðarinnar
er The Last King of Scotland þar
sem Forest Whitaker þykir fara á
kostum í hlutverki Idi Amins, fyrr-
verandi einræðisherra í Úganda.
Fjöldi nýrra breskra mynda er
á dagskrá hátíðarinnar auk þess
sem franskri kvikmyndagerð verð-
ur gerð nokkur skil en alls eru
myndirnar á hátíðinni sýndar í níu
efnisflokkum.
Samkvæmt venju heiðrar fjöldi
góðra gesta hátíðina og þar á meðal
má nefna Forest Whitaker sem
mun ræða feril sinn og samstarf
við fjölskrúðugan hóp leikstjóra
um árin. John Cameron Mitchell
talar um kynlíf í kvikmyndum en
hin opinskáa mynd hans Shortbus
er á dagskrá hátíðarinnar og Hol-
lendingurinn Paul Verhoeven
(Basic Instinct, Robocop) mun tjá
sig um verk sín.
Babel eftir Alejandro González
Iñárritu er sýnd í flokki með Fast
Food Nation og Shortbus en allar
vöktu þessar myndir athygli á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor
og þar hlaut Iñárritu leikstjóra-
verðlaunin fyrir Babel.
Gamanmyndin Borat mun einn-
ig setja svip sinn á hátíðina sem
býður upp á nokkrar myndir sem
Íslendingum gafst kostur á að sjá á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík á dögunum en þar á
meðal eru Red Road, Falling, eftir
Barbara Albert, og The US vs.
John Lennon.
Líf og fjör í London
FOREST WHITAKER Er einn gesta á kvik-
myndahátíðinni í London og myndin
The Last King of Scotland er opnunar-
mynd hátíðarinnar en þar leikur hann
sjálfan Idi Amin.
INGVAR E. SIGURÐSSON Reyndi að gefa Erelndi þá vikt sem hann á skilið og þurfti ekki
að hafa mikið fyrir því að setja sig í spor þessa veðraða rannsóknarlögreglumanns.