Fréttablaðið - 19.10.2006, Síða 82
58 19. október 2006 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Í dag fara fram fyrstu
leikirnir í Iceland Express-deild
karla í körfubolta og á dögunum
var kynnt spá þjálfara, leikmanna
og forsvarsmanna félaganna í
deildinni fyrir komandi vetur.
Samkvæmt spánni er Íslands-
meisturunum í Njarðvík spáð
deildarmeistaratitlinum en Njarð-
víkingar sigruðu einmitt Meist-
arakeppni KKÍ um síðustu helgi
þegar liðið lagði Grindavík. Spá er
bara spá og enginn heilagur sann-
leikur í henni, en samt sem áður er
alltaf gaman að rýna í spá tíma-
bilsins og fá smá innsýn inn í
vangaveltur þjálfara og leik-
manna.
Sú spá að Njarðvíkingum sé
spáð sigri þarf vart að koma mörg-
um á óvart. Njarðvíkingar eru
ríkjandi Íslandsmeistarar og hafa
fengið Igor Beljanski til liðs við
sig frá Snæfelli, en Beljanski skor-
aði 17 stig að meðaltali í leik á síð-
ustu leiktíð og tók auk þess 10
fráköst að meðaltali í leik.
„Þetta kemur ekkert á óvart,
við erum ríkjandi meistarar.
Okkur hefur verið spáð titlinum
a.m.k. síðustu þrjú tímabil og það
rættist loksins í fyrra. Þetta var
kannski spurning hvort okkur yrði
spáð fyrsta eða öðru sæti miðað
við það sem á undan er gengið,“
sagði Einar Árni Jóhannsson,
þjálfari Njarðvíkur, um spána. Það
þarf heldur ekki að koma mörgum
á óvart að markmið Njarðvíkinga
er að vinna alla þá titla sem eru í
boði.
„Það var mjög ánægjulegt að
vinna þennan bikar á sunnudag-
inn. Það er hörkutímabil framund-
an og sjálfstraust leikmanna er að
komast í fínt lag. Við erum í þessu
til að vinna og setjum stefnuna á
fyrsta sætið í þeim keppnum sem
við tökum þátt í,“ sagði Einar
Árni.
Gunnar Einarsson, leikmaður
Keflavíkur, er að sjálfsögðu ekk-
ert á því að láta nágrannana vinna
deildina. „Þetta er bara spá en þeir
eru með sterkt lið en það höfum
við líka. Við erum ekkert í þessu
bara til að vera með,“ sagði Gunn-
ar Einarsson og bætti því við að
erlendu leikmenn liðsins væru að
falla vel að leik liðsins.
Lið Þórs í Þorlákshöfn er nýliði
í deildinni og er spáð neðsta sæti
deildarinnar, en Þór vann úrslita-
keppnina í fyrstu deildinni á síð-
ustu leiktíð. Robert Hodgson,
þjálfari Þórs, sagði að nú væri
bara þeirra að afsanna þessa spá.
„Þetta er bara spá og einhverjir
þurfa að taka það að sér að vera
spáð neðsta sætinu. Við erum með
góða einstaklinga í liðinu og ég
er mjög ánægður með hópinn. Við
höfum átt góða leiki á undirbún-
ingstímabilinu og vonandi náum
við að afsanna þessa spá.“
dagur@frettabladid.is
Njarðvíkingum spáð
deildarmeistaratitlinum
Íslandsmeisturum Njarðvíkur er spáð efsta sætinu í Iceland Express-deild karla
í körfubolta en Þór frá Þorlákshöfn og Tindastóli er spáð í falli í vetur.
HÖRKU TÍMABIL FRAMUNDAN Það er væntanlega komin tilhlökkun í leikmenn fyrir
komandi leiktíð í körfunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Iceland Express deild karla:
1. NJARÐVÍK 413
2. KEFLAVÍK 399
3. KR 325
4. SKALLAGRÍMUR 310
5. SNÆFELL 306
6. GRINDAVÍK 244
7. ÍR 218
8. HAUKAR 171
9. HAMAR/SELFOSS 127
10. FJÖLNIR 122
11. TINDASTÓLL 108
12. ÞÓR ÞORLÁKSHÖFN 67
SPÁIN FYRIR TÍMABILIÐ
FÓTBOLTI Breiðablik mætir í dag
Englandsmeisturum Arsenal í
fjórðungsúrslitum Evrópukeppni
félagsliða kvenna. Fyrri leikur lið-
anna fór fram á Kópavogsvelli í
síðustu viku og báru þær ensku 5-
0 sigur úr býtum eftir að hafa
verið með eins marks forystu í
hálfleik.
Guðmundur Magnússon, þjálf-
ari Blika, segir að góður andi ríki í
hópnum og mikil tilhlökkun að
takast á við verkefni dagsins.
Hann var nýkominn á hótel liðsins
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. „Við ætlum að taka því
rólega í dag og mæta úthvíld í leik-
inn. En það eru allir staðráðnir í
því að gera betur en fór í síðasta
leik,“ sagði Guðmundur.
Breiðablik náði að halda velli í
fyrri hálfleik liðanna í síðustu
viku en fékk svo fjögur mörk á sig
í þeim síðari. Guðmundur segir að
sínir leikmenn hafi borið of mikla
virðingu fyrir andstæðingnum.
„Við ætlum að reyna að spila vel í
báðum hálfleikjunum í þetta skipt-
ið. En mér fannst við vera of langt
frá þeim í þessum leik og lékum
ekki með þeim baráttuhug sem
þurfti til. Sjálfstraustið var ekki
til staðar og við sóttum ekki nógu
grimmt á þær.“
Hann segir að leikmenn hafi
lært sína lexíu. „Nú er staðan
þannig að við höfum engu að tapa
og ætlum bara að njóta þess að
spila þennan leik. Þetta hefur auð-
vitað verið frábær keppni fyrir
okkur og við ætlum að reyna að
ljúka okkar þátttöku í henni á
jákvæðum nótum.“
Þetta er nú í annað árið í röð
sem íslenskt lið kemst í fjórðungs-
úrslit keppninnar og segir Guð-
mundur það vissulega vera
ánægjulegt og vonandi að það
haldi áfram á þeim nótum. „Og ég
er sannfærður um það að fjórð-
ungsúrslitin eru ekki óyfirstígan-
leg hindrun fyrir íslensk lið. Það
hefst með tíð og tíma.“
Guðmundur sagði einnig búast
við því að ganga frá samningum
við knattspyrnudeild Breiðabliks
að halda áfram með þjálfun
liðsins. - esá
VERÐUR ERFITT Blikar verjast hér sókn Arsenal í fyrri leik liðanna. Það verður við
ramman reip að draga í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Breiðablik mætir Arsenal í síðari leik liðanna í Lundúnum í dag:
Ætlum að njóta þess að spila þennan leik
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu situr í 95. sæti á
styrkleikalista FIFA sem var
gefinn út í gær. Liðið hefur því
fallið um átta sæti síðan að listinn
kom síðast út en Ísland hefur
tapað síðustu þremur landsleikj-
um sínum og þarf því árangurinn
ekki að koma á óvart. Ísland er á
milli Afríkuríkjanna Malaví og
Gabon.
Brasilía er sem fyrr í efsta
sæti listans en heimsmeistarar
Ítala skjótast upp í 2. sætið úr því
fimmta. Hástökkvari listans er
Barbados sem fór úr 152. sæti í
það hundraðasta. - esá
Styrkleikalisti FIFA:
Ísland féll um
átta sæti
GEGN SVÍUM Eiður Smári reynir að kom-
ast framhjá Mikael Nilsson, leikmanni
Svía. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Newcastle tekur á móti
tyrkneska liðinu Fenerbache í
kvöld og svo gæti farið að þriðji
markvörður Newcastle, Tim Krul,
þurfi að standa á milli stanganna
hjá liðinu. Steve Harper, aðal-
markvörður Newcastle í fjarveru
Shay Given, á við lítilsháttar
meiðsli að stríða og það kemur
ekki ljós fyrr en í dag hvort hann
getur spilað.
„Krul er mjög efnilegur
markvörður og ef hann þarf að
verja markið í þessum leik þá hef
ég engar áhyggjur,“ sagði Glenn
Roeder, framkvæmdastjóri
Newcastle. Einnig er óvíst hvort
Rustu Recber, markvörður
Fenerbache, getur leikið í dag
vegna veikinda. - dsd
Newcastle-Fenebache:
Markvarða-
vandræði
STEVE HARPER Hefur varið mark
Newcastle í fjarveru Shay Given, sem
meiddist illa í síðasta mánuði.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Fréttir frá Spáni herma
að Real Madrid sé í viðræðum við
Steaua Bucarest um kaup á
rúmenska varnarmanninum
Mirel Radoi. Stjórnarmenn
Steaua hittu Ramon Calderon,
forseta Real Madrid, eftir leik
liðanna í Meistaradeild Evrópu á
þriðjudaginn til að ræða hugsan-
leg viðskipti.
Fréttir herma jafnframt að
Real Madrid vilji fá leikmanninn
að láni í sex mánuði og að félagið
geti síðan keypt Radoi í kjölfarið,
fari svo að hann standi sig vel hjá
Real Madrid. Radoi er að jafna
sig eftir aðgerð á ökkla og lék
ekki með Steaua gegn Real
Madrid í vikunni. - dsd
Real Madrid:
Rúmeni orðað-
ur við félagið
MIREL RADOI Er 26 ára gamall og hefur
leikið 38 landsleiki fyrir Rúmeníu.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Charlton Athletic, lið
Hermanns Hreiðarssonar og
Rúriks Gíslasonar, hefur farið
skelfilega illa af stað í ensku
úrvalsdeildinni en félagið er í
neðsta sætinu með þrjú stig eftir
átta fyrstu leikina. Talað hefur
verið um það í fjölmiðlum á
Englandi að Ian Dowie, fram-
kvæmdastjóri Charlton, eigi ekki
marga daga eftir í starfi en
stjórnin virðist vera sátt við
hann.
„Auðvitað vill enginn byrja
tímabilið svona en við í stjórninni
erum sannfærðir um að Dowie er
rétti maðurinn í starfið. Þetta er
ekki stuðningsyfirlýsing af því að
Dowie þarf ekki á henni að halda,
hann er með þriggja ára samn-
ing,“ sagði Peter Varney, stjórn-
arformaður Charlton.
Yfirlýsingar af þessu tagi hafa
hins vegar oft verið fyrirboði
brottreksturs viðkomandi
þjálfara, það þarf því ekki að
koma mönnum á óvart ef Dowie
verður fljótlega rekinn úr starfi.
- dsd
Stjórn Charlton Athletic:
Ian Dowie er
rétti maðurinn
VALTUR Í SESSI Ian Dowie hefur byrjað
feril sinn hjá Charlton hræðilega.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Samkvæmt afar áreiðan-
legum heimildum Fréttablaðsins
hefur Óskar Örn Hauksson og KR
komist að samkomulagi að Óskar
leiki með liðinu á næstu leiktíð.
Tilkynnt verður um þetta á allra
næstu dögum.
Ray Anthony Jónsson, félagi
Óskars hjá Grindavík, hefur einn-
ig átt í viðræðum við KR og er
sterklega orðaður við Vesturbæj-
arveldið.
Samningar þeirra við Grinda-
vík renna í báðum tilvikum út um
áramótin en þeim var frjálst að
ræða við önnur félög eftir 15. okt-
óber síðastliðinn. Óskar var einnig
orðaður við Val og fleiri lið í
Landsbankadeildinni en nú hefur
KR unnið kapphlaupið um kapp-
ann. Vitað er að Teitur Þórðarson,
þjálfari KR, vildi styrkja liðið
fyrir átök næsta sumars. KR varð
í 2. sæti Landsbankadeildarinnar
eftir slaka byrjun og komst í úrslit
bikarkeppninnar. Grindavík tókst
ekki að bjarga sér frá falli í haust
og varð snemma ljóst að liðið
myndi missa marga af sínum
sterkustu leikmönnum.
Jóhann Þórhallsson hefur stað-
fest við Fréttablaðið að hann sé
nánast örugglega á leið frá Grinda-
vík og þá sagði Jóhann Helgason í
gær að sín mál væru enn óleyst.
- esá ÓSKAR ÖRN Hér í slagnum gegn Jens Sævarssyni, Fylkismanni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Óskar Örn Hauksson er á leið frá Grindavík:
Óskar Örn fer til KR