Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 25
Ólafur Hjálmarsson verkfræð-
ingur hefur mikinn áhuga á
hljóðvist í skólum sem hann
segir að sé víða ábótavant.
Ólafur segir að hljóðvist í skólum
sé mjög mikilvæg til þess að börn-
in geti einbeitt sér almennilega að
náminu og rannsóknir hafi sýnt að
þau börn sem læra í umhverfi þar
sem er mikill hávaði dragist fljótt
aftur úr hinum. „Í því samhengi
skiptir engu máli hvort hávaðinn
verður til inni í skólastofunni eða
utan hennar, ef umhverfið er of
hávært kemur það niður á líðan og
námsárangri og eykur hegðunar-
vandamál,“ segir hann.
Hljóðvist er ófullnægjandi í
alltof mörgum skólum á Íslandi að
sögn Ólafs. „Við erum að glíma við
uppsafnaðan vanda sem að hluta
til byggist á ófullnægjandi hús-
næði og að hluta til á breyttum
kennsluháttum. Margar skóla-
byggingar eru hreinlega ekki
byggðar rétt og ekki einu sinni að
uppfylla ekki einu sinni reglugerð
sem þó ætti að vera strangari og
opið kennsluumhverfi gerir enn
meiri kröfur til góðrar hljóðhönn-
unar en gamla stofuskiptingin.
Ingunnarskóli í Grafarvogi er gott
dæmi um svokallaðan opinn skóla
og ég var á sínum tíma fenginn til
þess að vera með hljóðráðgjöf við
hönnun skólans. Það er eitt
ánægjulegasta verkefni sem ég
hef tekið að mér.“
Ólafur telur að endurskoða
þurfi ákvæði byggingarreglugerð-
ar sem fyrst og segir það deginum
ljósara að hún nái ekki nógu langt.
„Umhverfisráðuneytið segir að ný
reglugerð sé ekki væntanleg fyrr
en í fyrsta lagi eftir tvö til þrjú ár
og það er náttúrlega alltof langur
tími í lífi barna sem þurfa að búa
við of mikinn hávaða í skólanum
daglega.“
Ólafur segir að þó að endur-
bætur séu nauðsynlegar í mörgum
skólum megi þær ekki vera ómark-
vissar. „Ég legg mikla áherslu á að
raunverulegt ástand sé mælt og
borið saman við æskileg markmið
og eftir endurbætur sé síðan mælt
hvort tilskilinn árangur hefur
náðst.“
Hávaði hefur áhrif
Íslendingar og útlendingar fá allar upplýsingar á ensku um allt það sem heimsborgin Reykjavík státar af á hverjum
tíma.; menningarviðburðir, tónleikar, skemmtistaðir, veitingastaðir, söfn, gallerí, tíska, verslanir og næturlíf.
Líka fyrir þig; lífið, fréttirnar og fjörið á ensku