Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 62

Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 62
Alex James, bassaleikari Blur, segir að fyrrverandi gítarleikari sveitarinnar, Graham Coxon, sé velkominn aftur í sveitina. Coxon hætti fyrir þremur árum til að einbeita sér að sóló- ferli sínum. Núna eru taldar líkur á að upphaflegir liðsmenn Blur muni koma saman til að taka upp nýja plötu. „Vonandi getur Blur hætt störfum sem hamingjusamt fjögurra manna band,“ sagði James. „Það væri synd ef það yrði ekki að veruleika. Ég held að við viljum allir gera nýja plötu.“ Vill Coxon aftur í Blur Safnplatan „100 íslensk jólalög fyrir alla fjölskylduna á 5 geisla- plötum“ kemur út á mánudag. Á plötunum fimm er að finna sam- tals hundrað jólalög með íslensk- um flytjendum. Á tveimur plötum eru vinsæl- ustu jólalögin síðustu tvo áratug- ina, á einni er að finna öll gömlu góðu jólalögin með eldri flytjend- um, á einni er að finna vinsælustu jólabarnalögin og á síðustu eru hátíðlegri jólalögin. Á meðal laga eru Snæfinnur snjókarl með Björgvini Halldórssyni, Ef ég nenni með Helga Björns, Skrámur skrifar jólasveininum með Ladda og Jólahjól með Sniglabandinu. Pakkinn er númer þrjú í þess- ari vinsælu seríu en þess má geta að safnplatan „100 íslenskir sum- arsmellir“ er söluhæsta platan á árinu til þessa. Vinsælustu jólalögin Kevin Federline, eiginmaður poppprinsessunnar Britney Spears, ætlar að skrifa sjálfsævi- sögu sína. Fyrrum dansarinn Fed- erline, sem nú er orðinn rappari, vill leyfa almenningi að kynnast lífi sínu áður en hann hitti Britney. Mun hann ekki segja frá hjóna- bandi þeirra. „Bókin hefur verið ákveðin. Hún segir frá lífi mínu þat til ég hitti eiginkonu mína, til að fólk geti skilið mig betur,“ sagði hann. Gefur út ævisögu Brad Pitt og Angelina Jolie stefna víst að því að ættleiða eitt barn fyrir hvert barn sem þau eignast saman. Hugmyndin er væntan- lega runnin undan rifjum Angel- inu sem segist vera með sam- viskubit vegna allra munaðarlausu barnanna í heim- inum. Eins og kunnugt er á Ang- elina tvö ættleidd börn, auk dótt- urinnar sem skötuhjúin eignuðust saman fyrir skemmstu. Brad Pitt langar óstjórnlega að eignast annað barn með konu sinni og hann vill síður ættleiða. Tomb Raider-skutlan virðist þó halda um stjórnartaumana í sam- bandinu, því fréttir hafa borist af því að parið ætli sér að ættleiða barn frá Indlandi, þar sem þau dveljast þessa dagana. Stefna að því að ættleiða saman Agnar Agnarsson, sem er þekktur sem plötusnúður- inn Agzilla, gefur á næst- unni út sína fyrstu plötu hjá plötufyrirtæki Goldie, Metalheadz. „Við erum búnir að þekkjast í sautján ár. Ég er tiltölulega nýbyrjaður að búa til tónlist en hann var rosahrifinn af músíkinni og vildi gefa hana út,“ segir Agnar. Kynntust þeir þegar Goldie var að gera graffiti-listaverk á nætur- klúbbi einum á sama tíma og Agnar var að opna sína fyrstu verslun í Þingholtsstræti, sem hét Undir- göngin. Núna rekur hann aftur á móti gistiheimili í Skólastræti. Agnar segist búa til raftónlist en hún sé frábrugðin öðru sem hann hafi heyrt. Um sé að ræða hræri- graut úr mismunandi hljóðum, þar á meðal breakbeat. Goldie sjálfur kemur ekki við sögu á plötunni, sem nefnist Cats Can Hear Ultra- sound. „Það verður gefin út fjögurra laga EP-plata fyrst og svo kemur stóra platan út. Þetta er áhugavert út af því að þeir hafa yfirleitt bara gefið út drum and base á þessu „labeli“. Það er verið að taka sénsa með það sem ég er að semja,“ segir Agnar, sem er fyrsti sólótónlistarmaður- inn sem gefur út stóra plötu hjá fyrirtækinu. Agnar hefur verið plötusnúður í sautján ár en hann byrjaði að semja sjálfur fyrir um það bil þremur árum. „Þetta hefur gengið rosavel. Tónlistin er hálfgerð þer- apía fyrir mig. Ég er ekkert að gera þetta til að komast á kortið eða græða peninga, enda er ég upptekinn við að reka gistiheimil- ið,“ segir hann. Platan er væntanleg í desember eða byrjun næsta árs. Mun Agnar hugsanlega spila á Metalheadz-kvöldi í Miami í apríl til að kynna gripinn enn frekar. Ofurtala !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 FEARLESS kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20 DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA TALLADEGA NIGHTS kl. 8 og 10.20 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR BORAT kl. 4, 6, 8, 10 og 12 B.I. 12 ÁRA FEARLESS kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20 DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 3.50 BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA L.I.B. Topp5.is Topp5.is M.M.J kvikmyndir.com “Ein fyndnasta gamanmynd ársins” HJ - MBL EMPIRE20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI "...groddalegur og beinskeyttur húmor... þannig að maður ælir nánast af hlátri" ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON - FRÉTTABLAÐIÐ Ég set Borat í raðir fyndnustu mynda sem ég hef séð. Borat er tvímælalaust fyndnasta mynd ársins, ef ekki sú frumlegasta. VIGNIR JÓN VIGNISSON - TOPP5.IS ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA? 50 þúsund gestir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.