Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 14
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
AFSLÁTTUR
35%
Sheik Taj Aldin Al-
Hilali, múslimaklerkurinn í Ástr-
alíu sem vakti hörð viðbrögð í sept-
ember þegar hann sagði
slæðulausar konur vera eins og
óvarið kjöt, sagðist á föstudag ætla
að segja af sér ef óháð nefnd kemst
að þeirri niðurstöðu að með þess-
um ummælum hafi hann verið að
hvetja til nauðgana.
Al-Hilali hefur verið æðsti leið-
togi múslima í Ástralíu frá árinu
1989. Síðastliðinn mánudag ákvað
hann að taka sér frí um óákveðinn
tíma eftir að hann féll í yfirlið í
Lakemba-moskunni í Sydney.
Hann sneri þó aftur í moskuna í
gær, vopnaður blómum sem hann
gaf bæði fjölmiðlum og lögregl-
unni, og var fagnað þar af hundruð
stuðningsmanna sinna sem mættir
voru til hádegisbæna.
Einnig sendi hann frá sér yfir-
lýsingu þar sem hann hvatti til
þess að þriggja manna nefnd, skip-
uð einum dómara og tveimur lög-
mönnum, yrði fengin til að rann-
saka ummælin umdeildu frá í
september.
„Hver sá,“ sagði í yfirlýsing-
unni, “sem réttlætir nauðgunar-
glæp eða hvetur til slíks undir
hvaða kringumstæðum sem er, eða
hver sá sem vanvirðir ástralskar
konur vegna klæðnaðar þeirra, er
ekkert annað en fávís, heimskur
og brjálaður og á ekki skilið að
gegna neinni ábyrgðarstöðu.“
Ætlar kannski að
segja af sér
Stjórn Bandalags
íslenskra námsmanna sendi frá
sér yfirlýsingu á fimmtudag þar
sem fyrirkomulagi á vali rektors
við HR og Háskólann á Bifröst er
mótmælt. Í báðum skólunum velja
háskólaráð eða háskólastjórn rekt-
ora án aðkomu nemenda eða full-
trúa þeirra.
Þetta fyrirkomulag við val
rektors hefur verið notað við HR í
nokkurn tíma, en reglunum um
val rektors við Háskólann á Bif-
röst var nýlega breytt í þessa átt.
Í yfirlýsingunni er háskólaráð
Háskólans í Reykjavík hvatt til að
að huga að breytingum á þessu
fyrirkomulagi, nú þegar núver-
andi rektor skólans, Guðfinna
Bjarnadóttir, hverfur til annarrra
starfa. Haukur Logi Karlsson,
formaður BÍSN, segir að þetta fyr-
irkomulag sé í mótsögn við sam-
evrópska viljayfirlýsingu,
Bologna-ferlið, sem Íslendingar
eru aðilar að. Í yfirlýsingunni er
kveðið á um að starfsmenn og
nemendur háskóla taki þátt í vali
rektora.
,,Það hefur verið mikil óánægja
með þessar breytingar uppi á Bif-
röst; eiginlega má segja að allt
hafi verið brjálað,“ segir Haukur.
BÍSN hvetur stjórn Háskólans á
Bifröst til að að endurskoða nýsett-
ar reglur um val á rektor.
Nemendur velji rektor