Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 63

Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 63
Írski trúbadorinn Damien Rice gefur í dag út sína aðra hljóðversplötu, 9. Fylgir hún á eftir miklum vinsældum O, sem kom út fyrir fjórum árum. Freyr Bjarnason leit yfir feril þessa hugljúfa tónlistar- manns. Damien Rice sló rækilega í gegn með frumraun sinni, O. Þar heill- uðust menn af einlægni þessa smávaxna Íra og fallegum laga- smíðunum þar sem angurværðin var í fyrirrúmi. Lög af plötunni hljómuðu í kjölfarið ótt og títt bæði í sjónvarpi og kvikmyndum, þar á meðal Closer, auk þess sem útvarpsstöðvar voru duglegar við að spila Damien Rice. Ári síðar gaf hann síðan út plötuna B-sides sem hafði að geyma sjö lög sem ekki höfðu verið gefin út í Banda- ríkunum áður. Fékk sú plata einn- ig mjög góðar viðtökur. Biðin eftir nýju plötunni hefur því verið erfið á meðal aðdáenda hans. Hér á landi minnast menn vafalítið tvennra eftirminnilegra tónleika sem hann hélt á Nasa fyrir tveimur árum. Hreifst hann svo mjög af landi og þjóð er hann var staddur hér vegna fyrri tón- leikanna að hann bað sérstaklega um að fá að halda hér aðra tón- leika. Einnig spilaði hann á nátt- úruverndartónleikunum í Laugar- dalshöllinni í byrjun ársins ásamt fleiri listamönnum. Damien Rice, sem verður 36 ára í desember, eyddi æskuárum sínum í smábænum Cebridge á Írlandi. Málaði hann málverk og samdi lög og á endanum stofnaði hann hljómsveitina Juniper. Gerði sveitin samning við útgáfufyrir- tækið Polygram árið 1997 og átti tvo ágætlega vinsæl lög í írska útvarpinu. Þegar vandræði komu upp í kringum upptökur á fyrstu plötu sveitarinnar tók Rice pok- ann sinn og flutti til Ítalíu árið 1999. Þar, og víðar um Evrópu, flakkaði hann um með gítarinn sinn og söng fyrir gesti og gang- andi. Innan við ári síðar fluttist hann heim til Írlands og tók upp plöt- una O eftir að hafa fengið hjálp frá vini sínum David Arnold, sem hafði góð sambönd innan tónlist- argeirans. Líkaði honum vel við tónlist Rice og ákvað að gefa honum tækifæri. Fyrsta smáskífulagið, The Blower´s Daughter, fór beint á topp 20 haust- ið 2001 og ljóst var að ný stjarna var fædd. Platan kom út 2002 og var mjög vel tekið og fékk Rice Shortlist-tónlistarverðlaunin árið eftir. Honum til aðstoðar á plötunni var m.a. söngkonan Lisa Hannigan sem kom fram á seinni tónleikun- um á Nasa og sellóleikarinn Vyvi- enne Long. Voru þær honum og til halds og trausts á nýju plötunni, enda nauðsynleg viðbót við fallega tóna Rice. Rice hefur einnig látið sig mann- réttindi og umhverfismál varða, eins og náttúruverndartónleikarnir í Höllinni bera vott um. Hefur hann m.a. studd dyggi- lega við lýðræðissinnann Aung San Suu Kyi frá Mjanmar sem hefur verið í stofufangelsi þar í landi vegna stjórnmálaskoðana sinna. Rice gaf út lagið Unplayed Piano í fyrra og rann allur ágóðinn af sölu þess til baráttunnar fyrir frelsi Suu Kyi. Fyrsta smáskífulag 9 heitir 9 Crim- es. Á plötunni eru tíu lög og er hvert öðru betra. Er ljóst að Rice hefur tekist að fylgja eftir vinsældum fyrstu plötunnar með annarri gæða- plötu, þar sem rólegheitin og innlif- unin eru sem fyrr í fyrirrúmi. Til að fylgja plötunni eftir mun Rice fara í tónleikaferð um Banda- ríkin í nóvember og desember. Hann mun jafnframt spila í kvöld- þætti Jays Leno 9. nóvember, í þætti Jools Holland kvöldið eftir og hinn 17. verður hann í þætti Conans O‘Brien. Eftir áramót má búast við umfangsmikilli tónleikaferð um Evrópu. Fyrir nokkrum árum var ég sann- færður um að drömm og beis og breikbít hefðu farið sömu leið og breikdansinn. Hefðin á klakanum er að gleypa við nýjustu tísku- straumum í hvelli, ýkja áhrifin til muna og spýta vitleysunni svo út úr sér um leið og eitthvað nýtt er kynnt til sögunnar. Það hefur farið svo lítið fyrir nýrri tónlist úr þess- um geirum á Íslandi að ykkur er fyrirgefið að halda að þetta hafi einungis verið bóla sem sprakk. Staðreyndin er hins vegar sú að það sem við sjáum oft sem tísku- strauma heima er upphafið að nýrri menningu í stórborgum eins og London. Þannig hafði ég rétt fyrir mér, en á annan hátt en ég hélt, að halda að breikbít hefði farið sömu leið og breikdansinn, því hvort tveggja lifir góðu lífi í höfuðborg Bretlands. Ekki bara það, heldur er drömm og beis sú tónlist sem flest framhaldsskóla- böll í London eru byggð á, eins og stærstu klúbbarnir. Þar hafið þið það. Pendulum hefur verið ein vinsæl- asta sveitin í breikbít-senunni í London, og þeir verið nefndir arf- takar The Prodigy, eftir að frum- raun þeirra kom út. Ég held að það sé ekki svo fjarri lagi, það er a. m.k. alveg það langt síðan ég hef heyrt plötu, sem er framleidd með það í huga að halda fólki sveittu á dansgólfinu, sem hefur náð svona vel til mín. Miðað hversu hröð útbreiðsla breikbít-tónlistar er þessa dagana kæmi það mér ekk- ert á óvart þótt næsta stóra tón- listarbylting frá Bretlandi skyti loksins þessari tónlistarstefnu upp á yfirborð meginstraumsins. Þessi plata hér hefur a.m.k. alla burði til þess. Þó hljóðheimur þessarar stefnu hafi ekki þróast mikið síðustu tíu ár, eru hljóm- sveitir á borð við Plumb DJ´s og Pendulum að verða mun lunknari í því að semja grípandi lög sem eiga fullt erindi í útvarpsspilun. Kynn- ið ykkur bara slagarana Fasten Your Seatbelt og Slam ef þið trúið mér ekki. Hið angurværa titillag plötunnar, Hold Your Colour, ber svo með sér allan sama sjarma og gerði Underworld að einni stærstu rafsveitum fyrri hluta síðasta ára- tugar. Án efa ein af plötum ársins. Breikbítið fór aldrei neitt! Leikarinn Russel Crowe, sem ját- aði sig sekan um líkamsárás í Bandaríkjunum á síðasta ári, segir að gert hefði verið minna úr atvik- inu í heimalandi hans Ástralíu. Crowe, sem er 42 ára, segist þó sjá eftir því að hafa hent síma í hótel- starfsmann í júní í fyrra. Crowe er ósáttur við dómskerf- ið í Bandaríkjunum og segir auð- velt að misnota það. „Í mínu heima- landi hefði eitthvað í líkingu við það sem ég gerði endað með handa- bandi og afsökunarbeiðni,“ sagði Crowe, sem var handtekinn eftir að hafa reiðst er hann gat ekki hringt til Ástralíu í eiginkonu sína. Crowe er þekktur fyrir skap sitt og gerir hann sér fyllilega grein fyrir því. „Já, ég hef skap, engin spurning. En veistu hvað gerist ef þú hefur það ekki? Einn dag þegar þú ert að labba úti í bæ ferðu allt í einu yfir um,“ sagði hann. Lélegt dómskerfi ARTINS S SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍM. Stórmynd sem lætur engan ónsnortin. HAGATORGI • S. 530 1919 BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON www.haskolabio.is Varðveitt líf mitt fyrir ógnum óvinarins KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK 20% AFSLÁTTUR FYFIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATINÍUM GLITNIS MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI V.J.V. TOPP5.IS T.V. KVIKMYNDIR.IS SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍM. TEMPIRE Munið afsláttinn / ÁLFABAKKA / KEFLAVÍK/ KRINGLUNNI / AKUREYRI Vel gerð og rómantísk með þeim Zach Braff („Scrubs“, „Garden State”), Rachel Bilson („O.C.” þættirnir) ofl. Frá handritshöfundi „Million Dollar Baby” og „Crash” V.J.V. TOPP5.IS TEMPIRE TEMPIRE TV. KVIKMYNDIR.IS TEMPIRE TOTALV.J.V. TOPP5.IS Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐ NÝJU ATH! DIGITAL TÆKNINNI THE QUEEN kl. 8 B.i. 12 AN INCONVENIENT TRUTH kl. Eingin sýnig í dag Leyfð BÖRN kl. 8 B.i.12 MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12 THE LAST KISS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16 WORLD TRADE CENTER kl. 10:30 B.i. 12 THE DEPARTED kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10:10 B.i. 16 THE DEPARTED VIP kl. 5:30 - 8:30 THE LAST KISS kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:30 B.i.12 BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal. kl. 4 - 6 Leyfð BARNYARD M/- Ensku tal kl. 6 - 10:10 Leyfð THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12. JACKASS NUMBER TWO kl. 4 - 8 B.i. 12 ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð BORAT kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð MATERIAL GIRLS kl. 6 Leyfð BEERFEST kl. 8 B.i. 12 mogga tilboð gildir ekki BORAT mogga tilboð gildir ekki kl. 8 - 10 B.i. 12 THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16 MÝRIN mogga tilboð gildir ekki kl. 8 B.i. 12 BARNYARD M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð THE DEPARTED kl. 8 B.i. 16 MATERIAL GIRLS kl. 6 Leyfð THE GUARDIAN kl. 8 B.i. 12 *í bíófyrir2 1 * mogga tilb. gildir ekki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.