Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 66
Snæfell gerði sér lítið
fyrir og lagði Íslandsmeistara
Njarðvíkur af velli á heimavelli
sínum í Stykkishólmi í gær. Gest-
irnir áttu aldrei roð í fríska heima-
menn sem lögðu grunninn að 88-70
sigri með frábærri spilamennsku í
fyrri hálfleik þar sem þeir fóru
hreinlega á kostum, jafnt í vörn
sem sókn.
Í hálfleik var staðan 47-28 og
því ljóst að róðurinn yrði þungur
fyrir Njarðvíkinga í síðari hálf-
leik. Hann átti þó aðeins eftir að
þyngjast því Snæfell náði mest 24
stiga forystu í síðasta leikhlutan-
um en gaf svo aðeins eftir á loka-
kaflanum. Magni Hafsteinsson
átti frábæran leik í liði heima-
manna og skoraði 30 stig en hjá
Njarðvík var Jeb Ivey stigahæst-
ur með 18 stig. Miklu munaði um
að lykilmenn á borð við Brenton
Birmingham og Friðrik Stefáns-
son fundu sig engan veginn í leikn-
um en Snæfellingar spiluðu frá-
bæra vörn á þá allan leikinn og til
að mynda náði Friðrik aðeins að
skora tvö stig í leiknum.
Í Keflavík unnu heimamenn
öruggan sigur á ÍR-ingum, 95-72.
Gestirnir úr Breiðholtinu mættu
baráttuglaðir til leiks og stóðu
lengi vel í heimamönnum. Á end-
anum sýndi sig þó að breiddin hjá
Keflavíkurliðinu er töluvert meiri
og þeir náðu rúmlega tuttugu stiga
sigri. Keflavík var með sjö stiga
forskot í hálfleik en sigldi örugg-
lega framúr í þeim síðari.
„Við spiluðum vörnina nokkuð
vel en sóknarleikurinn var frekar
tilviljanakenndur og þá sérstak-
lega í fyrri hálfleiknum. Í byrjun
seinni hálfleiks náðum við síðan
ágætis rispu og það skipti miklu
máli,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari Keflavíkur, eftir leik-
inn. ÍR-ingar mættu aðeins átta til
leiks í gær en meiðsli hrjá liðið.
Þeir þurftu því að játa sig sigraða
gegn liði Keflavíkur sem hefur þó
oft spilað betur en í gær.
Með sigrinum í gær er Snæfell
komið með 10 stig í Iceland
Express-deildinni eða jafnmörg
stig og Njarðvík á toppi deildar-
innar. Sigur Keflvíkinga kemur
þeim upp í þriðja sætið en sjöttu
umferðinni lýkur síðan á miðviku-
dag með fjórum leikjum.
Enska úrvalsdeildin
Spænska úrvalsdeildin
Ítalska A-deildin
DHL-deild karla
Iceland Express-deild kvk.
Chelsea og Arsenal
þurftu bæði að sætta sig við tap í
leikjum sínum í ensku úrvals-
deildinni í gær en segja má að
London hafi verið á öðrum end-
anum þegar West Ham tók á móti
Arsenal og Tottenham fékk Chel-
sea í heimsókn. Báðir leikirnir
reyndust hin besta skemmtun og
greinilegt að ástríðan tekur völd-
in hjá leikmönnum í slíkum
nágrannaslögum.
Það var hinn 19 ára gamli
Aaron Lennon sem reyndist hetja
Tottenham gegn Chelsea í gær
þegar hann skoraði sigurmark
liðsins í upphafi síðari hálfleiks
með glæsilegu vinstri-fótar skoti.
Áður hafði Claude Makelele
komið Chelsea yfir en Michael
Dawson jafnaði metin á fyrstu 20
mínútum leiksins. Þetta var
fyrsti heimasigur Tottenham á
Chelsea síðan 1987 og stigu stuðn-
ingsmenn liðsins stríðsdans á
pöllunum eftir að flautað hafði
verið til leiksloka. John Terry
fékk reisupassann í síðari hálf-
leik eftir að hafa fengið að líta
sitt annað gula spjald fyrir kjaft-
brúk.
Litlu munaði að Arsene Weng-
er, stjóri Arsenal, og Alan Par-
dew hjá West Ham lentu í handa-
lögmálum eftir að Marlon
Harewood hafði skorað markið
sem réð úrslitum í viðureign lið-
anna í gær á 89. mínútu. Wenger
og Pardew lenti saman með þeim
afleiðingum að sá franski hrinti
Pardew. Stjórarnir hnakkrifust
en voru skildir í sundur áður en
hnefarnir fóru á loft.
Pardew sá þó að sér eftir að
leik lauk og baðst afsökunar á
framferði sínu. „Mér þykir leitt
að þetta hafi gerst. Ég var ein-
faldlega að fagna marki minna
manna og Wenger hlýtur að hafa
túlkað mig eitthvað vitlaust. Ég
meinti ekkert með þessu og þetta
var ekkert persónulegt gagnvart
Wenger. Ef ég hef móðgað hann
biðst ég afsökunar,“ sagði Par-
dew. Sigur West Ham þótti sann-
gjarn þar sem Arsenal náði ekki
að sýna sitt rétta andlit.
Úrslit gærdagsins þýða að
Manchester United er eitt á
toppnum með 28 stig, þremur
stigum meira en Chelsea. Aston
Villa komst upp í 6. sæti með
góðum 2-0 sigri á Blackburn í
gær og þá er Tottenham komið
upp í 10. sæti með sigrinum í
gær.
Mikill hasar í leikjum gærdagsins
Árangur kvennasveitar
Gerplu á Evrópumótinu í hópfim-
leikum sem fór fram í Tékklandi
um helgina hefur vakið gríðarlega
athygli innan fimleikahreyfingar-
innar, en íslensku stúlkurnar unnu
til silfurverðlauna á mótinu. Að
sögn Jóns Finnbogasonar, for-
manns Gerplu, á fólk afar bágt
með að trúa að sveit frá Íslandi
geti náð slíkum árangri enda eru
hópfimleikar í miklum vexti og
njóta mikilla vinsælda hjá öðrum
Norðurlandaþjóðum.
„Það að sveit frá Íslandi skuli
ná öðru sæti þykir með ólíkindum,
enda erum við lítið land og með
miklu færri iðkendur en aðrar
þjóðir á mótinu. Við stefndum á að
komast í sex-liða úrslit fyrir mótið
og þótti það nokkur bjartsýni. Við
lítum því á 2. sæti sem gríðarleg-
an sigur fyrir stúlkurnar og alla
sem koma að starfinu í Gerplu,“
sagði Jón við Fréttablaðið í gær og
bætti því við að hann ætti ekki von
á að þessi árangur yrði endurtek-
inn. „Þetta eru úrslit sem eiga sér
ekki hliðstæðu á Íslandi.“
Stúlkurnar sem skipuðu hóp
Gerplu á mótinu eru eftirfarandi:
Auður Ólafsdóttir, Ásdís Dagmar
Þorsteinsdóttir, Ásdís Guðmunds-
dóttir, Gury Andersson, Hrefna
Þorbjörg Hákonardóttir, Inam
Rakel Yasin, Íris Mist Magnús-
dóttir, Íris Svavarsdóttir, Jóhanna
Gunnarsdóttir, Kolbrún Sveins-
dóttir, Magdalena Rós Guðnadótt-
ir, Rut Valgeirsdóttir, Sara Rut
Ágústsdóttir, Soffía Bergsdóttir,
Sólveig Jónsdóttir, Svava Björg
Örlygsdóttir og Þórunn Arnardótt-
ir.
Gerpla vekur mikla athygli
Elfsborg tryggði sér
meistaratitilinn í sænska fótbolt-
anum í fimmta sinn í sögunni með
því að sigra Djurgarden, meistar-
ana frá því í fyrra, í lokaumferð-
inni sem fram fór í gær, 1-0.
AIK varð í öðru sæti og hlaut
49 stig en það kom í hlut Öster, lið
Helga Vals Daníelssonar, og
Örgryte að falla að þessu sinni.
Elfsborg vann
„Við lentum í því gegn
HK að ná þægilegri stöðu en svo
misstum við hana niður. Það er
jákvætt að við náðum að læra af
þeim mistökum og bæta leik
okkar,“ sagði Markús Máni
Michaelsson eftir að Valur vann
Fram 30-25 í gær. „Við höfum
mjög sterkt lið og ekkert annað
kom til greina en að ná sigri í þess-
um leik. Sigurviljinn var svo sann-
arlega til staðar og við komum
ákveðnir í þennan leik.“
Markús var markahæstur í liði
Valsmanna með átta mörk en þar
af komu fimm úr vítaskotum.
Þessi leikur var stærsti leikur
tímabilsins til þessa en Valsmenn
byrjuðu af krafti og fyrstu þrjú
mörkin voru þeirra. Þá vöknuðu
Framarar og jafnræði var með lið-
unum nánast allan fyrri hálfleik-
inn. Rétt fyrir hálfleik kom þó
kraftmikill kafli frá heimamönn-
um og þeir höfðu 14-10 forystu í
hálfleik.
Sóknir Vals voru mun hnitmið-
aðri en hjá mótherjum þeirra og
það hafði sitt að segja. Hart var
barist í leiknum og mikið um brott-
vísanir. Forysta Vals var aldrei í
umtalsverðri hættu í seinni hálf-
leiknum, liðið náði mest sjö marka
forskoti og vann á endanum algjör-
lega verðskuldaðan sigur, 30-25.
Liðið er því í toppsæti deildarinn-
ar og hefur hingað til staðið undir
þeim væntingum sem gerðar voru
til þess.
„Við ætlum okkur svo sannar-
lega að standa undir þeim kröfum
sem við gerum til okkar. Við
vorum á heimavelli og það hefur
verið mikið álag á Frömurum svo
það var algjörlega klárt hjá okkur
að við ættum að ná sigri í þessum
leik og það tókst,“ sagði Markús
Máni. Hjá Fram var Jóhann Gunn-
ar Einarsson eins og oft áður best-
ur en hann skoraði alls ellefu
mörk. Hann skoraði þar af sjö af
tíu mörkum Framliðsins í fyrri
hálfleik.
Það er ljóst að Íslandsmeistar-
ar Fram þurfa að fara að gyrða sig
í brók en árangur liðsins í deild-
inni hefur verið undir væntingum
það sem af er. Liðið er sem stend-
ur í fallsæti með aðeins þrjú stig
úr fjórum leikjum.
Valur komst aftur upp í efsta sæti DHL-deildar karla með því að vinna öruggan fimm marka sigur á Fram í
Laugardalshöll í gær. Valsmenn voru mun hnitmiðaðri í sínum aðgerðum og vel að sigrinum komnir.
Eitt mark frá Veigar Páli
Gunnarssyni í 5-1 sigurleik
Stabæk gegn Ham-Kam í
lokaumferð norsku úrvalsdeildar-
innar í gær var ekki nóg til að
skila honum markakóngstitli
deildarinnar því félagi hans
Daniel Nannskog skoraði einnig
og endaði sem markahæsti
leikmaður deildarinnar. Nann-
skog skoraði 17 mörk en Veigar
Páll varð annar með 16 mörk.
Með sigrinum sendi Stabæk
Ham-Kam niður í 1. deild en
Viking bjargaði sér frá falli með
5-0 sigri á Brann þar sem
Kristján Örn Sigurðsson skoraði
sjálfsmark. Rosenborg hafði áður
tryggt sér meistaratitilinn.
Veigar næst-
markahæstur
Njarðvík tapaði sínum fyrsta leik
Iceland Express-deild kk.