Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 10
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn 2 - 11 ára í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
gildir 16. okt. - 6. nóv.
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
bókanlegt frá 13. október
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A S
T O
F A
N
E H
F .
/ S
I A
. I
S
- F
L U
3 4
4 7
2
1 0
/ 2
0 0
6
1 kr. aðra leiðina + 739 kr.
(flugvallarskattur og tryggingargjald)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030
Nú bíða í kringum
30 manns eftir viðeigandi búsetu-
úrræði fyrir fatlaða á Suðurlandi.
Sighvatur Blöndahl, formaður
Þroskahjálpar á Suðurlandi, segir
þennan hóp fara stækkandi vegna
fólksfjölgunar á svæðinu.
Sighvatur áætlar að það muni
kosta á bilinu 100–200 milljónir
að uppfylla búsetuþörf þessa
hóps. „Það má í raun skipta þörf-
inni eftir búsetuúrræði í þrennt.
Um tíu manns bíða eftir húsnæði
með þjónustu allan sólarhringinn.
Aðrir tíu þarfnast þjónustu hluta
úr degi og aðrir tíu bíða eftir
sjálfstæðri búsetu. Það er engin
uppbygging fyrirhuguð í augna-
blikinu á svæðinu fyrir þennan
hóp fólks þrátt fyrir brýna þörf.“
Sighvatur segir að nú standi
yfir flutningur búsetuúrræðis frá
Selfossi til Hveragerðis en það
þýði ekki aukningu á plássum og
að ekki sé fyrirhugað að nota
núverandi húsnæði áfram undir
þessa þjónustu.
„Það er fólk alls staðar úr
fjórðungnum sem bíður eftir
búsetuúrræðum og í flestum til-
fellum býr þetta fólk hjá ættingj-
um og er í mikilli þörf fyrir við-
eigandi úrræði. Við hjá
Þroskahjálp viljum einnig að
búseta dreifist sem víðast um
Suðurland þannig að fólk fái tæki-
færi til að búa í sinni heimabyggð
og sem næst sínum nánustu.“
Margir fatlaðir í brýnni þörf
Hálffimmtug kona var í gær dæmd í níu
mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Hún hafði gerst sek um þjófnaði á
fatnaði, matvælum og jólagjöfum fyrir á þriðja
hundrað þúsund króna.
Dómnum þótti sannað að konan hefði reynt að
stela vörum í Euro-pris, sem hún var með á leiðinni
út í tösku þegar starfsmenn stöðvuðu hana.
Jafnframt að hún hefði farið í heimildarleysi í íbúð
við Grettisgötu á Þorláksmessu á síðasta ári og
verið búin að setja pels, leðurjakka og annan fatnað
í tvo svarta plastpoka. Þá hafi hún verið búin að
taka til allan jólamat fjölskyldunnar, bæði hangi-
kjöt og hamborgarhrygg, auk jólagjafa, sem fjögur
börn húsráðenda áttu að fá. Konan neitaði sök og
kvaðst hafa verið að horfa á jólaskrautið í íbúðinni
þegar hún var gómuð.
Konan á að baki langan sakarferil. Hún hefur
sex sinnum verið dæmd eða gengist undir sátt
vegna þjófnaðarbrota. Fimm sinnum hefur hún
verið dæmd til refsingar á skilorði. Í
ljósi þess þótti dómnum útilokað
að skilorðsbinda refsinguna
nú.
Kona stal jólamat og jólagjöfum
Glæður í úrgangi frá
kolanámu á Svalbarða gætu leitt
til þess að allir íbúar eyjarinnar,
sem eru rússneskir, neyðist til að
flýja heimili sín. Til þess kæmi þó
ekki fyrr en glæðurnar breytast í
loga, að sögn norskra yfirvalda.
Úrgangurinn liggur nærri
rússneska námuþorpinu Barents-
burg, þar sem um 500 manns búa
samkvæmt samningi við norsk
stjórnvöld, en eyjaklasinn er
undir stjórn Noregs.
Rússarnir dreifðu úr glóandi
kolaúrganginum á miðvikudag í
tilraun til að drepa glæðurnar.
Komi eldur upp í úrganginum,
gæti hann logað árum saman.
Byggð námu-
manna ógnað