Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 4
Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar4. SÆTI Traustur efnahagur — aukin velferð www.agustolafur.is ,,Svo maður hrósi nú einhvern tíma einhverjum, þá hefur sá ungi þingmaður fl utt furðu mörg góð mál á þinginu.” Illugi Jökulsson í pistli í Blaðinu 21. okt. 2006 Afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum — 22.000 undirskriftir hafa safnast til stuðnings frumvarpinu Löggjöf um óháðar rannsóknarnefndir Löggjöf gegn heimilisofbeldi Aukin vernd heimildarmanna fjölmiðla • • • • Aftakaveður olli miklu tjóni um allt land í gær. Millilanda- og innanlandsflug lá niðri fram eftir degi og má búast við seinkunum á millilandaflugi í dag. Þrjú skip slitu landfestar, tvö í Hafnarfirði og eitt á Skagaströnd. Rúður brotnuðu í bílum í grjótfoki á Möðrudals- öræfum. Ekki er vitað til þess að nein teljandi slys hafi orðið á fólki. Keflavíkurflugvelli var lokað vegna veðurs í gærmorgun og öllu flugi til landsins beint til Glasgow, en slíkt hefur ekki gerst í fjögur ár. Hundruð farþega biðu í Leifsstöð eftir að flug hæfist á ný, sem gerðist upp úr klukkan þrjú. Innanlandsflug lá niðri í gærdag og hófst ekki á ný fyrr en í gærkvöldi. Nokkuð var um að skip slitnuðu frá í óveðrinu. Um níuleytið í gærmorgun var tilkynnt um tvö skip, togara og stálbát, sem rak frá bryggju í Hafnarfirði og strönduðu á klöpp. Björgunarsveitarmenn og starfsmenn hafnar- innar unnu við að koma þeim aftur upp að bryggju og var því lokið seinnipartinn. Togarinn Margrét SK-20 slitnaði einnig frá bryggju á Skagaströnd en björgunarsveitarmenn náðu að binda skipið við bryggju á ný. Fljúgandi grjót braut rúður í fólksbílum sem voru á ferð á Möðrudalsöræfum snemma í gær. Björgunarsveitarbíll Landsbjargar varð einnig fyrir skemmdum vegna grjótfoks þegar hann kom á staðinn til aðstoðar. Veginum var lokað upp úr hádegi vegna veðurofsans og var ekki opnaður aftur fyrr en í gærkvöld. Lögregla og björgunarsveitarmenn um land allt áttu fullt í fangi með að aðstoða þá sem urðu fyrir barðinu á óveðrinu. Meðal annars losnuðu þakplötur af húsum, hjólhýsi fuku um koll og fiskikör ásamt öðrum lauslegum munum fuku. Að sögn Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, höfðu björgunarsveitarmenn sinnt hátt í tvö hundruð útköllum um hádegisbil í gær. Talsmaður lögreglunnar í Reykjavík beinir þeim tilmælum til fólks að ganga betur frá lausum hlutum úti við enda hefði verið vitað af óveðrinu nokkru áður en það skall á. Flug lá niðri og skip slitnuðu úr festum í aftakaveðri Innanlands- og millilandaflug lá niðri fram eftir degi í gær vegna óveðurs. Skipsfestar slitnuðu, bílrúður brotnuðu í grjótfoki og hjólhýsi fuku. Björgunarsveitarmenn sinntu um tvö hundruð útköllum. „Það sem gerist er að lægð, sem var rétt við landsteinana, er með mjög kalt loft norðan við sig og mjög hlýtt loft sunnan við sig. Þegar slíkar aðstæður fara saman, að ískalt loft mætir hlýju lofti, þá er fjandinn laus,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur hjá NFS, um óveðrið í gær. „Þessi lægð er búin að vera í spánum í allmarga daga og það var strax á miðvikudag sem maður fór að sjá að það yrðu einhver tíðindi um helgina. Sem betur fer hefur veðrinu slotað en þetta er atburður sem maður setur í bækurnar.“ Slæmt þegar kalt loft mætir hlýju Eitt elsta tré Reykjavíkur- borgar við Sóleyjargötu rifnaði upp með rótum í óveðrinu í gær og féll á tvo bíla. Bifreiðarnar voru mannlausar þegar tréð féll en skemmdir urðu nokkrar. Lögregla og björgunarlið fóru á staðinn og fjarlægðu tréð. Að undanskildum bílunum olli tréð ekki öðru tjóni. Þó nokkuð var um önnur útköll í Reykjavík vegna smáfoks. Helst var um að ræða lausamuni úti við sem ekki höfðu verið festir nægilega vel. Að sögn talsmanns lögreglunnar í Reykjavík voru útköll vegna veðurs hátt í fjörutíu um hádegisbil í gær. Tré rifnaði upp með rótum Ríkisendurskoðun gerði stjórnsýsluúttekt á þjónustu við aldraða árið 2005 þar sem meðal annars var mælst til þess að ríkið gerði þjónustusamninga við dvalar- og hjúkrunarheimili. Ekkert hefur verið aðhafst í þeim málum enn. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, segir slíka þjónustusamninga ekki á döfinni. „Ég get ekki svarað fyrir það hvers vegna þetta hefur ekki verið gert,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. „Við höfum farið í þessi mál sem varðar þjónustu við aldraða. Í stjórnsýsluúttekt okkar síðan í fyrra kemur fram að við teljum stjórnvöld þurfa að setja fram kröfur um lágmarksþjónustu öldrunarheimila sem rekin eru fyrir opinber framlög.“ Hann segir að slíkt veitti heimilunum aukið aðhald og stuðlaði að auknu jafnrétti fyrir þá sem þar dvelja, auk þess sem eðlilegt megi telja að ríkið viti hvaða þjónustu það greiðir fyrir. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær segir Siv Friðleifsdóttir ekki á döfinni að gera þjónustusamninga við dvalar- og hjúkrunar- heimili. Bæði hafi landlæknir eftirlit með því að þjónustan sem greitt er fyrir sé veitt og einnig sé í gildi gæðakerfi sem greitt er eftir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.