Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 73
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
3
3
6
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
Nissan X-Trail er kröftugur, sérstakur og hentar öllum aðstæðum – hverjar sem þær eru. Þú
átt jafn auðvelt með að leggja fyrir framan fínt veitingahús og klöngrast í giljadrögum. Stíllinn
snýst ekki aðeins um glæsilegt útlit. Hönnun fram- og afturenda bílsins er miðuð við að akstur
í torfærum, grjóti og snjó verði auðveldari og að þú sjáir öll fjögur hornin úr ökumannssætinu
og getir stjórnað og lagt X-Trail af öryggi. Ríkulegur staðalbúnaður: 4x4, 17" álfelgur, litað
gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring.
Komdu og reynsluaktu Nissan X-Trail, hann er leikur á hjólum!
Nissan X-Trail Sport
Verð aðeins 2.890.000 kr.
Verð áður 3.290.000 kr. VERÐLÆKK
UN!
VERÐLÆKKUN
NISSAN X-TRAIL
NISSAN X-TRAIL
ALLA LEIÐ!
Bíll á mynd er með breytingarpakka frá Artic Trucks.
GARMIN NUVI 310
LEIÐSÖGUTÆKI FYLGIR
FRÍTT MEÐ ÖLLUM X-TRAIL
Nú býður Ingvar Helgason einnig
glæsilegan breytingarpakka frá Artic
Trucks að verðmæti 450.000 kr. á
aðeins 200.000 kr. aukalega.
FARÐU ALLA LEIÐ!
Breytingar sem skipta máli!
7cm hækkun, stærri dekk (29"), krómgrind
krómstigbretti, kastarar, dráttarbeisli.
Undanfarna daga hefur Ekstra-bladet birt greinaflokk þar
sem látið er að því liggja að marg-
vísleg erlend umsvif Íslands bestu
sona tengist ósiðlegum og jafnvel
ólöglegum viðskiptaháttum, pen-
ingaþvætti, skúffufyrirtækjum,
skattaskjólum, mafíu, banka-
svindli og alls konar svívirðu sem
þjóðhollir, íslenskir blaðamenn
mundu aldrei láta sér detta í hug
að bendla landa sína við.
sjálfsögðu vitum við að þessi
rætnu skrif eiga sér þá skýringu
að Danir öfunda Íslendinga og sjá
ofsjónum yfir velgengni þeirra
okkar sem nú velta sér upp úr pen-
ingum eins og svín í drafi, enda
telur íslenska leyniþjónustan að
danskir kaupmenn hafi hvað eftir
annað reynt að senda Vítisengla til
Íslands til að leggja landið undir
sig á ný. Hitt er torskildara hvaða
svínslega náttúra kom Dönum til
að skálda einmitt þessar sögur og
ljúga þeim upp á vammlaus fjár-
málaséní sem svo sannarlega geta
ekki gert að því þótt allt sem þau
snerta verði að gulli.
allrar hamingju hafa vandaðir
aðilar tekið það upp hjá sjálfum
sér að vernda viðkvæmar sálir á
Íslandi gegn því að saurga sak-
leysi sitt með því að handfjatla
þetta sorprit í grandaleysi. Ekstra-
bladet hefur undanfarna daga ekki
verið fáanlegt hjá þeirri blaða-
dreifingu sem velur og flytur inn
hollt og uppbyggilegt lesefni um
frægar erlendar persónur fyrir
þjóðina og þar af leiðandi ekki til
sölu í bókaverslunum. Sömu aðilar
eiga einnig prýðilegt bókaforlag
þar sem svo miklar kröfur eru
gerðar til lesmálsins að heilu bóka-
upplögin eru keyrð á öskuhaugana
ef þau standast ekki þær kröfur
sem útgefendur gera til sannleik-
ans.
hefði auðvitað verið að
koma í veg fyrir birtingu þessara
greina með því að kaupa Ekstra-
bladet og breyta fyrirtækinu í
nuddstofu. Því miður er hægt að
lesa hroðann á netinu og vekur
það spurningar um hvernig hægt
sé að vernda hina hreinu áru þjóð-
arinnar fyrir nútímatækni;
íslenskt mannorð þarf greinilega
á vernduðu umhverfi að halda,
þrjú hundruð milljónir til að
hreinsa af okkur hvalablóðið
hrökkva skammt. Ódýrast er þó að
vernda mannorð fyrirfram en ekki
eftir á.
Að vernda
mannorð