Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 73

Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 73
E N N E M M / S ÍA / N M 2 4 3 3 6 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 464 7940 Nissan X-Trail er kröftugur, sérstakur og hentar öllum aðstæðum – hverjar sem þær eru. Þú átt jafn auðvelt með að leggja fyrir framan fínt veitingahús og klöngrast í giljadrögum. Stíllinn snýst ekki aðeins um glæsilegt útlit. Hönnun fram- og afturenda bílsins er miðuð við að akstur í torfærum, grjóti og snjó verði auðveldari og að þú sjáir öll fjögur hornin úr ökumannssætinu og getir stjórnað og lagt X-Trail af öryggi. Ríkulegur staðalbúnaður: 4x4, 17" álfelgur, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring. Komdu og reynsluaktu Nissan X-Trail, hann er leikur á hjólum! Nissan X-Trail Sport Verð aðeins 2.890.000 kr. Verð áður 3.290.000 kr. VERÐLÆKK UN! VERÐLÆKKUN NISSAN X-TRAIL NISSAN X-TRAIL ALLA LEIÐ! Bíll á mynd er með breytingarpakka frá Artic Trucks. GARMIN NUVI 310 LEIÐSÖGUTÆKI FYLGIR FRÍTT MEÐ ÖLLUM X-TRAIL Nú býður Ingvar Helgason einnig glæsilegan breytingarpakka frá Artic Trucks að verðmæti 450.000 kr. á aðeins 200.000 kr. aukalega. FARÐU ALLA LEIÐ! Breytingar sem skipta máli! 7cm hækkun, stærri dekk (29"), krómgrind krómstigbretti, kastarar, dráttarbeisli. Undanfarna daga hefur Ekstra-bladet birt greinaflokk þar sem látið er að því liggja að marg- vísleg erlend umsvif Íslands bestu sona tengist ósiðlegum og jafnvel ólöglegum viðskiptaháttum, pen- ingaþvætti, skúffufyrirtækjum, skattaskjólum, mafíu, banka- svindli og alls konar svívirðu sem þjóðhollir, íslenskir blaðamenn mundu aldrei láta sér detta í hug að bendla landa sína við. sjálfsögðu vitum við að þessi rætnu skrif eiga sér þá skýringu að Danir öfunda Íslendinga og sjá ofsjónum yfir velgengni þeirra okkar sem nú velta sér upp úr pen- ingum eins og svín í drafi, enda telur íslenska leyniþjónustan að danskir kaupmenn hafi hvað eftir annað reynt að senda Vítisengla til Íslands til að leggja landið undir sig á ný. Hitt er torskildara hvaða svínslega náttúra kom Dönum til að skálda einmitt þessar sögur og ljúga þeim upp á vammlaus fjár- málaséní sem svo sannarlega geta ekki gert að því þótt allt sem þau snerta verði að gulli. allrar hamingju hafa vandaðir aðilar tekið það upp hjá sjálfum sér að vernda viðkvæmar sálir á Íslandi gegn því að saurga sak- leysi sitt með því að handfjatla þetta sorprit í grandaleysi. Ekstra- bladet hefur undanfarna daga ekki verið fáanlegt hjá þeirri blaða- dreifingu sem velur og flytur inn hollt og uppbyggilegt lesefni um frægar erlendar persónur fyrir þjóðina og þar af leiðandi ekki til sölu í bókaverslunum. Sömu aðilar eiga einnig prýðilegt bókaforlag þar sem svo miklar kröfur eru gerðar til lesmálsins að heilu bóka- upplögin eru keyrð á öskuhaugana ef þau standast ekki þær kröfur sem útgefendur gera til sannleik- ans. hefði auðvitað verið að koma í veg fyrir birtingu þessara greina með því að kaupa Ekstra- bladet og breyta fyrirtækinu í nuddstofu. Því miður er hægt að lesa hroðann á netinu og vekur það spurningar um hvernig hægt sé að vernda hina hreinu áru þjóð- arinnar fyrir nútímatækni; íslenskt mannorð þarf greinilega á vernduðu umhverfi að halda, þrjú hundruð milljónir til að hreinsa af okkur hvalablóðið hrökkva skammt. Ódýrast er þó að vernda mannorð fyrirfram en ekki eftir á. Að vernda mannorð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.