Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 53
Eina ferðina enn gera stjórnend-ur Íslenska álfélagsins atlögu að starfsfólki og heiðri þess. Árleg- um hreinsunum er nýlokið undir þeim formerkjum að óæskilegur starfskraftur hafi þurft að víkja. Menn með langan starfsaldur, þetta 20–30 ár, eru reknir fyrir- varalaust án nokkura ástæðna. Ísal-Alcan hlýtur að vera óheppn- asta fyrirtæki á íslandi að lenda í því svona sí og æ að ráða mikið af ónothæfu starfsfólki og uppgötva síðan ekki fyrr en eftir jafnvel 30 ár að starfskrafturinn var í raun ónothæfur. Það er komið nóg! Sam- þykkt Alþjóðavinnumálastofnun- arinnar, ILO, um uppsagnir þarf að taka upp á Íslandi strax. Hvar eru stjórnvöld? Í vasa stóriðjufyrir- tækja eins og Alcan? Ég hef fylgst með fjölmiðlaumræðu síðustu vikna og get ekki orða bundist lengur. Opnuauglýsing Alcan í Fréttablaðinu 26.10. 06 með fyrir- sögninni „Svona erum við!“ lýsir nokkuð vel þeim hugmyndaheimi sem stjórnendur fyrirtækisins dvelja í. Hvar eru mengunarmynd- irnar og skítuga og sveitta fólkið? Í auglýsingunni er talað um heið- arleika, ábyrgð, traust og sam- vinnu. Nokkuð sem gerist ekki af sjálfu sér, bara við að hamra á því eins oft og hægt er. Hugmynda- smiðurinn er annaðhvort langt í burtu frá raunveruleikanum eða hann hefur talið að nokkur hundr- uð þúsund króna glansauglýsing geti hagrætt honum? Fyrirtækið starfrækir lækna- stofu með lækni á launum. Menn eru skyldugir að mæta á eina skrif- stofu fyrirtækisins einu sinni á ári með þvagprufu og gangast undir læknisskoðun ellegar eiga þeir á hættu að vera reknir að undan- genginni viðvörun. Lækni sem starfsmenn bera jafnvel engan trúnað til. Hvernig eru upplýsing- ar þær sem koma úr slíkri skoðun notaðar og hver heldur utan um þær? Er einhver t.d. frá Landlækni sem sannreynir skráningu og notk- un upplýsinganna? Mig langar að segja smá sögu til að upplýsa mál- efnastöðu stjórnenda. Ég vann að því ásamt Kolbeini Gunnarssyni (núverandi formanni Hlífar) í tvö ár fyrir hönd félags- ins að koma á starfsnámi hjá Ísal. Samið var um 10,5% kauphækkun og það metið til eininga í fram- haldsskólum. Fyrir tilstuðlan okkar fékkst peningastyrkur og viðurkenning frá ríkinu til að koma því á. Eftir nærri tveggja ára und- irbúningsvinnu varð námið að veruleika. Verkalýðsfélögin, og að sögn fulltrúar Ísal í starfsnáms- nefndinni, lögðu til að undirritaður yrði sjálfskipaður í fyrsta hóp vegna vinnu minnar. Rannveig Rist ákvað síðan upp á sitt eins- dæmi að taka völdin af nefndinni og velja þá sem voru hennir þókn- anlegir án nokkurs samráðs við nefndina. Það hentaði forstjóran- um ekki að hafa undirrit- aðan þar, enda ekki vön að þakka hverjum sem er vel unnin störf. Af hverju? Vegna skoðana minna á ákaflega lélegum aðbúnað- ar- og öryggismálum? Stóri dagurinn rann upp. Hefja skyldi námið. Boðið var til veislu og Rannveig sagðist ætla að gefa okkur, fulltrúum starfsmanna, bókagjöf til að þakka vel unnin störf. Ég sagðist vera til- búinn til að taka við slíkri gjöf ef ég fengi að taka til máls við afhend- inguna. Í stuttu máli varð ekkert úr þakklætinu, hvorki fyrr né síðar, enda enginn séns tekinn á að menn taki til máls á eigin vegum í fínum kokkteilpinnaveislum fyrir- tækisins! Að hætti ein- ræðisins hefur sagan síðan verið endurrituð og nöfn okkar, fulltrúa starfs- manna í nefndinni, verið afmáð úr sögubókunum. Síðar boðaði forstjóri starfsnámsnefndina ásamt formanni Hlífar og yfir- trúnaðarmanni til einnar af sinni frægu rjómatertu- veislum. Fara átti yfir hvursu vel til hefði tekist með námið. Ég var boðaður af yfirtrún- aðarmanni. Þegar ég gekk í salinn sagði Rannveig með sínu fræga þjósti: „Hva, hva? Hvað ert þú að gera hér?“ Síðan bætti hún við: „Hva? Hver bauð þér hingað? Ég veit ekki til þess að þér hafi verið boðið hingað.“ Hún leit á fulltrúa Ísal í nefndinni, sem horfðu í gaupnir sér, og spurði: „Hvað er að ske, buðuð þið honum?“ Það sló þögn á hópinn. Fyrrverandi for- maður Hlífar varð meira að segja orðlaus og er þá mikið sagt. Ég settist niður og sagði yfirvegað og rólega að ég væri ekki óvanur þessari framkomu hennar og mála- tilbúnaði sem ætti sér enga hlið- stæðu í mannlegum samskiptum og hún ætti að skammast sín hvern- ig hún hagaði sér í eineltistilburð- um við starfsmenn. Síðan gekk ég út í rólegheitum og lokaði dyrun- um varlega á eftir mér þannig að það færi ekki á milli mála að ég gekk á dyr án þess að skella eða vera með læti enda vildi ég ekki með nokkru móti stela glæpnum frá forstjóranum. Samt hélt hún því á lofti síðar að ég hefði hellt mér yfir hana og skellt á eftir mér. Formaður Hlífar leiðrétti það við hana síðar. Heiðarleiki, ábyrgð, traust og samvinna eru stór orð. Þessi saga er sögð, svona til útskýringa á því hvað við er að fást. Raunveruleg gildi og óskgildi er ekki það sama. Þessi saga er ein af ótal mörgum ósögðum sögum um mengunarmál og framkomu stjórnenda svo það helsta sé upp- talið. Sögur t.d. af undirstjórnend- um sem stillt er upp við vegg til að finna eitthvað á starfsmenn svo hægt sé að reka þá. Höfundur starfaði hjá Ísal í nærri tvo áratugi og er fyrrverandi trúnaðarmaður og öryggistrúnað- armaður í skautsmiðju Ísal. Svona er Alcan í raun! vaxtaauki! 10%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.