Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 1
69% 47,4% 44% Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í september 2006. Fréttablaðið styrkir stöðu sína LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA höfuðborgarsvæðið B la ð ið B la ð ið 20 10 0 50 40 30 80 70 60 Smáauglýsingasí i Heimili hjónanna Ragnheiðar E. Ragn-arsdóttur og Yngva Arnar Stefánssonarber bæði smekkvísi þeirra og framtaks-semi vitni. Heimilið er uppi í risi viðBárugötu í Reykjavík. Bökunarilmur berst út á ganginn þegar komið er upp á þriðju hæðina á Bárugötu 5 enda hús- freyjan með köku í ofninum. Hún er heima- vinnandi um þessar mundir en viðskiptavinir Pétursbúðar á Ránargötunni kannast vel við konuna þar sem hún átti og stýrði þeirri versl- un um sjö ára skeið. „Ég seldi búðina í maí í vor því eftir að við ættleiddum litlu dömuna langaði mig að vera lausari við,“ segir Ragn- heiður brosandi. Sjá síðu 2 Leikur samkyn- hneigðan bónda www.meistarinn.is og dekur hollustu Veldu í dagsins önn Innlit hjá Ragnheiði og Yngva á Bárugötu Hefur gefið út 50 tölublöð af Grapevine Aftakaveður olli miklu tjóni um allt land í gær. Milli- landa- og innanlandsflug lá niðri fram eftir degi og má búast við seinkunum á millilandaflugi í dag. Þrjú skip slitu landfestar, tvö í Hafnarfirði og eitt á Skaga- strönd. Rúður brotnuðu í bílum í grjótfoki á Möðrudalsöræfum. Ekki er vitað til þess að nein telj- andi slys hafi orðið á fólki. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu náðu vindhviðurnar allt að fjörutíu metrum á sek- úndu við Snæfellsnes og á Grundarfirði og slöguðu upp í þrjátíu metra á sekúndu víðs vegar um landið. Hringveginum var lokað um nokkra stund við Blönduós vegna ofsaveðurs. „Þessi lægð er búin að vera í spánum í allmarga daga og það er strax á miðvikudag sem maður fór að sjá að það yrðu einhver tíðindi um helgina,“ segir Sigurð- ur Þ. Ragnarsson, veðurfræðing- ur á NFS. „Sem betur fer hefur veðrinu slotað en þetta er atburð- ur sem maður setur í bækurn- ar.“ Að sögn Ólafar Snæhólm Bald- ursdóttur, upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjarg- ar, höfðu björgunarsveitarmenn sinnt hátt í tvö hundruð útköllum um hádegisbil í gær. Flugvöllum lokað í hvassviðri Svartur svanur í Þýskalandi hefur fellt hug til hjólabáts úr plasti sem er í laginu eins og svanur. Elskendurnir hafa nú verið færðir í dýragarð og munu eyða vetrinum þar saman. Peter Overschmidt, eigandi bátsins, ákvað að hýsa bátinn ekki innandyra í vetur eins og hann gerir venjulega og fær svanurinn því að vera í návistum við hinn fótknúna elskhuga næstu mánuð- ina. Líffræðingur í Münster í Þýskalandi segir svaninn, sem gengur undir nafninu Svarti Pétur, hafa sýnt öll merki þess að vera í tilhugalífinu þegar hann hringsól- aði kringum bátinn. Svarti Pétur starði endalaust á bátinn og gaf frá sér ástarhljóð. Svanur felldi hug til plastbáts Magnús þór byggir málflutning sinn á hræðsluáróðri sem ekki er til þess fallinn að beina umræðu um innflytjendamál í réttan farveg. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, segir það hafa verið alvarleg mistök hjá íslenskum stjórnvöldum að fallast á frjálst flæði vinnu- afls frá ríkjum Evrópusambandsins í Austur- Evrópu, fyrr á árinu. „Frjálslyndi flokkurinn setti fram það sjónar- mið að íslenskt samfélag væri ekki tilbúið til þess að taka móti öllum þeim fjölda af útlend- ingum, sem hingað kæmi þegar gefið var grænt ljós á frjálst flæði vinnuafls, 1. maí á þessu ári. Það hefur komið á daginn, að þessu flæði hafa fylgt margvísleg vandamál sem við erum ekki tilbúin að takast á við.“ Þrátt fyrir að atvinnuleysi hér á landi hafi verið í lágmarki undanfarin misseri, og útlend- ingar sem hingað koma að stærstum hluta með fasta vinnu, segir Magnús Þór vandamál hafa skapast. „Það hefði miklu frekar átt að nýta betur þann mannauð sem fyrir er í landinu. Það er töluvert af fólki sem á erfitt með að fá vinnu hér á landi, til dæmis fólk yfir fimm- tugu og fólk sem býr við örorku. Auk þess hefði takmörkun á flæðinu haft þensluminnk- andi áhrif, og ekki veitir af því. Við Íslending- ar þurfum að ræða það hvernig þjóðfélag við viljum skapa og hvort þróunin í málefnum inn- flytjenda sé æskileg.“ Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, segir málflutning Magnús Þórs vera hræðsluáróður. „Magnús Þór byggir mál- flutning sinn á hræðsluáróðri sem ekki er til þess fallinn að beina umræðu um innflytjenda- mál í réttan farveg. Kjarni málsins er sá, að þegar atvinnuástand er gott, eins og það er og hefur verið, þá koma útlendingar hingað til lands að vinna. Ef atvinnuástandið versnar þá koma útlendingar síður. Íslenskt samfélag er orðið háð vinnuframlagi útlendinga, það er staðreynd sem mér finnst eðlilegt að fái meira vægi í umræðunni. Tal Magnúsar Þórs, um að hröð fjölgun útlendinga hér á landi sé að skapa umtalsverðan vanda, er ábyrgðarlaus hræðslu- áróður.“ Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórn- málafræði, segir það vera stefnubreytingu ef Frjálslyndi flokkurinn ætli sér að feta inn á þá braut sem Magnús Þór boðar í innflytjenda- málum. „Hingað til hafa ekki verið stjórnmála- flokkar hér á landi sem styðja við harðar aðgerðir gegn innflytjendum. Í nágrannalönd- um okkar eru flokkar sem setja fyrirvara við innflutning útlendinga, og þeim gengur sumum þokkalega. Hugsanlega er því hægt að efla fylgi lítilla flokka með stefnubreytingu í þessa átt.“ Stefna Frjálslyndra í mál- um innflytjenda vekur ugg Varaformaður Frjálslynda flokksins segir mikinn vanda hafa skapast í málefnum útlendinga hér á landi. Ábyrgðarlaus hræðsluáróður, segir Einar Skúlason. Nýtt ef flokkar ætla í þessa átt, segir Ólafur Þ. Harðarson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.