Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 71

Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 71
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég brosi í gegnum tárin eins og fegurðar- drottning,“ segir bíladellukallinn Sigfús B. Sverrisson sem sigraði montbílakeppnina Show Off of the Year 2006 með Ford Mustang Fastback kagganum sínum í síðustu viku. Fréttablaðið greindi frá því nýlega að Must- anginn væri kominn í úrslit keppninnar ásamt fjórum öðrum drossíum en úrslitin réðust í netkosningu á heimasíðunni CarDomain.com og voru kynnt á SEMA bílasýningunni í Banda- ríkjunum. „Þetta er mjög ánægjulegt,“ segir Sigfús og viðurkennir að þessi heiður kitli stoltið. „Ég brosi allan hringinn enda kom þetta nokkuð á óvart þar sem ég var þarna að keppa við full- trúa milljónaþjóðar og þó ég hafi beðið nokkra vini og kunningja um að kjósa mig átti ég ekki von á að það myndi duga til.“ Sigfús efast þó ekki um að Mustanginn hafi verið vel að verðlaununum kominn. „Ég held að Mustanginn sé sá flottasti af þessum fimm. Það var einn Camaro þarna sem var búið að leggja töluvert í en hann var bara smekklaus. Þetta voru samt verðugir andstæðingar.“ Sigfús sleppti því að fara á sýninguna og var því ekki viðstaddur þegar úrslitin voru til- kynnt. „Ég hefði farið ef ég hefði fengið að vita þetta fyrirfram en sá ekki ástæðu til að leggja í þetta ferðalag þar sem líkurnar á sigri voru einn á móti fimm.“ Sigfús segist ekki vita hversu mörg atkvæði liggi að baki sigrinum en telur víst að heitar tilfinningar Bandaríkjamanna til Mustang bíla hafi haft sitt að segja. Þá telur hann víst að umfjöllun Fréttablaðsins um keppnina hafi aflað honum stuðnings hér heima. „Ég vil því skila þakklæti til þeirra Íslendinga sem lögðu mér lið og stuðluðu að því að Mustanginn endar örugglega sem frægasti bíll landsins.“ Mustanginn sigraði montbílakeppnina Stuttmyndin Bræðrabylta á vafalít- ið eftir að vekja mikla athygli þegar hún verður frumsýnd en myndin fjallar um tvo samkynhneigða glímukappa. Þeir Halldór Gylfason og Björn Ingi Hilmarsson leika tvo bændur í afskekktri sveit sem eiga í leynilegu ástarsambandi og sinna því í gegnum íslensku glímuna, tákngervingu karlmennskunnar. Þessi nálgun virðist vera farin að njóta mikilla vinsælda því á síðasta ári var það Brokeback Mountain sem hristi allverulega upp í heims- byggðinni en þar voru það tveir kúrekar sem féllu fyrir hvor öðrum. Leikstjórinn Grímur Hákonar- son upplýsir hins vegar að hann hafi fengið hugmyndina áður en Brokeback kom í kvikmyndahús og þegar tökurnar á myndinni hófust áttaði leikstjórinn sig á því að hún var allt öðruvísi. „Glíman er notuð til að impra svolítið á þessu ástar- sambandi,“ útskýrir Grímur. „Íþróttin getur verið svolítið erót- ísk, búningarnir og dansinn sem er stiginn,“ bætir leikstjórinn við. Að sögn leikstjórans gengur Bræðrabylta mikið út á glímu sem hann segir að sé myndlíking fyrir þjóðerniskennd og þjóðleg gildi. „Glímukeppnin fer fram á Skriðu- klaustri sem er jú teiknað af sama arkitekt og á heiðurinn af Arnar- hreiðri Hitlers,“ segir Grímur en þær tökur fóru fram í kapellu elli- heimilisins Grund sem er jafnframt oft notuð undir íþróttaiðkun heimil- isfólksins. Grímur var nýkominn heim frá Kárahnjúkum þar sem síðustu tökur fóru fram. „Annar mannanna vinnur við jarðboranir og Kára- hnjúkastífla var eini staðurinn þar sem var verið að bora,“ segir Grím- ur en tökuliðið var langt ofan í jörðu og aðstæðurnar ekki til að hrópa húrra fyrir. „Þetta var svona eins og Ísarngerði í Hringadróttinssögu eða Mordor, algjört helvíti,“ útskýr- ir Grímur sem vonast til að frum- sýna myndina í Tjarnarbíói í febrú- ar og senda hana í kjölfarið á kvikmyndahátíðina í Cannes. „Þetta var jöfn keppni en ég hafði þetta að lokum,“ segir Hlynur Guð- jónsson, nýbakaður Íslandsmeist- ari í málmsuðu. Mótið fór fram í Borgarholtsskóla á miðviku- dag. Þar öttu kappi átján bestu málmsuðumenn lands- ins frá níu fyrirtækjum. Þetta var þrettánda Íslandsmeistaramót- ið sem haldið er hér á landi, það fjórða sem Hlynur keppir á og það fyrsta þar sem hann stendur með pálmann í höndunum. Keppt var í sex suðuaðferðum til Íslandsmeistara og að sögn Hlyns er ekki endilega það sama suða og suða. „Það eru alls kyns stellingar og aðferðir í þessu fagi. Þetta er handverk og eins og í hverri annarri vinnu þarf að horfa til gæðanna sem geta verið mis- jöfn,“ segir Hlynur, sem auk þess að hampa Íslandsmeistara- titlinum bar sigur úr býtum í pinnasuðu. Hlynur verður full- trúi Íslands á Norður- landamótinu í málmsuðu sem haldið er í Tampere í Finnlandi 8. til 10. nóvem- ber og heldur utan í dag. „Ég veit eiginlega ekki hvað ég er búinn að koma mér út í. Norðurlandamótið er miklu erfið- ara, miklu flóknara bitar að sjóða en á Íslandsmótinu.“ Hlynur kveðst þó hafa mikinn metnað fyrir Íslands hönd og hefur æft stíft öll kvöld vikunnar til að ná sem bestum tökum á blæbrigðum málmsuðunn- ar. Hlynur Íslandsmeistari í málmsuðu Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100 PAKKAFERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi. Tottenham–Wigan 58.900 kr.24.–27. nóv. 27.–29. nóv. George Michael 69.900 kr. Berlín í jólaundirbúningi 51.900 kr.24.–27. nóv. Aðventuferð til Trier 59.900 kr.8.–11. des. Sheraton Real de Faula Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst Arsenal–Man. City 54.900 kr.30.–31. jan. Chelsea–Arsenal 69.900 kr.9.–11. des. Arsenal–Portsmouth 59.900 kr.15.–17. des. Óli Palli og The Pogues 59.180 kr.16.–18. des. Liverpool–Everton 84.900 kr.2.–4. feb. Frábært hótel með öllum þægindum. Tveir einstakir golfvellir, annar par 72 og hinn er par 62. Krefjandi brautir og útsýni yfir Miðjarðarhafið. Einstök lífsreynsla fyrir alla golfara, reynda sem byrjendur. Risaslagur af bestu gerð á Stamford Bridge! Síðustu leikir þessara liða hafa verið magnaðir og verður eflaust hart barist að þessu sinni enda byrja bæði lið vel í deildinni. Innifalið: Flug með sköttum, gisting á St. Giles í tvær nætur og miði á leikinn. … fær Helga Dögg Helgadóttir fyrir að komast í tíu para úrslit danskeppni sem sýnd var í BBC í Bretlandi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.