Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 54
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Ef frá eru talin örfá
gítargrip hef ég lært allt
sem máli skiptir í lífinu af
konum.
Ástralir kjósa drottningu fram yfir forseta
Fimmtugasta tölublað The Reykja-
vík Grapevine kom út síðastliðinn
föstudag, en blaðið hefur verið í
stöðugri útgáfu síðan í maí 2004.
Jón Trausti Sigurðarson er einn eig-
enda Grapevine, en hann sagði í
samtali við Fréttablaðið að ekki
stæði til að blása til veisluhalda í
tilefni áfangans. „Okkur fannst
ekki tilefni til opinberra veislu-
halda, þó þetta sé vissulega frá-
bær árangur.“ Jón Trausti hefur
verið viðriðinn blaðið frá upphafi,
en hann segir enga sigurvissu
hafa ríkt í herbúðum Grapevine-
manna fyrir fyrsta tölublað. „Við
vorum aldrei vissir um að ná að
gefa út fimmtíu tölublöð þegar
við byrjuðum. Ætli við höfum
ekki alltaf vonast til að koma út
einu í viðbót. Hvert blað sem
kemur út er grettistak,“ sagði
hann.
Grapevine er eins og flestir
þekkja blað fyrir ferðamenn.
„Markhópurinn eru erlendir
ferðamenn og útlendingar sem
búa hér en tala ekki íslensku.
Það hefur alltaf verið á ensku
og mun örugglega vera það
áfram,“ staðfestir Jón Trausti, en spurður
um áhuga íslenskra lesenda á blaðinu segir hann skýringuna
kannski vera að finna í óslökkvandi forvitni Íslendinga. „Þeir
vilja alltaf vita hvað er verið að
segja um þá. Við höfum líka verið
dugleg að fjalla um menningu, fólk
sækir kannski líka í það.“
Grapevine hefur fært út kvíarnar
frá því að það hóf göngu sína í kjall-
ara í Vesturbænum. „Við erum með
heimasíðu, höfum gefið út bók með
Eddu og vorum með daglega útgáfu
meðan á Iceland Airwaves stóð. Svo
höfum við haldið marga tónleika, yfir-
leitt í samstarfi við Smekkleysu. Síð-
asta sumar vorum við með tónleika á
hverjum fimmtudegi á Café Amster-
dam,“ sagði Jón Trausti, sem segir fyr-
irtækið alltaf leita leiða til að bæta við
sig.
Það er ekki úr vegi að spyrja hvort
Jón Trausti sé öruggari með sig hvað
varðar útgáfu á næstu fimmtíu tölu-
blöðum en hann var þegar blaðið hóf
göngu sína? „Jú, það hlýtur nú að vera
auðveldara en fyrstu fimmtíu eintökin,“
sagði hann hugsi. „Eins og staðan er í
dag finnst mér heldur aldrei hafa verið
sterkari hópur starfsfólks á blaðinu, svo
ég er mjög bjartsýnn á framtíðina.“
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Jón Guðmundsson
frá Raufarhöfn,
lést á öldrunarhjúkrunardeild FSA, Seli, að
morgni 30. október. Hann verður jarðsunginn frá
Raufarhafnarkirkju þriðjudaginn 7. nóvember og hefst
athöfnin kl. 14.00.
Hrefna Friðriksdóttir
Sigurbjörg Jónsdóttir Þórarinn Stefánsson
Friðrik Jónsson Steinunn Leósdóttir
Gissur Jónsson
börn, tengdabörn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Óli Pálmi Halldór Þorbergsson
Dunhaga 13, Reykjavík,
lést á Landspítala, Fossvogi, sunnudaginn 29. október.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 7. nóv-
ember kl. 15.00.
Hildur Kjartansdóttir
Kjartan Ólason
Helga Óladóttir Konráð Eyjólfsson
Oddný Þóra Óladóttir Pétur H. Jónsson
og afabörn.
30 ára afmæli
Ólafur Þór Rafnsson
byggingatæknifræðingur
er 30 ára í dag.
Tekið er á móti g jöfum í
foreldrahúsum.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson 550 5000
AUGLÝSINGASÍMI