Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 54

Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 54
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Ef frá eru talin örfá gítargrip hef ég lært allt sem máli skiptir í lífinu af konum. Ástralir kjósa drottningu fram yfir forseta Fimmtugasta tölublað The Reykja- vík Grapevine kom út síðastliðinn föstudag, en blaðið hefur verið í stöðugri útgáfu síðan í maí 2004. Jón Trausti Sigurðarson er einn eig- enda Grapevine, en hann sagði í samtali við Fréttablaðið að ekki stæði til að blása til veisluhalda í tilefni áfangans. „Okkur fannst ekki tilefni til opinberra veislu- halda, þó þetta sé vissulega frá- bær árangur.“ Jón Trausti hefur verið viðriðinn blaðið frá upphafi, en hann segir enga sigurvissu hafa ríkt í herbúðum Grapevine- manna fyrir fyrsta tölublað. „Við vorum aldrei vissir um að ná að gefa út fimmtíu tölublöð þegar við byrjuðum. Ætli við höfum ekki alltaf vonast til að koma út einu í viðbót. Hvert blað sem kemur út er grettistak,“ sagði hann. Grapevine er eins og flestir þekkja blað fyrir ferðamenn. „Markhópurinn eru erlendir ferðamenn og útlendingar sem búa hér en tala ekki íslensku. Það hefur alltaf verið á ensku og mun örugglega vera það áfram,“ staðfestir Jón Trausti, en spurður um áhuga íslenskra lesenda á blaðinu segir hann skýringuna kannski vera að finna í óslökkvandi forvitni Íslendinga. „Þeir vilja alltaf vita hvað er verið að segja um þá. Við höfum líka verið dugleg að fjalla um menningu, fólk sækir kannski líka í það.“ Grapevine hefur fært út kvíarnar frá því að það hóf göngu sína í kjall- ara í Vesturbænum. „Við erum með heimasíðu, höfum gefið út bók með Eddu og vorum með daglega útgáfu meðan á Iceland Airwaves stóð. Svo höfum við haldið marga tónleika, yfir- leitt í samstarfi við Smekkleysu. Síð- asta sumar vorum við með tónleika á hverjum fimmtudegi á Café Amster- dam,“ sagði Jón Trausti, sem segir fyr- irtækið alltaf leita leiða til að bæta við sig. Það er ekki úr vegi að spyrja hvort Jón Trausti sé öruggari með sig hvað varðar útgáfu á næstu fimmtíu tölu- blöðum en hann var þegar blaðið hóf göngu sína? „Jú, það hlýtur nú að vera auðveldara en fyrstu fimmtíu eintökin,“ sagði hann hugsi. „Eins og staðan er í dag finnst mér heldur aldrei hafa verið sterkari hópur starfsfólks á blaðinu, svo ég er mjög bjartsýnn á framtíðina.“ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað- ir, afi og langafi, Jón Guðmundsson frá Raufarhöfn, lést á öldrunarhjúkrunardeild FSA, Seli, að morgni 30. október. Hann verður jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju þriðjudaginn 7. nóvember og hefst athöfnin kl. 14.00. Hrefna Friðriksdóttir Sigurbjörg Jónsdóttir Þórarinn Stefánsson Friðrik Jónsson Steinunn Leósdóttir Gissur Jónsson börn, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Óli Pálmi Halldór Þorbergsson Dunhaga 13, Reykjavík, lést á Landspítala, Fossvogi, sunnudaginn 29. október. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 7. nóv- ember kl. 15.00. Hildur Kjartansdóttir Kjartan Ólason Helga Óladóttir Konráð Eyjólfsson Oddný Þóra Óladóttir Pétur H. Jónsson og afabörn. 30 ára afmæli Ólafur Þór Rafnsson byggingatæknifræðingur er 30 ára í dag. Tekið er á móti g jöfum í foreldrahúsum. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.