Tíminn - 24.05.1979, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 24. mai 1979
iHiiœ
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón SigurOsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar SiOumúla 15. Sfmi
86300. — Kvöldsimar blaOamanna: 86562, 86495. Eftir ki.
20.00: 86387. VerO i iausasölu kr. 150.00. Áskriftargjald kl.
3.000.00 — á mánuOi. Blaöaprent
Erlent yfirlit
Heimsókn Castros til
Mexíkó vekur umtal
Nú geta bændur þekkt
íhaldið betur
Einn óvenjulegasti atburður þingsögunnar gerð-
ist á Alþingi i fyrradag. Það hefur gerzt afar sjald-
an, að þingmenn hafi gengið af fundi i mótmæla-
skyni og reynt að hindra afgreiðslu mála á þann
hátt. Segja má, að skapazt hafi um það óskráð lög,
að beita ekki slikum vinnubrögðum, nema viðkom-
andi þingmenn telji, að þingið sé að fremja ein-
hverja stórkostlega óhæfu, sem beita þurfi
örþrifaráðum til að koma i veg fyrir
Fyrir útgöngu þingmanna Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins á fundi neðri deildar Alþingis i
fyrradag, er ekki hægt að finna nein slik rök. For-
seti deildarinnar, Ingvar Gislason, hafði farið
nákvæmlega eftir þingsköpum við atkvæðagreiðslu
um þær tillögur, sem lágu fyrir við frumvarpið um
breytingu á framleiðsluráðslögunum. Það var þvi
ekki annað en yfirvarp að verið væri að mótmæla
fundarstjórn hans. Ástæða útgöngunnar var sú ein,
að búið var að samþykkja tillögu frá Stefáni
Valgeirssyni, Lúðvik Jósepssyni, Finni Torfa
Stefánssyni og Þórarni Sigurjónssyni þess efnis, að
rikisstjórninni væri heimilað að ábyrgjast allt að
þriggja milljarða króna lán, er Framleiðsluráð tæki
til framkvæmda á tillögum, sem sex manna nefnd
gerði vegna vandkvæða, sem sköpuðust vegna
umfram framleiðslu. Það skilyrði skyldi fylgja
ábyrgð rikisins að „ráðstöfun fjárins gengi fyrst og
fremst til að tryggja hag efnaminni bænda og
þeirra, sem hafa meðalbú eða minni.”
Rökin fyrir þessari lántökuheimild eru þau, að
fyrirsjáanlegt er vegna samdráttar bústofnsins,
m.a. af völdum harðindanna, að umframfram-
leiðslan verður meiri en ella á þessu ári og núgild-
andi heimildir til útflutningsbóta munu þvi ekki
nægja. Hins vegar má gera ráð fyrir, að mikið dragi
úr umframframleiðslu á næstu árum og jafnvel að
hún hverfi að mestu. Þá mundu skaþast mögu-
leikar fyrir Framleiðsluráð til endurgreiðslu á
láninu.
Þingflokkur Alþýðuflokksins að tveimur þing-
mönnum undanskildum, Finni Torfa Stefánssyni og
Gunnlaugi Stefánssyni þoldu ekki að bændum væri
veitt þessi fyrirgreiðsla og kemur það ekki á óvart
eftir þá miklu óvild, sem Alþýðuflokkurinn hefur
sýnt landbúnaðinum siðustu árin. Hins vegar mun
bændastéttinni koma það á óvart, eftir allan fagur-
gala Sjálfstæðisflokksins i garð hennar, að allir
þingmenn hans i neðri deild, að tveim undanskild-
um, skyldu greiða atkvæði gegn lánsheimildinni og
ganga siðan út i slóð Alþýðuflokksmanna til að
mótmæla henni. Með þessari afstöðu hafa
þingmenn Sjálfstæðisflokksins sýnt hina raunveru-
legu afstöðu sina til bændastéttarinnar og þá breyt-
ingu, sem hefur orðið á afstöðu þeirra við fylgisvöxt
Alþýðuflokksins. Samkeppni við Alþýðuflokkinn
hefur haft þau áhrif, að nær allir þingmenn flokks-
ins fylgja Vilmundi Gylfasyni og Sighvati Björg-
vinssyni út úr þingsalnum eins og trygg húsdýr. Af
þessu má bezt ráða hver landbúnaðarstefnan yrði,
ef ný „viðreisnarstjóm” kæmi hér til valda.
Það er ekki ofsagt hjá Steingrimi Hermannssyni
landbúnaðarráðherra, að útgöngumenn Alþýðu-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins hafa gengið hér
fram af sliku ofstæki I garð bændastéttarinnar að
furðu sætir. Bændur væru minni menn, ef þeir
minntust þess ekki, þótt siðar verði og sama gildir
um alla þá, sem gera sér ljósa nauðsyn þess, að
bændastéttin fái stuðning til að sigrast á náttúru-
harðindunum og að áfram dafni lifvænlegur land-
búnaður á íslandi. Þ.Þ.
Kallar hann heim hermennina frá Afríku?
Castro á blaOamannafundi i Mexikó
I BANDARISKUM blööum
hefurveriörættallmikiö slöustu
dagana um skyndiheimsókn
Fidels Castro til Mexikó 17.-18.
þ.m., en hún stóö i aöeins 30
klukkustundir. Þann tima not-
uöu bæöi Castro og Lopez
Portillo vel til áróöurs fyrir sig,
þó ekki sizt Castro.
Castro kom til Mexikó i boöi
Lopez Portillo forseta. Hann
heimsótti þó ekki sjálfa höfuö-
borgina, enda heföi þaö af ýms-
um ástæöum getaö oröiö
áhættusamt fyrirtæki. Lopez
Portillo tók á móti honum i
Cazumel og þar fóru viöræöur
þeirra fram. Litiö hefur veriö
sagt frá þeim, en sennilegt þyk-
ir, aö þær hafi m.a. snúizt um
fýrirhugaöan fund óháöra rikja,
sem ætlunin er aö halda I
Havana I september næstkom-
andi. Ýms óháö riki hafa haft
viö orö aö mæta þar ekki.m.a.
viss Afrikuríki. A þann hátt
vilja þau mótmæla hernaöar-
legri ihlutun Kúbumanna i Af-
riku. Sá orörómur hefur þvl
komizt á kreik aö Castro vilji
gjarnan vera búinn aö kveöja
heim þær herdeildir Kúbu-
manna sem enn dvelja i Afriku,
áöur en fundurinn hefst. Þaö
getur þó oröiö honum óhægt I
Angola, þvi aö uppreisnarmenn
láta þar enn viöa til sin taka.
Vafalitiö þykir, aö Castro hafi'
fariö þess á leit viö Lopez Por-
tillo, aö Mexikógeröisitt til þess
aö þátttaka i fundinum yröi sem
mest, en Mexikó nýtur mikils
álits i' hópi óháöu rikjanna.
í sambandi viö heimsókn
Castros hefur þaö veriö rifjaö
upp,aö hann undirbjó uppreisn
sina gegn Batista, þáv. ein-
ræöisherra á Kúbu, i Mexikó og
hélt þaöan fáliöaöur til Kúbu i
nóvember 1956 til aö hefja
skæruhernaö á Kúbu. Þremur
árum siöar haföi Batista veriö
hrakinn frá völdum. Astæöan til
þessvar m.a. sú,aö Bandarikja-
stjórn taldi stjórn hans oröna
svo spillta,aö hún vildi ekki
lengur styöja hann. Óbeint
hjálpaöi hún Castro til valda og
sýndi honum 1 fyrstu margs
konar viröingu. M.a. var hann
þá gestur Eisénhowers i Hvita
húsinu. Þaö er ekki i fyrsta sinn
sem CIA hefur missýnst og
Bandarikin hafa þvi keypt kött-
inn i sekknum.
ÞAÐ sýnir breytta afstööu til
Castro i latnesku Ameriku, aö
Lopez Portillo skuli bjóöa hon-
um heim. Aö visu hefur Mexikó
þá sérstööu aö vera eina rlki lat-
riesku Ameriku^em aldrei hefur
slitiö stjórnmálasambandi viö
Kúbu. Heimboöiö þurfti þvi ekki
aö vera óeölilegt. En Lopez
Portillo gekk þó vafalaust mest
til aö hann taldi þaö styrkja
stööu sina. Heimboöiö mæltist
vel fyrir meöal vinstri manna
og þótti vottur þess aö Lopez
Portillo léti ekki Bandarikin
ráöa utanrikisstefnu Mexikó.
Raunar er þaö ekki nýtt, aö for-
setar Mexikó reyni aö sanna
sjálfstæöi sitt meö þvi aö hafa
aöraafstööu tilýmissa alþjóöa-
máia en Bandarikin. Bandarik-
in hafa skiliö þessa afstööu og
sætt sig viö hana eins og Sovét-
rikin hafa sætt sig viö vissa sér-
stööu Rúmeniu.
Bandariskum fjölmiölum
hefur hins vegar þótt nóg um,
hvernigLopez Portillo ávarpaöi
Castro. Hann likti honum viö
frelsishetju ogtaldihann einn af
helztu sögupersónum þessarar
aldar. Hann sagöi einnig, aö
Castro væri ekki aöeins leiö-
sögumaöur og stjórnandi,
heldur værihann oröinn lifandi
stofnun. Castro gat ekki fariö
hliöstæöum oröum um Portillo.
en hældi Mexikóstjórn mikiö
fyrir sjálfstæöi hennar.
CASTRO gat ekki látiö hjá
liöa aö vlkja nokkrum oröum aö
Bandarikjunum, bæöi i ræöum
og á blaöamannafundi. Hann
sagöist ekki vera kominn til aö
snikja gas og oliu og mun hann
þar hafa átt viö heimsókn
Carters til Mexikó I febrúar
siöastl.Hann hældi Mexikóstjórn
fyrir aö takmarka oliufram-
leiösluna og selja Bandarikjun-
um þvi minna magn en ella.
Hann hvaö meöferö Bandarikj-
anna á innflytjendum frá
Mexikó vera brot á mannrétt-
indum. Hann lét i ljós von um
bætta sambúö viö Bandarikin,
en áöur þyrftu þau þó aö aflétta
viöskiptabanninu af Kúbu.
Castro neitaöi þvi, aö hann
heföi haft einhver afskipti af
borgarastyrjöldinni i Nicaragua.
Þess þyrfti ekki heldur meö.þvi
aö einræöisherrann þar myndi
brátt enda i ruslatunnu sögunn-
ar. Sama gilti um einræöisherr-
ann i E1 Salvador.
Slöan Castro kom til valda
1959 hefur hann aöeins heimsótt
eitt riki i latnesku Amerlku.eöa
Chile 1973. Heimsókn hans til
Mexikó nú, kann aö vera undan-
fari þess, aö Kúba fái aöild aö
samtökum rikjanna i latnesku
Ameriku. Sennilega veröur þaö
þó ekki meöan Kúbumenn hafa
herliö i Afriku. Þ.Þ.
Castro og Lopez Portillo