Tíminn - 24.05.1979, Qupperneq 13
Fimmtudagur 24. mai 1979
Skólaslit Tónlistarskólans Skagafjaröarsýslu
The National Gallery of Art og I
Phillips safninu i Washington
D.C. að ótöldum háskólakon-
sertum. Er hann hlaut Martha
Barid Rockefeller tónlistar-
verðlaunin, hélt hann i fyrstu
tónleikaför sina til Evrópu og
hefur siðan fariö til Evrópu á ári
hverju. Þar á meðal má nefna
hljómleikaför hans um Spán
með Tékknesku Fllharmóníu-
hljómsveitinni og fjölda tón-
leika i Prag og hljómleika með
Liverpool Filharmoniunni.
Búa á Florida
Þannig verður ljóst að litil
kyrrstaða er i lffi listamanna á
borð viðLeonidas Lipovetsky en
auk þess sem hér hefur verið
talið hefur leið hans legið á
hljómleikaferðum um gjörvöll
Bandarikin, Kanada, og Mið- og
Suður-Amerfku. Nýlega lék
hanninn á segulband fimm upp-
tökur fyrir Argentinska Ut-
varpiö og á efnisskránni þetta
árið hafa veriö allar sónötur
Mozarts og 32 sónötur Beet-
hovens svo nóg er viö timann að
gera.
Astriður og Lipovetsky biia i
Tallahassee sem er rikishöfuð-
borg Florida og láta þau vel af
dvölinni þar.en Astriður segir að
þar sé jafnan margt um ls-
lendinga bæði i námi og eins bii-
setta þar. Hún fer að vonum
ekki varhluta af ferðalögum
manns sins enda fer hún oft með
honum i hljómleikaferðir hans.
Þau hafa farið til Spánar á ári
hverju frá 1971 einkum til
Barcelona, en tónleikar manns
hennarfrá 1969 eru meira en 100
talsins.
Kynntust á Florida
Astriður þekkti mannsefni sitt
ekki þegar hann kom hér fyrst
1969 sem fyrrsegir, heldur uröu
kynni þeirra á Florida árið 1972
þegar hún fór þangaö til þess að
heimsækja systur sina Stefaniu
sem var þá við nám i félagsráö-
gjöf þar vestra. Þau giftust 1975
og eiga tvö börn.
Astriður er hjúkrunar-
fræðingur og hún segir okkur að
hún hafi ekki unniö mikið sem
slik á Florida aðeins þann tfma
sem til þarf, svo hún glati ekki
réttindum sfnum. Siðast kom
un
iall
Leonidas
inu hans,
hún hingað með manni sinum
1977. Systkinin eru þrjú en þær
systur eiga einn bróður, sem
einnig er I heilbrigðisþjónustu-
stétt, Jakob Úlfarsson lækni á
Eskifirði.
Hlakkar til að leika
fyrir islenska áheyr-
endur
Lipovetsky sagöi að af fyrri
kynnum við land og þjóð þá
hlakkaöi hann til aö leika fyrir
islenska áheyrendur en kynni
sin af Islendingum og Sinfóniu-
hljómsveitinni væru mjög góö
og hann bjóst við aö hér væri
óvenju marga vel mennta og
smekkvisa tónlistarvini að
finna. Kvaðst hann vonast til að
þetta yrðifyrsta skipti af mörg-
um sem hann ætti eftir að leika
á íslandi.
150 nemendur úr
flestum héruðum Skagafjarðarsýslu
stunduðu nám við skólann s.l. vetur
AS/Mælifelli 14.5 — Tónlistar-
skóla Skagafjarðarsýslu var
slitiðvið hátiðlega athöfn 1 Mið-
garði I Varmahlfð s.l. sunnudag.
Fjöldi nemenda skólans viða að
úr héraðinu kom fram á nem-
endatónleikum.
Lácu s umir nemendanna á git-
ara og blokkflautur, margir á
pianóog þrir á orgel við góðar
undirtektir samkomugesta. 1
skólaslátaræöu Ingimars Páls
sonar skólastjóra kom fram
m.a. að 150 nemendur voru I
skólanum s.l. ár úr nær öllum
hreppum sýslunnar og er það
mjög hátt hlutfall, e.t.v. það
hæsta á öllu landinu. Kennarar
ásamt Ingimar eru Anna Jóns-
dóttir Mýrarkoti og kenna þau
aðallega í héraðinu austan-
veröu, Þórhildur og
Einar Schwaiger, hjón frá Nor-
egi sem búsett eru I Varmahlið
ogkennaþau vestan vatna, á-
samt Margréti Jónsdóttur
skólastjóra á Löngumýri, sem
hefur ávallt stutt tónlistarskól-
ann með ráðum og dáö og tók
hún að sér töluveröa stunda-
kennslu á þessum vetri. Fyrir
hönd skólans þakkaði Margrét
skólastjóranum og kennurunum
fyrir vetrarstarfið, sem var
mikið og margþætt. Norsku
hjónunum voru faa-ðar sérstak-
ar þakkir og þeim árnaö góðrar
ferðar til heimalandsins þar
sem þau munu dvelja i sumar,
ráðin I.aö koma aftur aö hausti.
Tónlistarskólinn hefur starfað I
þrjá vetur við mikla aösókn.
Góöan ogalmennan árangur má
rekja til hæfra og áhugasamra
kennara, sem leggja á sig mikil
ogerfiö feröalögtil kennslunnar
á hinum ýmsu skólasetrum I
sýslunni. Skilning ogundirtektir
sveitarstjórna við skólann ber
og að að þakka sérstaklega, en
sveitarsjóðirnir leggja til mik-
iö rekstrarfé.
Sjáumst í Lúx í sumar.
FLUGFÉLAG IOFTLEIDIR
ISLA/VDS
ys og þys stórborg-
arinnar eða kyrrð og
friðsæld sveitahérað-
anna - þáfinnur þú hvort
tveggja í Luxemborg, þessu
litla landi sem liggur í hjarta
Evrópu.
Næstu nágrannar eru Frakkland
Þýskaland og Belgía - og fjær Holland-
Sviss og Ítalía.
Því er það að margir helstu sögustaðir Evrópu
eru innan seilingar. Til dæmis er stutt á vígaslóðír
tveggja heimstyrjalda Verdun og Ardennafjöll.
Ef þú ferðast til Luxemborgar, þá ferð þú í sumarfrí á eigin
spýtur - ræður ferðinni sjálfur - slakar á og sleikir sólskinið
og skoðar þig um á söguslóðum.
Sumarfrí í Luxemborg er hvort tveggja í senn einstæð
skemmtun og upplifun sögulegra atburða.