Fréttablaðið - 10.12.2006, Síða 8
Háttsettir erindrekar
Evrópusambandsins funduðu í
gær um það hvernig bregðast
skyldi við tilraun Tyrkja til að fá
því afstýrt að hlé yrði gert á aðild-
arviðræðum þeirra að samband-
inu með tilboði um að opna eina
höfn fyrir viðskiptum frá gríska
hluta Kýpur.
Mehmet Ali Talat, leiðtogi
Kýpur-Tyrkja, var einnig mættur
til Brussel til að eiga viðræður við
Olli Rehn, sem fer með stækkun-
armál ESB í framkvæmdastjórn-
inni. Tyrkir lögðu fram tilboð sitt
á fimmtudag, en Erkki Tuomioja,
utanríkisráðherra Finna sem nú
fara með formennskuna í ESB,
sagði það ófullnægjandi. „Þetta er
engin lausn,“ sagði hann. Sam-
kvæmt tilboðinu kváðust Tyrkir
tilbúnir til að opna eina höfn fyrir
viðskiptum frá gríska hluta Kýpur
gegn því að ESB opnaði fyrir við-
skipti við hinn einangraða tyrk-
neska hluta eyjunnar.
Tyrkir hafa fram til þessa ekki
viljað fallast á að tollabandalags-
samningur Tyrkja við ESB næði
einnig til ríkjanna tíu sem gengu í
sambandið árið 2004, þar sem þeir
álíta að með því væru þeir óbeint
að viðurkenna lýðveldi Kýpur-
Grikkja. Síðan Tyrkir gerðu inn-
rás á Kýpur árið 1974, undir því
yfirskini að vilja afstýra meintri
yfirvofandi sameiningu eyjunnar
við Grikkland, hafa Kýpur-Tyrkir
haldið úti eigin aðskilnaðarlýð-
veldi, sem Tyrkir einir viður-
kenna. Eina alþjóðlega viður-
kennda ríkið á Kýpur er lýðveldi
Kýpur-Grikkja, sem Tyrklands-
stjórn á ekki í neinum tengslum
við og bannar eigin þegnum að
eiga viðskipti við.
Fastafulltrúar aðildarríkja ESB
sátu fram á kvöld í gær á rökstól-
um bak við luktar dyr um þetta og
önnur mál sem verða á dagskrá
leiðtogafundar sambandsins í lok
næstu viku. Finnska ESB-for-
mennskan hafði gefið tyrkneskum
stjórnvöldum frest sem rann út nú
í vikunni til að fullgilda fjölgun
aðildarríkja að tollabandalags-
samningnum. Yrðu þau ekki við
þessu myndu aðildarviðræðurnar
við Tyrki „frystar“ í bili.
Tillaga Tyrkja
ófullnægjandi
Erindrekar Evrópusambandsins sátu á rökstólum í
Brussel á föstudag um það hvernig bregðast skyldi við
útspili Tyrkja í deilunni um tollabandalag og Kýpur.
Samstarfshópurinn um
Ljósberann valdi Gísla Hrafn
Atlason, mannfræðing og ráðs-
konu í karlahópi Femínistafélags
Íslands, Ljósberann árið 2006 við
athöfn í Hinu húsinu á föstudag-
inn. Þetta er fimmta sinn sem
Ljósberinn er veittur.
Gísli fær verðlaunin fyrir
frumkvæði, djörfung, hugrekki og
baráttuanda í umræðum og fyrir
að vera í forsvari í að virkja karl-
menn til ábyrgðar gegn kyn-
bundnu ofbeldi í samfélaginu.
Gísli er mjög ánægður með við-
urkenninguna og segir hann að
annars vegar sé verið að veita
honum hana fyrir starf hans í
karlahópi Femínistafélagi Íslands
og eins fyrir að hvetja til breyt-
inga á kynferðisbrotakafla hegn-
ingarlaganna. „Ég tel að þær
breytingar á kaflanum sem hafa
verið kynntar gangi ekki nógu
langt,“ segir Gísli.
Gísli segir einnig að hann fái
viðurkenninguna fyrir starf sitt í
málefnum sem lúta að ábyrgð
feðra innan fjölskyldunnar en
hann telur að karlmenn þurfi að
taka meiri þátt í störfum innan
heimilanna því konur séu í aukn-
um mæli farnar að starfa utan
heimilis. Hann segist ekki taka
viðurkenninguna alfarið til sín
heldur eigi allir í karlahópi Femín-
istafélagsins hlut í henni með
honum. -
Heiðraður fyrir baráttuanda
Atvinnuleysis-
bætur hækka um 2,9 prósent um
næstu mánaðamót. Þetta er í
samræmi við yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar vegna kjara-
samninga á almennum vinnu-
markaði. Í forsendum fjárlaga
fyrir árið 2007 er gert ráð fyrir
að launa- og verðlagsbætur á
fjárlagalið Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs nemi 2,9 prósentum.
Jafnframt er ljóst að almennir
kjarasamningar ríkisins við félög
opinberra starfsmanna, félög ASÍ
og fleiri hækka um 2,9 prósent 1.
janúar. Sömu hækkanir koma
fram í niðurstöðu forsendunefnd-
ar SA og ASÍ frá því í fyrra.
Hækka um 2,9
prósent 2007
ver er aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra?
Hversu gamall varð Hemmi
Gunn í gær?
Hvað heitir önnur sólóplata
Gwen Stefani?
Viðtökur við nýbúa-
útvarpinu hafa verið svo góðar
að stjórnendur stöðvarinnar leita
nú allra leiða til að stækka
útsendingarsvæðið. Stefnt er að
því að vera með sama útsending-
arstyrk og aðrar útvarpsstöðvar
og að útsendingin nái yfir allt
Faxaflóasvæðið. Þá er mikill
áhugi úti á landi að tengjast
útvarpsstöðinni og skýrist eftir
áramótin hvernig það þróast.
Nýbúaútvarpið er samvinnu-
verkefni Hafnarfjarðarbæjar,
fjölmiðladeildarinnar í Flens-
borg og Alþjóðahúss.