Fréttablaðið - 27.01.2007, Side 8
Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra setti í gær
Rúnar Guð-
jónsson,
sýslumann í
Reykjavík, í
starf ríkislög-
reglustjóra við
rannsókn á
meintum
skattalagabrot-
um fimm
manna
tengdum
Baugi. Skipun-
in kemur í kjölfar þess að
Hæstiréttur komst síðastliðinn
þriðjudag að þeirri niðurstöðu að
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri skyldi víkja sæti við
rannsókn málsins.
„Þetta er bara eins og hvert
annað verkefni,“ sagði Rúnar, en
hann vildi í gær ekki ræða frekar
nýja starfið. Haraldur hefur sætt
mikilli gagnrýni sakborninga í
Baugsmálinu.
Hvað heitir höfuðborg
Eistlands?
Hvað heitir Ofur-Hugi fullu
nafni?
Hvað heitir færeyski kepp-
andinn í X-factor?
Þótt upphaflegar ákær-
ur í Baugsmálinu séu til lykta
leiddar er Baugsmálið ekki búið.
Eftir standa endurákærur sem
settur ríkissaksóknari gaf út í lok
mars 2006 í kjölfar frávísunar
Hæstaréttar á 32 af 40 ákærulið-
um í upphaflega málinu.
Ákærðu í málinu eru þeir Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs Group, Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Baugs, og Jón Gerald Sullenberger,
forstjóri Nordica Inc. í Bandaríkj-
unum. Upphafleg endurákæra var
í 19 liðum, en fyrsta ákæruliðnum
var vísað frá dómi í júlí 2006, svo
eftir standa liðir 2-19. Aðalmeð-
ferð í málinu mun hefjast í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur 12. febrúar
næstkomandi.
Skipta má ákærunni í fimm
hluta eftir ákæruefnum. Í þeim
fyrsta er einungis ákæruliður 1,
sem hefur verið vísað frá dómi. Í
honum var Jón Ásgeir ákærður
vegna kaupa Baugs á 10-11
verslanakeðjunni.
Í öðrum hlutanum eru ákæru-
liðir 2 til 9, þar sem Jón Ásgeir er
einn ákærður fyrir brot gegn
hlutafélagalögum vegna ólög-
mætra lánveitinga. Ákært er
vegna lána að upphæð samtals um
471 milljón króna til fjárfestingar-
félagsins Gaums – sem er fjöl-
skyldufyrirtæki Jóns Ásgeirs,
Fjárfars – sem var í umsjá Jóns
Ásgeirs, og Kristínar Jóhannes-
dóttur – systur Jóns Ásgeirs.
Þriðji hluti ákærunnar, ákæru-
liðir 10 til 16, snúa að meiriháttar
bókhaldsbrotum. Þar er Jón Ásgeir
ákærður vegna sjö tilvika þar sem
hann er sakaður um að hafa rang-
fært bókhald Baugs á árunum
2000-2001 með tilhæfulausum
færslum sem höfðu áhrif á
afkomutölur Baugs, og þar með
skapa ranghugmyndir um hag
félagsins, sem þá var skráð á
markað. Tryggvi Jónsson er
ákærður fyrir sömu sakir í sex til-
vikum. Að lokum er Jón Gerald
ákærður í einum ákærulið fyrir að
aðstoða Jón Ásgeir og Tryggva við
brot þeirra.
Fjórði hluti ákærunnar er
ákæruliður 17, en hann snýr að
Jóni Ásgeiri og Tryggva. Þeir eru
ákærðir fyrir bókhaldsbrot með
því að láta líta svo út í bókhaldi
Baugs að seld hafi verið úr félag-
inu hlutabréf félagsins með bók-
fært verð tæplega 331 milljón
króna, sem í raun hafi verið flutt á
fjárvörslureikning í eigu Baugs í
Lúxemborg. Fjárvörslureikningur-
inn var meðal annars notaður til að
efna kaupréttarsamninga við
æðstu stjórnendur Baugs. Í ákæru
segir að í bókhaldi Baugs hafi
Kaupþing verið sagt kaupandi.
Fimmti og síðasti hlutinn er
jafnframt sá alvarlegasti, en þar er
Tryggvi ákærður fyrir fjárdrátt í
ákæruliðum 18 og 19, en Jón Ásgeir
ákærður fyrir fjárdrátt í lið 18.
Báðir eru ákærðir fyrir fjár-
drátt með því að hafa dregið fé úr
Baugi til fjárfestingafélagsins
Gaums, samtals rúmar 32,2 millj-
ónir króna, til að greiða kostnað
við eignarhlut og rekstur skemmti-
bátsins Thee Viking í Flórída í
Bandaríkjunum.
Tryggvi er einnig ákærður fyrir
fjárdrátt með því að hafa látið
Baug greiða einkaútgjöld sín sem
hann stofnaði til með greiðslukorti,
samtals 1,3 milljónir króna. Fyrir
þær keypti hann meðal annars
sláttuvél, og verslaði í tónlistar- og
tískuvöruverslunum og á veitinga-
stöðum, að því er segir í ákæru.
Endurákæra í Baugsmálinu
fyrir héraðsdóm í febrúar
Nú þegar því sem eftir stóð af upphaflega Baugsmálinu er lokið með sýknudómi beinist athyglin að þeirri
ákæru sem eftir stendur. Þar eru þrír menn ákærðir fyrir meðal annars fjárdrátt, brot á hlutafélagalögum
og bókhaldsbrot. Allt stefnir í maraþonréttarhöld í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar og fram í mars.
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
forstjóri Baugs
Group hf.
Ákærður fyrir:
Brot gegn
hlutafélagalögum vegna
lánveitinga (ákæruliðir 2-9).
Meiri háttar bókhaldsbrot til
að skapa ranghugmyndir um
hag Baugs (ákæruliðir 10-16).
Meiri háttar bókhaldsbrot við
sölu á hlutabréfum (ákæruliður
17).
Fjárdrátt úr Baugi til að
fjármagna eignarhlut og
rekstur skemmtibátsins Thee
Viking (ákæruliður 18).
TRYGGVI
JÓNSSON
fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri Baugs
hf.
Ákærður fyrir:
Meiri háttar bókhaldsbrot til
að skapa ranghugmyndir um
hag Baugs (ákæruliðir 11-16).
Meiri háttar bókhaldsbrot við
sölu á hlutabréfum (ákæruliður
17).
Fjárdrátt úr Baugi til að
fjármagna eignarhlut og
rekstur skemmtibátsins Thee
Viking (ákæruliður 18).
Fjárdrátt úr Baugi með því að
láta fyrirtækið greiða persónu-
leg útgjöld (ákæruliður 19).
JÓN GERALD
SULLENBERGER
framkvæmda-
stjóri Nordica
Inc.
Ákærður fyrir:
Meiri háttar
bókhaldsbrot með því að gefa út
tilhæfulausan reikning til að
aðstoða Jón Ásgeir og Tryggva
við að rangfæra bókhald Baugs
(ákæruliður 15).
Ákærðir nú:
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort Baugur
Group muni fara í skaðabótamál
við íslenska ríkið vegna áhrifa
Baugsmálsins svokallaða á
fyrirtækið.
Hákon Árnason hæstaréttar-
lögmaður segir að hann hafi verið
beðinn um að kanna grundvöll
málshöfðunar eftir húsleitina hjá
Baugi í ágúst 2002, en ákveðið
hafi verið að bíða með slíka
kröfugerð þar til eftir að endan-
legur dómur hafi fallið.
Hákon segir talað um kröfur
upp á hundruð milljóna eða jafnvel
milljarða. Ekkert þak sé á slíkum
kröfum samkvæmt lögum.
Ekkert þak á
upphæð bóta
15% handbolta-
afsláttur til 5. febrúar
Fataskápar fyrir fötin þín,
tilsniðnir eftir máli án aukakostnaðar.
www.innval.is
Hamraborg 1 Kópavogi s: 554 4011
Opið laugardag
Rýmingarsala
Fjármálaráðuneytið
hafnaði kröfum Ragnars Aðal-
steinssonar hæstaréttardómara
um frávísun í málum nokkurra
umbjóðenda hans í hópi land-
eigenda á austanverðu Norður-
landi. Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra hafði sett fram kröfur
fyrir hönd ríkisins um að hlutar
jarða landeigendanna yrðu gerðar
að þjóðlendum. Þetta kemur fram
í svarbréfi Andra Árnasonar,
hæstaréttarlögmanns og lög-
manns fjármálaráðuneytisins,
sem hann sendi óbyggðanefnd
hinn 23. janúar.
Andri segir að kröfum Ragnars
hafi verið hafnað vegna formlegra
og efnislegra atriða, en í bréfi
Ragnars kom fram að kröfugerð
fjármálaráðherra samræmdist
ekki þjóðlendulögunum og kynni
að vera brot á almennum hegn-
ingarlögum. Í bréfi Andra segir að
hafna beri kröfunum því Ragnar
taki ekki fram hvaða jarðir hann
eigi við þegar hann krefjist frá-
vísunar. Þess vegna sé ekki hægt
að túlka frávísunarkröfuna á
annan hátt en að hann fari fram á
að öllum þjóðlendukröfum ríkis-
ins á austanverðu Norðurlandi
verði vísað frá. Andri segir að
þetta brjóti gegn einni af megin-
reglum íslensks stjórnsýsluréttar.
Ragnar Aðalsteinsson segist
bíða eftir svari óbyggðanefndar
við frávísunarkröfunum, því hún
muni kveða upp endanlegan
úrskurð um frávísunarkröfuna í
næstu viku. Hann segir að ef
nefndin hafni kröfunni muni hann
íhuga, í samráði við umbjóðendur
sína, að fá úrskurðinum hnekkt
fyrir dómi.
Kröfum Ragnars var hafnað
Tekur við af rík-
islögreglustjóra
Almenningssalerni
sem leysir af aðstöðuna í Núllinu
í Bankastræti gæti verið fundinn
staður við þann enda fyrirhugaðs
tónlistarhúss sem næst yrði
Lækjartorgi. Fleiri staðsetningar
eru einnig til skoðunar.
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá hefur framtíð Núllsins
verið óviss eftir að „svört
skýrsla“ þar sem aðstaðan fékk
„falleinkunn“ var lögð fyrir
framkvæmdasvið borgarinnar.
Meðal annars eru öryggismál þar
vandleyst og aðgengi fyrir fatlaða
afar slæmt enda um þröngar og
brattar tröppur að fara. Fimm
„sjálfvirk“ almenningissalerni á
vegum einkafyrirtækisins AFA
eru nú í miðborginni.
Salernin í nýja
Tónlistarhöll
Vinstri græn hafa nú
næstmest fylgi allra stjórnmála-
flokka samkvæmt nýrri könnun
tímaritsins Frjálsrar verslunar.
Stjórnarflokkarnir halda meiri-
hluta á Alþingi. Svarhlutfall var 57
prósent. 570 voru spurðir.
Sjálfstæðisflokkur fær lang-
mest fylgi eða 38,8 prósent. Næstir
koma Vinstri grænir með 20,5 pró-
senta fylgi. Þar á eftir mælist Sam-
fylkingin með 18,5 prósent, Fram-
sóknarflokkurinn með 11,1 prósent
og Frjálslyndi flokkurinn með 9,4
prósent. Samkvæmt þessu fengi
Sjálfstæðisflokkur 25 þingmenn og
Framsóknarflokkurinn 7 menn.
Vinstri græn fengju 13 þingmenn,
Samfylking 12 og Frjálslyndi flokk-
urinn 6 menn.
VG næststærstur