Fréttablaðið - 27.01.2007, Side 58
12
„Það má segja að ég sé yfir mig ást-
fangin af nýja blandaranum og hann
væri hinn fullkomni sambýlingur ef
hægt væri að tala við hann,“ segir
Edda hress í bragði og tekur til við
að lýsa hinum fjölmörgu kostum
þessa frábæra blandara.
„Aðalmálið er náttúrlega hinn
mikilvægi morgunverður, en þar
reyni ég að nota hugmyndaflugið
eins og ég mögulega get. Ég set ýmist
alls konar djús, epli, perur og banana
í blandarann eða djús, hrísmjólk,
möndlumjólk og fullt af exótískum,
frosnum ávöxtum eins og melónu-
kúlum, mandarínubátum, mangó og
papaya,“ segir leikkonan og bætir því
við að fyrir þá sem vilja sæta drykk-
inn sé hægt að nota til þess ananas
og banana og svo er algjör galdur að
setja tvær til þrjár döðlur stundum
út í drykkinn. „Það er um að gera að
hafa fjölbreytni í þessu svo maður fái
ekki leið á morgunsjeiknum – enda
eru til svo margar tegundir af djús og
frosnum berjum.“
Edda notar eins mikið lífrænt og
hún getur því hún vill reyna að úti-
loka skordýraeitur og áburðareitur úr
mataræðinu. „Ég held að þessi auka-
efni séu að drepa mannkynið auk
eitraða sykursins og vondu fitunn-
ar,“ segir Edda.
„Morgunmaturinn er náttúru-
lega mikilvægastur í heimi en það
er líka hægt að gera litlar spelt-
bollur, sem blandarinn hnoðar fyrir
mann,“ segir Edda en henni finnst
líka alveg geggjað að geta búið til
grænmetissafa úr öllu grænmeti án
þess að nokkuð hrat verði afgangs.
„Síðan fór ég að horfa á geisla-
diskinn sem fylgdi með blandaran-
um og komst þá að því að það er
hægt að nota hann til að gera heita
súpu. Ég náttúrulega prófaði það og
þetta var bara engin lygi að það er
hægt að gera sjóðandi heita græn-
metissúpu ef maður stillir blandar-
ann rétt,“ segir Edda ánægð.
Það er heilmikið fram undan hjá
Eddu fyrir utan meistaranámið í
Háskólanum á Bifröst. „Fyrstu helg-
ina í febrúar er ég með sjálfsstyrk-
ingarnámskeið fyrir konur í Egilshöll
á vegum Heilsuakademíunnar. Sjötta
febrúar verð ég síðan með opið nám-
skeið fyrir þá sem vilja læra að tala
fyrir framan fólk af öryggi en það
er hjá Þekkingarmiðlun. Þrettánda
febrúar verð ég með fyrirlestur hjá
Maður lifandi sem heitir Ertu andlegt
og líkamlegt eiturefnaúrgangsrusla-
skrímsli?“ Að auki er eilífðarverkefnið
Alveg brilliant skilnaður náttúrulega
enn á fjölunum í Borgarleikhúsinu
– að vísu allra síðustu sýningar núna
– þannig að það er fjörugur febrúar
fram undan hjá Eddu.
sigridurh@frettabladid.is
Ástfangin af blandaranum
Leikkonan síkáta, Edda Björgvinsdóttir, er himinsæl með nýju heimilisgræjuna sína, blandarann. Í honum er hægt
að gera ótrúlegustu hluti en mikilvægastur er blandarinn þegar Edda gerir hollustumorgunverðinn sinn.
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · WWW.RAFVER.IS
gel-arnar
...enginn reykháfur
Einnig til fyrir rafmagn!
Viður eða gler
Ýmsir litir í boði
Auðveld uppsetning
Hægt að staðsetja
nánast hvar sem er
Lyktarlaus bruni
{ heimilið }